Sandra Murfitt skrifaði:
How many cm of positive ease do you recommend? Thank you for this lovely design.
15.08.2020 - 00:39DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Murfitt, measure a similar garment you have and like the shape and compare them to the measurements in chart, that's the best way to find out your size. Read more about charts here. Happy knitting!
17.08.2020 - 08:10
Gerd Rose Irene Ebbesen skrifaði:
NYDELIG
06.06.2020 - 17:48
Heidi Nielsen skrifaði:
Igen minder den mig om 40-50`ernes engelsk strik - den kan hedde Raspberry summer
05.06.2020 - 18:12
Harvest Queen Jacket#harvestqueenjacket |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Air eða 1 þræði DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og köðlum. Stærð XS - XXL.
DROPS 218-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 153 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 8 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 5) = 29. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 29. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi í stærð L-XL-XXL): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-10-9-9-9-10 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 54-54-59-59-64-64 lykkjur (meðtaldar 4 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna 8 með 2 þráðum Air eða 1 þræði Snow. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið A.1 (= 5 lykkjur) þar til 5 lykkjur eru eftir (= 9-9-10-10-11-11 sinnum á breidd), prjónið 1 lykkjur sléttprjón og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 5 cm. Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun á umferð mitt að framan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 9. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2 (= 9-9-10-10-11-11 mynstureiningar með 5 lykkjum), 1 lykkja sléttprjón (þetta er gert til að mynstrið verði alveg eins mitt framan á báðum hliðum á stykki) og endið með 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í A.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 144-153-169-179-196-207 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20-20-20-23-23-26 cm frá prjónamerki í hálsi. Prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Í fyrstu umferð með sléttprjóni er aukið út um 0-5-0-0-0-5 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 144-158-169-179-196-212 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið, þar til stykkið mælist 21-21-23-24-26-28 cm frá prjónamerki í hálsi. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermi, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 24-27-29-31-33-36 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 26-28-30-32-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir næstu 43-47-51-53-58-64 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 26-28-30-32-36-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið eins og áður yfir þær 25-28-29-31-33-36 lykkjur sem eftir eru (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 100-110-117-127-136-148 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist 21-23-23-24-24-24 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd), prjónið 1 umferð slétt frá réttu á meðan aukið er út um 11-11-12-12-11-11 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 111-121-129-139-147-159 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 6 cm. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjóni, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 26-28-30-32-36-38 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón 9 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 30-32-34-38-42-44 lykkjur. Í þeim 3 stærstu stærðunum er sett 1 prjónamerki mitt á milli 6 nýrra lykkja undir ermi. Það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum hvoru megin við prjónamerki. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 5 cm frá skiptingu, fækkið um 0-0-0-1-1-1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7 cm millibili alls 0-0-0-2-3-3 sinnum = 30-32-34-34-36-38 lykkjur. Þegar ermin mælist 32-33-31-31-29-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 36-38-40-40-42-44 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 8 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 38-39-37-37-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #harvestqueenjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 218-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.