Bodil Jensen skrifaði:
Jeg leder efter opskrift på cm-121 jeg er vild med den
28.02.2020 - 09:03
Yvonne Sand skrifaði:
Hej. Det finns många modeller som man inte kan få fram gratis mönster! Vad beror detta på? Vänlig hälsning Yvonne Sand
23.02.2020 - 21:59
Yvonne Sand skrifaði:
När kommer beskrivningen?
19.02.2020 - 16:16
Elisabeth Selander skrifaði:
Den vill jag gärna ha mönstret på, jättefin!
17.02.2020 - 12:49
Marielle skrifaði:
Wat een leuk truitje! Staat op mijn to-do lijstje!
13.02.2020 - 09:33
Jette Dyrby Mårtensson skrifaði:
Kommer opskriften snart ? ;-) den er så fin
05.02.2020 - 12:39
Nonne skrifaði:
Ljuvligt mönster! Mycket bra, användbar modell! Hoppas beskrivning kommer snart.
07.01.2020 - 16:47
Doris skrifaði:
Das Modell würde ich gerne für meine Tochter stricken.
31.12.2019 - 20:37
Betina Kauer skrifaði:
Sehr schönes Modell, ich freue mich schon auf die Anleitung.
21.12.2019 - 23:47
New Beginnings#newbeginningstop |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónaður, aðsniðinn toppur úr DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað með klaufum í hliðum, stuttum ermum og hringlaga berustykki með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-38 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚRTAKA-1 (á við hliðar á fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 4 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚRTAKA-2 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 316 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 52,7. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 52. og 53. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp. Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig upp að klauf. Síðan eru stykkin sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna upp að handveg. Síðan eru 2 kantar á ermum prjónaðir í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, sem síðan er sett á sama hringprjón og fram- og bakstykki. Berustykkið er prjónað í hring á hringprjóna til loka. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 88-96-104-116-128-140 lykkjur á hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm – endið eftir umferð frá röngu. Geymið stykkið og prjónið bakstykki: BAKSTYKKI: Fitjið upp 88-96-104-116-128-140 nýjar lykkjur á hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón fram og til baka. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjum í garðaprjón í hvorri hlið þar til stykkið mælist 8 cm – endið eftir umferð frá röngu. Prjónið síðan fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið framstykki og bakstykki á sama hringprjón 4 = 176-192-208-232-256-280 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki – í skiptinguna á milli framstykkis og bakstykkis. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fækka á lykkjum og auka út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 4 cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 164-180-196-220-244-268 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING (= lykkjur fleiri). Aukið út svona með cm millibili alls 3 sinnum í hvorri hlið = 176-192-208-232-256-280 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34 cm frá uppfitjunarkanti í öllum stærðum, fellið af 6-8-8-10-10-12 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg, þ.e.a.s. fellið af 3-4-4-5-5-6 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin = 82-88-96-106-118-128 lykkjur í hvoru stykki. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR Á ERMI: Fitjið upp 60-66-70-78-86-90 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 með Cotton Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-4-4-5-5-6 lykkjur, prjónið 54-58-62-68-76-78 lykkjur sléttprjón og fellið af þær lykkjur sem eftir eru 3-4-4-5-5-6 lykkjur. Klippið frá. Geymið stykkið og prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Setjið kanta á ermum á sama hringprjón 4 og fram- og bakstykki, þar sem lykkjur voru fellda af fyrir handveg = 272-292-316-348-388-412 lykkjur í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 2-2-2-2-4-4 umferðir sléttprjón og fækkið lykkjum jafnframt um 2-2-6-8-8-2 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð – sjá ÚRTAKA-2 = 270-290-310-340-380-410 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 27-29-31-34-38-41 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið 4-4-6-6-10-10 umferðir sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 50-50-50-50-60-60 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 220-240-260-290-320-350 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn (= 22-24-26-29-32-35 mynstureiningar með 10 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað eins og útskýrt er í mismunandi stærðum að neðan – berustykki er nú mælt frá þessu prjónamerki: S og M: Þegar stykkið mælist 1-1 cm frá prjónamerki, fækkið um 44-48 lykkjur jafnt yfir = 176-192 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-4 cm frá prjónamerki, fækkið um 44-48 lykkjur jafnt yfir = 132-144 lykkjur. Fylgið síðan útskýringu undir ALLAR STÆRÐIR! L, XL, XXL og XXXL: Þegar stykkið mælist 1-1-1-1 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 223-243-267-292 lykkjur. Þegar stykkið mælist 3-4-4-5 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 186-196-214-234 lykkjur. Þegar stykkið mælist 5-7-7-9 cm frá prjónamerki, fækkið um 37-47-53-58 lykkjur jafnt yfir = 149-149-161-176 lykkjur. Fylgið síðan útskýringu undir ALLAR STÆRÐIR! ALLAR STÆRÐIR: Haldið áfram hringinn með sléttprjóni þar til stykkið mælist 4-6-7-9-9-11 cm frá prjónamerki – þ.e.a.s. 18-20-22-24-26-28 cm frá þar sem fram- og bakstykki og kantar á ermum er sett saman. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-32-33-29-35-46 lykkjur jafnt yfir = 108-112-116-120-126-130 lykkjur. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4 og fellið af með sléttum lykkjum. Toppurinn mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #newbeginningstop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.