Stefanie skrifaði:
Hallo, ich verstehe bei den Zacken zwar, in welcher Weise ich die Reihen fortsetzten muss, aber nicht, wieviele Reihen insgesamt gestrickt werden sollen. Bei Größe L habe ich für die erste Zacke 14 Reihen gestrickt. Ist das richtig? LG Stefanie
23.03.2022 - 16:53DROPS Design svaraði:
Liebe Stefanie, in L stricken Sie bei der 1. Zacke zuerst 4 Runden, dann die verkürzten Reihen (Reihe 1 bis 8 + so (immer 5 Maschen weniger stricken) weiterstricken bis Sie nur 10 Maschen gestrickt haben, dh in L sollen Sie 13 Reihen mit Lochmuster haben. Viel Spaß beim stricken!
24.03.2022 - 09:33
Darline Crane skrifaði:
What I did was for the larger size was, over the Stitches on the needle, knit 12 or 13 stitches, 1 yarn over creating a increase in stitches as indicated (0-25-26-28-30). In my case I came out with 28 as indicated the amount need for the size I am following.
01.06.2021 - 17:40DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Crane, in L you should have 338 sts at the end of 4th section, then work 1st round 5th section as follows: *K13, YO*, repeat from *-* a total of 26 times (= 26 sts increased) = there arer now 364 sts on needle. Happy knitting!
02.06.2021 - 07:48
Darline Crane skrifaði:
In Section 5, Round 1 it asks to *Knit 288-12-13-13-13-13, 0-1-1-1-1-1 yarn over *,work from*-* to end ... . Just what is it asking me to do? I can see knitting 288 but follow an additional 13 stitches and one yarn over 28 times?
01.06.2021 - 01:40DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Crane, if you are working the first size, work 288 stitches on first round in 5th section, ie in this size, you don't increase any stitch. Happy knitting!
01.06.2021 - 08:30
Margret skrifaði:
Bin mit der 4.Zacke zu Ende und schon auf einer Länge von 21cm ab Bündchen!Maschenanzahl und Zunahmen stimmt alles!eine Zacke ist anders breitesten Stelle bereits 8 cm ,da sind ja 6 Zacken viel zu viel!!!Was ist da falsch?
22.05.2021 - 22:43DROPS Design svaraði:
Liebe Magret, stimmt Ihre Maschenprobe auch in der Höhe? Beachten Sie, daß alle Zacke sollen gleich hoch sein, es kann Ihnen vielleicht helfen. Viel Spaß beim stricken!
25.05.2021 - 07:50
Suzanne skrifaði:
Are the materials listed in grams or meters? If I knit the small below, do I need 350 grams or 350 meters? MATERIALS: DROPS BABY MERINO from Garnstudio (belongs to yarn group A) 350-400-400-450-500-550 color 01, white
11.03.2021 - 02:10DROPS Design svaraði:
Hi Suzanne, The amounts are in grams. Happy knitting!
11.03.2021 - 07:31
Oleksandra skrifaði:
> depending on the size worked, you will have to work either 0 or 1 stitch before (K2 tog, YO) Indeed. - in SECTION 1, first yo row (ROUND 3) starts with k2tog, 1yo, and next yo row (ROW 1) starts with k2tog, 1yo. - in SECTION 3, first yo row (ROUND 3) starts with k2tog, 1yo - same as in previous lace section. But in second yo row (ROW 1) four of six sizes start with additional knit stitch, shifting second yo row forward and BREAKING the lace pattern.
19.12.2020 - 23:34
Sandra skrifaði:
Where can I find the sizing in US inches the S-M doesn’t give that information
28.11.2020 - 09:40DROPS Design svaraði:
Dear Sandra, since the patterns are for many different countries, each with their sizing guide, you should check the scheme with measurements below the pattern. If in doubt between 2 sizes, it's better to choose the larger one. Happy knitting!
29.11.2020 - 17:56
Isabel Fernández Vicioso skrifaði:
Muy entretenida la realización de este modelo, ha quedado genial¡¡¡
22.10.2020 - 15:08
Dea skrifaði:
Buongiorno, nella sezione 5 c'è qualcosa che non quadra. Al Giro 1 dice "GIRO 1: * 288-12-13-13-13-13 maglie diritto, 0-1-1-1-1-1-1 gettati *, lavorare *-* fino alla fine del giro (= 0-25-26-26-28-30 aumenti) = 288-325-364-364-392-420 maglie. " Se le taglie disponibili sono 6 perchè dove indica i gettati le possibilità sono 7?
13.08.2020 - 20:30DROPS Design svaraði:
Buongiorno Dea. L'indicazione corretta per i gettati è la seguente 0-1-1-1-1-1. La ringraziamo per la segnalazione. Buon lavoro!
17.08.2020 - 21:56
Dea skrifaði:
La domanda che ho fatto prima conta per le sezioni a trafori, in quelle a legaccio sono tutti ferri lavorati a diritto. Scusate se non ho precisato. Grazie.
08.08.2020 - 15:40
Lunar Tides#lunartidestop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stuttum ermum, gatamynstri, garðaprjóni og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 211-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað i hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt i öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja i umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,57. I þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. I næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt i þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). I næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur i sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma i veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur i hálsmáli er prjónaður i hring á hringprjón. Síðan eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka i stykkjum með gatamynstri og garðaprjóni. Prjónuð eru alls 6 stykki, 3 í garðaprjóni og 3 í gatamynstri. Berustykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki sem er prjónað hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki er prjónað i hring á hringprjón. Kantar i ermum eru prjónaðir i hring á sokkaprjóna. KANTUR I HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-115-122-127-134 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn og aukið út 14-15-15-8-13-16 lykkjur jafnt yfir i fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 120-125-130-130-140-150 lykkjur. BERUSTYKKI: Berustykkið er prjónað i stykkjum, fram og til baka með stuttum umferðum í garðaprjóni og gatamynstri þannig: FYRSTA STYKKI (í gatamynstri): UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið slétt og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota þetta prjónamerki síðar þegar prjónaðar eru stuttar umferðir. UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið*-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkja er eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 slétt lykkja. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Prjónið nú fyrsta stykki með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6-7-6-6-6-6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 115-120-125-125-135-145 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 110-115-120-120-130-140 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 12-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt (= 105-110-115-115-125-135 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 100-105-110-110-120-130 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 16-17-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 95-100-105-105-115-125 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 90-95-100-100-110-120 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið 1 lykkju slétt * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 22-21-22-22-22-22 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt (= 85-90-95-95-105-115 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 80-85-90-90-100-110 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 1 lykkju slétt og endar með 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt og næsta umferð byrjar með gatamynstri og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt. Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10-15-10-10-10-10 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast). Prjónið síðustu brugðnu umferðina brugðið út, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir þær 55-55-60-60-65-70 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. UMFERÐ 1: Prjónið * 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 144-150-156-156-168-180 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ANNAÐ STYKKI (í garðaprjóni): Klippið þráðinn frá. Lyftið yfir 72-75-78-78-84-90 lykkjur frá vinstra prjóni á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Annað stykkið er núna prjónað með byrjun frá prjónamerki. UMFERÐ 1: Prjónið* 6-6-3-3-3-3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-52-52-56-60 fleiri lykkjur) = 168-175-208-208-224-240 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú annað stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þannig: UMFERÐ 1 (= réttu): Prjónið slétt þar til 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 161-168-200-200-216-232 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 154-161-192-192-208-224 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 147-154-184-184-200-216 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 140-147-176-176-192-208 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 133-140-168-168-184-200 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 126-133-160-160-176-192 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-8-8-8-8 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 14-21-16-16-16-16 lykkjurnar frá röngu. Prjónið síðustu umferðina frá röngu alveg út, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir 77-77-96-96-104-112 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið síðan hringinn þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið* 7-7-8-8-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 192-200-234-234-252-270 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). ÞRIÐJA STYKKI (í gatamynstri): Klippið þráðinn frá. Lyftið 96-100-117-117-126-135 lykkjur frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Þriðja stykkið er núna prjónað með byrjun frá prjónamerki. Prjónið áfram hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 8-8-9-9-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 216-225-260-260-280-300 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 sléttri lykkju. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Prjónið nú þriðja stykki með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 0-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 10-11-11-11-11-11 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 207-216-250-250-270-290 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 9-9-10-10-10-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-207-240-240-260-280 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 20-19-21-21-21-21 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt (= 189-198-230-230-250-270 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 18-18-20-20-20-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 180-189-220-220-240-260 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið 0-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn * , prjónið frá *-* þar til 28-29-31-31-31-31 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 171-180-210-210-230-250 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 27-27-30-30-30-30 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 162-171-200-200-220-240 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 38-37-41-41-41-41 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt (= 153-162-190-190-210-230 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 36-36-40-40-40-40 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 144-153-180-180-200-220 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-10-10-10-10 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við. Gataumferðina á að halda áfram yfir sig sjálfa á hæðina, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 0-0-1-1-1-1 sléttri lykkju og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkju slétt og næsta umferð byrjar með 1 sléttri lykkju og endar með 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt. Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 18-27-20-20-20-20 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast). Prjónið brugðið til enda á umferð, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir 99-99-120-120-130-140 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið áfram hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 9-9-10-10-10-10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 240-250-286-286-308-330 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). FJÓRÐA STYKKI (í garðaprjóni): Klippið þráðinn frá: Lyftið 120-125-143-143-154-165 lykkjum frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Fjórða stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki. UMFERÐ 1: Prjónið * 10-10-11-11-11-11 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 264-275-312-312-336-360 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú fjórða stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 253-264-300-300-324-348 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 242-253-288-288-312-336 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 231-242-276-276-300-324 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 220-231-264-264-288-312 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 209-220-252-252-276-300 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-209-240-240-264-288 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-12-12-12-12 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 22-33-24-24-24-24 lykkjurnar frá röngu. Prjónið að enda á síðustu umferð frá röngu, þ.e.a.s. prjónið slétt yfir 121-121-144-144-156-168 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu við. Prjónið áfram hringinn þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 11-11-12-12-12-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 288-300-338-338-364-390 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). FIMMTA STYKKI (í gatamynstri): Klippið þráðinn frá. Lyftið 144-150-169-169-182-195 lykkjum frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Fimmta stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki. Prjónið hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 288-12-13-13-13-13 lykkjur slétt, 0-1-1-1-1-1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 0-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 288-325-364-364-392-420 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 sléttri lykkju. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Nú er fimmta stykkið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 1-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 13-15-15-15-15-15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 276-312-350-350-378-406 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 12-13-14-14-14-14 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 264-299-336-336-364-392 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 25-27-29-29-29-29 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið1 slétt lykkja (= 252-286-322-322-350-378 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 24-26-28-28-28-28 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 240-273-308-308-336-364 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið 1-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn * , prjónið frá *-* þar til 37-41-43-43-43 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 228-260-294-294-322-350 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 36-39-42-42-42-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 216-247-280-280-308-336 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 49-53-57-57-57-57 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 slétta lykkju (= 204-234-266-266-294-322 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 48-52-56-56-56-56 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 192-221-252-252-280-308 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. Haldið svona áfram þ.e.a.s. prjónið yfir 12-13-14-14-14-14 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við. Gataumferðir á að halda áfram yfir sig sjálfa á hæðina, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 1-0-1-1-1-1 sléttri lykkju og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkju slétt og næsta gataumferð byrjar með 1 sléttri lykkju og endar með 1 sléttri lykkju. Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 24-39-28-28-28-28 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast). Prjónið brugðið að enda á síðustu umferð frá röngu, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir þær 132-143-168-168-182-196 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 12-13-14-14-14-14 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 312-350-390-390-420-450 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). SJÖTTA STYKKI (í garðaprjóni): Klippið þráðinn frá. Lyftið 156-175-195-195-210-225 lykkjur frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Sjötta stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki. UMFERÐ 1: Prjónið * 312-350-390-15-15-15 lykkjur slétt, 0-0-0-1-1-1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 0-0-0-26-28-30 fleiri lykkjur) = 312-350-390-416-448-480 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt ). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú sjötta stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 13-14-15-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 299-336-375-400-432-464 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 13-14-15-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 286-322-360-384-416-448 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar til 26-28-30-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 273-308-345-368-400-432 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar til 26-28-30-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 260-294-330-352-384-416 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar til 39-42-45-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 247-280-315-336-368-400 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar til 39-42-45-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 234-266-300-320-352-384 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 13-14-15-16-16-16 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 26-42-30-32-32-32 lykkjurnar frá röngu. Prjónið slétt út umferðina í síðustu umferðinni frá röngu, þ.e.a.s. prjónið slétt yfir þær 143-154-180-192-208-224 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið hringinn þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið. Stykkið mælist ca 23-23-25-25-27-28 cm þar sem það er styst (mælt frá uppfitjunarkant). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 23-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn frá. Færið umferðina um 33-37-41-43-44-46 lykkjur til baka (þ.e.a.s. lyftið síðustu 33-37-41-43-44-46 lykkjum frá hægra prjóni (= hálf ermin) eins og prjóna eigi brugðið yfir á vinstri prjón, setjið 1 prjónamerki hér = byrjun á umferð). Deilið stykkinu hér: Setjið fyrstu 66-74-82-86-88-92 lykkjurnar á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur under ermi, prjónið slétt yfir fyrstu 90-101-113-122-136-148 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur under ermi, prjónið slétt yfir síðustu 90-101-113-122-136-148 lykkjurnar (= bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-218-246-264-296-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli de 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi og færið byrjun á umferðinni að prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út hvoru megin við þau. Stilltu af að prjónaðar séu minnst 6 umferðir garðaprjón eftir garðaprjón á berustykki. Prjónið e.t.v. garðaprjón á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar fram- og bakstykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-8-6-8-6 cm millibili alls 6-6-3-4-3-4 sinnum = 220-242-258-280-308-336 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón þar til fram- og bakstykki mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið garðaprjón í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! KANTUR Á ERMI: Setjið 66-74-82-86-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-82-92-96-100-104 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lunartidestop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.