Lunar Tides |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Baby Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stuttum ermum, gatamynstri, garðaprjóni og stuttum umferðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 211-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað i hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt i öllum umferðum. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja i umferð (t.d. 106 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 7,57. I þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 7. og 8. hverja lykkju. I næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt i þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= 4 lykkjur fleiri). I næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur i sléttprjóni. AFFELLING: Til að koma i veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur i hálsmáli er prjónaður i hring á hringprjón. Síðan eru prjónaðar stuttar umferðir fram og til baka i stykkjum með gatamynstri og garðaprjóni. Prjónuð eru alls 6 stykki, 3 í garðaprjóni og 3 í gatamynstri. Berustykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki sem er prjónað hvort fyrir sig. Fram- og bakstykki er prjónað i hring á hringprjón. Kantar i ermum eru prjónaðir i hring á sokkaprjóna. KANTUR I HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-115-122-127-134 lykkjur á hringprjón 3 með Baby Merino. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 2 umferðir garðaprjón hringinn og aukið út 14-15-15-8-13-16 lykkjur jafnt yfir i fyrstu umferð – sjá ÚTAUKNING-1 = 120-125-130-130-140-150 lykkjur. BERUSTYKKI: Berustykkið er prjónað i stykkjum, fram og til baka með stuttum umferðum í garðaprjóni og gatamynstri þannig: FYRSTA STYKKI (í gatamynstri): UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið slétt og setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð, það á að nota þetta prjónamerki síðar þegar prjónaðar eru stuttar umferðir. UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið*-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkja er eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 slétt lykkja. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Prjónið nú fyrsta stykki með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 6-7-6-6-6-6 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 115-120-125-125-135-145 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 5 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 110-115-120-120-130-140 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið1 lykkju slétt, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 12-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt (= 105-110-115-115-125-135 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 100-105-110-110-120-130 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 16-17-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 95-100-105-105-115-125 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 90-95-100-100-110-120 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið 1 lykkju slétt * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 22-21-22-22-22-22 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt (= 85-90-95-95-105-115 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 80-85-90-90-100-110 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 5 lykkjur færri, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 1 lykkju slétt og endar með 2-1-2-2-2-2 lykkjur slétt og næsta umferð byrjar með gatamynstri og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt. Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 10-15-10-10-10-10 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast). Prjónið síðustu brugðnu umferðina brugðið út, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir þær 55-55-60-60-65-70 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. UMFERÐ 1: Prjónið * 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 144-150-156-156-168-180 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ANNAÐ STYKKI (í garðaprjóni): Klippið þráðinn frá. Lyftið yfir 72-75-78-78-84-90 lykkjur frá vinstra prjóni á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Annað stykkið er núna prjónað með byrjun frá prjónamerki. UMFERÐ 1: Prjónið* 6-6-3-3-3-3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-52-52-56-60 fleiri lykkjur) = 168-175-208-208-224-240 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú annað stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þannig: UMFERÐ 1 (= réttu): Prjónið slétt þar til 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 161-168-200-200-216-232 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar 7-7-8-8-8-8 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 154-161-192-192-208-224 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 147-154-184-184-200-216 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar 14-14-16-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 140-147-176-176-192-208 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 133-140-168-168-184-200 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar 21-21-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 126-133-160-160-176-192 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 7-7-8-8-8-8 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 14-21-16-16-16-16 lykkjurnar frá röngu. Prjónið síðustu umferðina frá röngu alveg út, þ.e.a.s. prjónið sléttar lykkjur yfir 77-77-96-96-104-112 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið síðan hringinn þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið* 7-7-8-8-8-8 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 192-200-234-234-252-270 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). ÞRIÐJA STYKKI (í gatamynstri): Klippið þráðinn frá. Lyftið 96-100-117-117-126-135 lykkjur frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Þriðja stykkið er núna prjónað með byrjun frá prjónamerki. Prjónið áfram hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 8-8-9-9-9-9 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 216-225-260-260-280-300 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 sléttri lykkju. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Prjónið nú þriðja stykki með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 0-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 10-11-11-11-11-11 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 207-216-250-250-270-290 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 9-9-10-10-10-10 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-207-240-240-260-280 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 20-19-21-21-21-21 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt (= 189-198-230-230-250-270 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 18-18-20-20-20-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 180-189-220-220-240-260 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið 0-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn * , prjónið frá *-* þar til 28-29-31-31-31-31 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 171-180-210-210-230-250 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 27-27-30-30-30-30 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 162-171-200-200-220-240 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 38-37-41-41-41-41 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt (= 153-162-190-190-210-230 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 36-36-40-40-40-40 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 144-153-180-180-200-220 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 9-9-10-10-10-10 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við. Gataumferðina á að halda áfram yfir sig sjálfa á hæðina, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 0-0-1-1-1-1 sléttri lykkju og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkju slétt og næsta umferð byrjar með 1 sléttri lykkju og endar með 2-1-1-1-1-1 lykkju slétt. Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 18-27-20-20-20-20 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast). Prjónið brugðið til enda á umferð, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir 99-99-120-120-130-140 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið áfram hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 9-9-10-10-10-10 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 240-250-286-286-308-330 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). FJÓRÐA STYKKI (í garðaprjóni): Klippið þráðinn frá: Lyftið 120-125-143-143-154-165 lykkjum frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Fjórða stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki. UMFERÐ 1: Prjónið * 10-10-11-11-11-11 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 264-275-312-312-336-360 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú fjórða stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 253-264-300-300-324-348 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 11-11-12-12-12-12 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 242-253-288-288-312-336 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 231-242-276-276-300-324 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar til 22-22-24-24-24-24 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 220-231-264-264-288-312 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 209-220-252-252-276-300 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar til 33-33-36-36-36-36 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 198-209-240-240-264-288 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 11-11-12-12-12-12 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 22-33-24-24-24-24 lykkjurnar frá röngu. Prjónið að enda á síðustu umferð frá röngu, þ.e.a.s. prjónið slétt yfir 121-121-144-144-156-168 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu við. Prjónið áfram hringinn þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið * 11-11-12-12-12-12 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 lykkjur fleiri) = 288-300-338-338-364-390 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga að myndast göt). FIMMTA STYKKI (í gatamynstri): Klippið þráðinn frá. Lyftið 144-150-169-169-182-195 lykkjum frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Fimmta stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki. Prjónið hringinn þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 288-12-13-13-13-13 lykkjur slétt, 0-1-1-1-1-1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 0-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 288-325-364-364-392-420 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 0-1-0-0-0-0 lykkjur eru eftir, endið með 0-1-0-0-0-0 sléttri lykkju. UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Nú er fimmta stykkið prjónað með stuttum umferðum fram og til baka í gatamynstri þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 1-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 13-15-15-15-15-15 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 276-312-350-350-378-406 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið þar til 12-13-14-14-14-14 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 264-299-336-336-364-392 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 25-27-29-29-29-29 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið1 slétt lykkja (= 252-286-322-322-350-378 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið brugðið þar til 24-26-28-28-28-28 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 240-273-308-308-336-364 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið 1-0-1-1-1-1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn * , prjónið frá *-* þar til 37-41-43-43-43 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1-2-1-1-1-1 lykkjur slétt (= 228-260-294-294-322-350 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið brugðið þar til 36-39-42-42-42-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 216-247-280-280-308-336 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 7: Prjónið 1 slétta lykkju, * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 49-53-57-57-57-57 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 1 slétta lykkju (= 204-234-266-266-294-322 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 8: Prjónið brugðið þar til 48-52-56-56-56-56 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 192-221-252-252-280-308 prjónaðar lykkjur), snúið stykkinu og herðið á þræði. Haldið svona áfram þ.e.a.s. prjónið yfir 12-13-14-14-14-14 lykkjur færri í hvert skipti sem snúið er við. Gataumferðir á að halda áfram yfir sig sjálfa á hæðina, þess vegna byrjar önnur hver gataumferð með 1-0-1-1-1-1 sléttri lykkju og endar með 1-2-1-1-1-1 lykkju slétt og næsta gataumferð byrjar með 1 sléttri lykkju og endar með 1 sléttri lykkju. Haldið svona áfram þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 24-39-28-28-28-28 lykkjurnar frá röngu (= 12-12-13-13-14-15 gataumferðir þar sem stykkið er breiðast). Prjónið brugðið að enda á síðustu umferð frá röngu, þ.e.a.s. prjónið brugðið yfir þær 132-143-168-168-182-196 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 12-13-14-14-14-14 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þ.e.a.s. það er slegið 1 sinni uppá prjóninn yfir þar sem stuttum umferðum var snúið við) * prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 24-25-26-26-28-30 fleiri lykkjur) = 312-350-390-390-420-450 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt). SJÖTTA STYKKI (í garðaprjóni): Klippið þráðinn frá. Lyftið 156-175-195-195-210-225 lykkjur frá vinstra prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. Setjið eitt prjónamerki hér (= byrjun á umferð). Sjötta stykkið er prjónað með byrjun frá prjónamerki. UMFERÐ 1: Prjónið * 312-350-390-15-15-15 lykkjur slétt, 0-0-0-1-1-1 uppsláttur *, prjónið frá *-* hringinn alla umferðina (= 0-0-0-26-28-30 fleiri lykkjur) = 312-350-390-416-448-480 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið (uppslátturinn er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt ). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið nú sjötta stykkið með stuttum umferðum fram og til baka í garðaprjóni þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 13-14-15-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 299-336-375-400-432-464 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt þar til 13-14-15-16-16-16 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 286-322-360-384-416-448 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 3: Prjónið slétt þar til 26-28-30-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 273-308-345-368-400-432 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 4: Prjónið slétt þar til 26-28-30-32-32-32 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 260-294-330-352-384-416 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 5: Prjónið slétt þar til 39-42-45-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 247-280-315-336-368-400 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. UMFERÐ 6: Prjónið slétt þar til 39-42-45-48-48-48 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (= 234-266-300-320-352-384 lykkjur), snúið stykkinu, herðið á þræði. Haldið svona áfram, þ.e.a.s. prjónið yfir 13-14-15-16-16-16 lykkjur færri í hvert skipti sem stykkinu er snúið við, þar til prjónuð hefur verið 1 umferð yfir síðustu 26-42-30-32-32-32 lykkjurnar frá röngu. Prjónið slétt út umferðina í síðustu umferðinni frá röngu, þ.e.a.s. prjónið slétt yfir þær 143-154-180-192-208-224 lykkjur sem eftir eru í umferð að prjónamerki, snúið stykkinu. Prjónið hringinn þannig: Byrjið við prjónamerki (= byrjun á umferð). UMFERÐ 1: Prjónið slétt. UMFERÐ 2: Prjónið brugðið. Stykkið mælist ca 23-23-25-25-27-28 cm þar sem það er styst (mælt frá uppfitjunarkant). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 23-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Klippið þráðinn frá. Færið umferðina um 33-37-41-43-44-46 lykkjur til baka (þ.e.a.s. lyftið síðustu 33-37-41-43-44-46 lykkjum frá hægra prjóni (= hálf ermin) eins og prjóna eigi brugðið yfir á vinstri prjón, setjið 1 prjónamerki hér = byrjun á umferð). Deilið stykkinu hér: Setjið fyrstu 66-74-82-86-88-92 lykkjurnar á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur under ermi, prjónið slétt yfir fyrstu 90-101-113-122-136-148 lykkjurnar (= framstykki), setjið næstu 66-74-82-86-88-92 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur under ermi, prjónið slétt yfir síðustu 90-101-113-122-136-148 lykkjurnar (= bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 196-218-246-264-296-320 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli de 8-8-10-10-12-12 nýrra lykkja undir hvorri ermi og færið byrjun á umferðinni að prjónamerki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar auka á út hvoru megin við þau. Stilltu af að þú prjónir minnst 6 umferðir garðaprjón eftir gatamynstri á berustykki. Prjónið e.t.v. garðaprjón á fram- og bakstykki þar til prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir garðaprjón. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar fram- og bakstykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 4-4-8-6-8-6 cm millibili alls 6-6-3-4-3-4 sinnum = 220-242-258-280-308-336 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjón þar til fram- og bakstykki mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið garðaprjón í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum – sjá AFFELLING! KANTUR Á ERMI: Setjið 66-74-82-86-88-92 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 74-82-92-96-100-104 lykkjur. Prjónið 4 umferðir garðaprjón hringinn. Fellið af með sléttum lykkjum. Prjónið hinn kant á ermi á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (76)
Marita wrote:
Jeg strikker str. XL. Maskeantall för 6. biten (riller) skal strikkes er 390 masker. Neste ökning er ved hver 26. maske,. Kan ikke faa det til aa bli 26 masker ökt, men bare 15 masker. Slik at totalt maskeantall för forkortede pinner strikkes blir 405 og ikke 416. Er det riktig?
24.06.2020 - 00:05DROPS Design answered:
Hei Marita, Det ser ut som dere har rett og det blir 15 økte masker og dere derfor har 405 masker på pinnen. God fornøyelse!
24.06.2020 - 07:51Janka wrote:
Jestem na etapie zakończenia Sekcji 2, robiłam rzędy skrócone wg instrukcji przedstawionej na filmie a pomimo to powstały całkiem spore dziury. Jak mam ich uniknąć?
16.06.2020 - 12:30DROPS Design answered:
Witaj Jano, w rzędach skróconych, jak obracasz robótkę, musisz mocno zacisnąć nitkę. Zobacz filmy video dot. rzędów skróconych, które są dla tego wzoru (różne sposoby wykonania rzędów skróconych). Filmy znajdziesz pod schematycznym rysunkiem na dole wzoru. Pozdrawiamy!
16.06.2020 - 13:58Alexandra Shirley Hansen wrote:
Hej igen... jeg tror, at jeg gør det rigtigt nu. (Hvis det ikke virker nu, så dropper jeg det). TAK for at denne service findes, at vi altid kan få hjælp. Hilsen Alexandra.
11.06.2020 - 08:51Alexandra Shirley Hansen wrote:
Er det noget jeg ikke forstår? Jeg er lige begyndt på dette fine bluse. På omgang 3 ved vendepindene, skal jeg stoppe 12 masker før, og strikke 2 m og derved vil der være 10 m masker mindre tilbage på pinden ( altså 110 m)... men der står, at jeg skal have 115 tilbage. Hvad er det, at jeg ikke forstår? Alexandra
08.06.2020 - 23:43DROPS Design answered:
Hej Alexandra, hvilken størrelse strikker du, så skal vi prøve at se på den :)
10.06.2020 - 15:16Rebecca wrote:
I'm trying to make Lunar Tides sweater. What do it mean when the instructions say" turn the piece, tighten the strand". I assume it's a short row but I'm used to using the German short row method. What does "tighten the strand " mean? I've been knitting for 40 years and have never seen such instructions. I've watched your short row videos, but I don't know if "tighten the strand" is shown, as there's no audio.
04.06.2020 - 23:31DROPS Design answered:
Dear Rebecca, in this video you can see at time code 00:44 when we turn piece, and when we tighten the strand (to avoid hole at the transition): 00:51 slip 1 stitch, 00:58 titghen the strand and work next stitch. Happy knitting!
05.06.2020 - 07:38Marita wrote:
Vedr. pinnetykkelse: " For mange masker paa 10 cm skift til tykkere pinner og for faa masker skift til tynnere pinner" staar det i alle Drops-oppskrifter. Skulle det ikke väre omvendt?
03.06.2020 - 16:31DROPS Design answered:
Hei Marita, Hvis du har for mange masker på 10 cm på prøvelappen blir plagget for lite hvis du følger maskeantall i oppskriften - du bruker flere masker på 10 cm enn anbefalt. Derfor trenger du tykkere pinner (da strikker du 10 cm med færre masker). Og omvendt, med for få masker på prøvelappen. God fornøyelse!
04.06.2020 - 08:21Deb Molitz wrote:
Hello - Making the Large. In Section 6 when I reduce each row by 16 stitches I wind up with 42 stitches on a right side row and 26 stitches on the next wrong side row. The pattern states that I should have 32 stitches remaining to be worked Please help explain what the appropriate number of stitches should be or if I\'m reading the pattern incorrectly. Thank you. Deb
30.05.2020 - 17:26DROPS Design answered:
Dear Mrs Molitz, you should work the short rows from 375 to 30 sts in size L (= 18 short rows leaving 15 sts unworked) - and from 416 to 32 sts in size XL (= 24 short rows leaving 16 sts unworked). Hope this helps. Happy knitting!
02.06.2020 - 09:34Kathi wrote:
Dear Drops Team I'm knitting size XL, and I think there's a mistake with the increases at the beginning of section 6: If I knit *Knit 26, yarn over 1* to the end of the round, I get 15 increases, not 26. Shouldn't it be *knit15, yarn over 1* ? That would be the logical continuation from the previous sections. Thanks, Kathi
13.05.2020 - 18:11DROPS Design answered:
Dear Kathi, thanks for your feedback, pattern has been now edited. Happy knitting!
17.08.2020 - 10:40Leonard Micheline wrote:
Bonjour, Juste pour dire bravo bravo pour les modèles, super bravo pour les explications détaillés (même si parfois je n'arrive pas à suivre) , vous êtes géniales, un grand merci Cordialement
04.05.2020 - 09:32Martina wrote:
Es werden zum Stricken des Pullis zwei verschiedene Nadelstärken benannt, doch mit welcher Nadelstärke führe ich die Maschenprobe aus?
30.04.2020 - 10:06DROPS Design answered:
Liebe Martina, mit den größeren Nadeln = Nr 3,5 sollen Sie die Maschenproben stricken, damit die 23 M x 30 R glatt rechts gestrickt = 10 x 10 cm messen. Mehr über Maschenprobe lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!
30.04.2020 - 10:41