Eco Tote#ecototebag |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Hekluð taska með gatamynstri og stuðlahópum úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris.
DROPS 211-28 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LOFTLYKKJA: Ef þú heklar yst á heklunálinni þá kemur loftlykkjan oft til með að verða of stíf. 1 loftlykkja á að vera álíka löng og breiddin á 1 fastalykkju/stuðull. HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð með fastalykkjum er hekluð 1 loftlykkja, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1. fastalykkju. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju í umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðlum eru heklaðar 3 loftlykkjur, þessar 3 loftlykkjur koma ekki í stað 1. stuðul í umferð. Umferðin endar með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 stuðul með því að hekla 2 stuðla í eina lykkju. Aukið út um 1 stuðul í lykkjuna á undan og á eftir prjónamerki í hvorri hlið (= 4 lykkjur fleiri í umferð). ÚTAUKNING-2: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 130 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 14) = 9,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að hekla 2 stuðla í ca 9. hverja lykkju. 3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL: Heklið 1 stuðul í fyrstu lykkju, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið 1 stuðul til viðbótar alveg eins í hvora af næstu 2 lykkjum, en dragið síðasta uppsláttinn í gegnum allar 4 lykkjurnar á heklunálinni (= 1 lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring neðan frá og upp. Að lokum er botninn heklaður saman. TASKA: Heklið 114 loftlykkjur með heklunál 4,5 með Bomull-Lin eða Paris og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju sem var hekluð í umferð – sjá LOFTLYKKJA. UMFERÐ 1: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju – sjá HEKLLEIÐBEININGAR = 114 fastalykkjur í umferð. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 57 fastalykkjur (= 57 fastalykkjur á milli prjónamerkja). UMFERÐ 2-5: Heklið 1 stuðul í hverja fastalykkju, JAFNFRAMT í hverri umferð er aukið út um 1 stuðul hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-1 =130 stuðlar. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið áfram með 1 stuðul í hvern stuðul þar til stykkið mælist 9 cm frá uppfitjunarkanti. Næsta umferð er hekluð þannig: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul og aukið út um 14 stuðla jafnt yfir í umferð – sjá ÚTAUKNING-2 = 144 stuðlar. Nú er mynstrið heklað þannig: Heklið A.1 (sýnir hvernig umferðin byrjar og endar), A.2 alls 36 mynstureiningar í umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið hekluð til loka á hæðina, endurtakið 2 síðustu umferðirnar þar til stykkið mælist ca 32 cm – stillið af þannig að endað sé eftir umferð sem er eins og síðasta umferð í A.2. Klippið frá. Heklið nú fram og til baka í hvorri hlið á tösku þannig: Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í stuðuð á undan síðustu 4 loftlykkjubogum í umferð og heklið mynstur frá réttu þannig: A.3, A.4 yfir næstu 7 loftlykkjuboga, A.5 yfir næstu loftlykkjuboga + stuðul á eftir loftlykkjuboga. Haldið áfram svona fram og til baka þar til A.3 og A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju í stuðul á eftir 10. loftlykkjuboga, takið frá eftir A.5 sem var heklað í þessari hlið á stykkinu. Heklið mynstur þannig: A.3, A.4 yfir næstu 7 loftlykkjuboga, A.5 yfir næstu loftlykkjuboga + stuðul á eftir loftlykkjuboga. Nú eiga að vera 10 loftlykkjubogar á milli A.5 og A.3 mitt á töskunni á milli hliða sem voru heklaðar. Haldið áfram svona fram og til baka þar til A.3 til A.5 hefur verið heklað til loka á hæðina. Klippið frá og festið enda. BOTN HEKLAÐUR SAMAN: Snúið stykkinu þannig að réttan liggi að réttu og heklið botninn saman neðst niðri meðfram fyrstu loftlykkjuröð sem var hekluð. Heklið í gegnum bæði lögin með byrjun frá prjónamerki í byrjun á umferð og heklið 1 fastalykkju í hverja loftlykkju. Klippið frá og festið enda. AXLARÓL: Snúið aftur stykkinu þannig að heklað sé frá réttu. UMFERÐ 1: Festið þráðinn vel með 1 keðjulykkju í annarri hliðinni, í miðju stuðulinn (= 4 loftlykkjubogar í hvorri hlið). Heklið 3 loftlykkjur (= 1 stuðull) – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 4 stuðla um hvern af næstu 4 loftlykkjubogum, heklið 72 loftlykkjur (passið uppá að loftlykkjurnar séu ekki heklaðar of fast, loftlykkjuröðin á að mælast 45 cm), hoppið yfir 10 loftlykkjuboga mitt á töskunni á milli hliða, heklið 4 stuðla um hvern af 8 loftlykkjubogum meðfram annarri hliðinni, heklið 72 loftlykkjur (passið uppá að loftlykkjurnar séu ekki heklaðar of fast, loftlykkjuröðin á að mælast 45 cm), hoppið yfir 10 loftlykkjuboga mitt á töskunni á milli hliða, heklið 4 stuðla um hvern af síðustu 4 loftlykkjubogum í umferð. Nú eru 32 stuðlar í hvorri hlið og 72 loftlykkjur fyrir axlaról í hvorri hlið = 208 lykkjur. UMFERÐ 2: Heklið * 1 stuðul í hvern stuðul þar til 2 stuðlar eru eftir á undan fyrstu loftlykkju, heklið 3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL – sjá útskýringu að ofan, heklið 1 stuðul í hverja af næstu 70 loftlykkjum (þ.e.a.s. það er eftir 1 loftlykkja á undan næsta stuðli), heklið til viðbótar 3 stuðlar verða 1 stuðull, heklið 1 stuðul í hvern af næstu 14 stuðlum *, heklið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð = 200 stuðlar í umferð. UMFERÐ 3: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið nú innanverða axlarólina um loftlykkjuröðina, kantar og 10 loftlykkjuboga þannig: Heklið í annarri hliðinni þannig: UMFERÐ 1: Byrjið með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju á innanverðu af annarri axlarólinni, heklið 1 stuðul í hverja og eina af 72 loftlykkjum – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR, heklið 3 stuðla um hverja af næstu 3 umferðum (= meðfram hlið á A.3/A.5), heklið 2 stuðla um næstu umferð, heklið 3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL alveg eins og áður, en nú er heklaður 1 stuðull í síðustu umferð og 2 stuðlar um fyrstu af 10 loftlykkjubogum. Haldið áfram með 2 stuðla til viðbótar um þennan loftlykkjuboga og heklið 4 stuðla um hvern af næstu 8 loftlykkjubogum, heklið 2 stuðla um 10. loftlykkjuboga, heklið 3 STUÐLAR VERÐA 1 STUÐULL alveg eins og áður, en það eru heklaðir 2 stuðlar um síðasta loftlykkjubogann og 1 stuðul um næstu umferð, heklið 2 stuðla til viðbótar um þessa umferð, heklið 3 stuðla um hverja af næstu 3 umferðum. UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju í hverja lykkju. Klippið frá og festið enda. Heklið á sama hátt í kringum hitt opið á axlarólinni. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #ecototebag eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 211-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.