MARIE THERESE skrifaði:
Bonjour je ne comprends pas vos diminutions 2 devant .pouvez vous m expliquer après avoir laisser les m centr. en attente comment diminuer tous les rangs - 6 fois 1m merci
20.03.2026 - 16:47
MARIE THERESE skrifaði:
Bonjour effectivement je me suis rendue compte qu'il n y avait pas de raglan dans ce modèle excusez-moi de vous avoir fait perdre du temps pour rien. MERCI surtout pour vos conseils et bonne journée avec toutes mes excuses
05.03.2026 - 10:31
MARIE THERESE skrifaði:
Bonjour comment vous diminuez 1 maille en raglan pour 3 et 2 mailles je les tricote ensemble à 3m des bords mais pour 1m comment SVP MERCI
04.03.2026 - 08:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Marie-Thérèse, est-il possible que vous tricotiez un autre modèle que celui-ci? Il n'y a pas d'emmanchures raglan ici. À moins que vous ne parliez des emmanchures? Si tel est le cas alors pour les emmanchures, on doit rabattre les mailles (pas les diminuer) en début de rang de chaque côté: rabattez les 3 premières mailles du rang, terminez le rang et tournez; rabattez les 3 premières mailles, terminez le rang = vous avez rabattu 1 x 3 m de chaque côté. Rabattez ensuite 1 x 2 m de chaque côté de la même façon puis 1 à 3 fois 1 m de chaque côté de la même façon. Bon tricot!
05.03.2026 - 09:16
GUIBERT skrifaði:
Je ne compreds pas vos diminutions je tricote le modèle ai248 j'ai 103 m et 14 diminutions soit 7.34 çà veut dire que sur le même rang je fais les 14 diminutions à la 7è , puis 13è ou 14è m, puis 20ème /21è m etc... jusqu'à mes 14 diminutions est ce bien çà MERCI pour votre patience à répondre à toutes nos questions ...bonne jornée
18.02.2026 - 08:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guibert, pensez à utiliser la petite calculatrice que vous trouverez en bas à droite de la page, vous verrez ainsi le calcul exact et comment diminuer. Bon tricot!
19.02.2026 - 08:17
GUIBERT skrifaði:
J ai decidé de faire le modèle ai248 en taille L fait avec 350G de drops AIR soit 7 pelotes soit 1050mètres. Je veux le faire avec brushed ALPACA SILK 1 FIL Je prends combien de pelotes sachant que ce sont des 25g j ai pensé à _ 8 pelotes soit 200g et 1120mètres est-ce bon? merci
16.02.2026 - 19:36DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guibert, pensez à utilisez le convertisseur qui fait le calcul tout seul :) Il vous faudra effectivement 200 g Brushed Alpaca Silk (soit 8 pelotes) pour la taille L. Bon tricot!
17.02.2026 - 15:19
GUIBERT skrifaði:
Je voudrais faire c pull en point de riz faut il prendre les mêmes explications en ce qui concerne le nombre de mailles à monter et faut il prendre plus de laine merci
15.02.2026 - 11:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Guibert, vérifiez que vous avez bien le bon échantillon à la fois en largeur et en hauteur, si tel est le cas, la quantité de laine devrait être la même sinon, il vous faudra probablement ajuster , votre magasin saura vous aider et vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
17.02.2026 - 14:33
Gaby skrifaði:
Bonsoir aprés les diminutions encolure, doit-on continuer les 3 mailles jersey coté encolure jusqu'en haut de l'ouvrage ?merci.
03.02.2026 - 21:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Gaby, tout à fait, retrouvez sous DIMINUTIONS–2 (encolure devant). comment tricoter les diminutions de l'encolure pour les 2 épaules. Bon tricot!
04.02.2026 - 17:23
Jayne skrifaði:
Please can you explain the A1 pattern in rows as i am not clear from the diagram? Many thanks
18.01.2026 - 09:15DROPS Design svaraði:
Dear Jayne, starting from the right side, work A.1 as follows: (knit all stitches) on first row, then on 2nd row (from the wrong side), repeat (K1, P1) all the row. You will get rib 1 stitch in stocking stitch (1st stitch A.1), 1 stitch in garter stitch (2nd stitch A.1). Happy knitting!
19.01.2026 - 10:10
Mauduit skrifaði:
Bonjour , je souhaite tricoter ce modèle en Brushed Alpaca Silk 1 fil aiguille n°5 et en côtes perlées .Es-ce que je peux suivre ce modèle ? Sinon pouvez-vous m'en proposer un autre . Merci de votre réponse . Bien à vous
03.04.2025 - 16:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mauduit, tant que vous avez le même échantillon vous pouvez probablement suivre les indications de ce modèle, les indications du devant et du dos sont en cm, donc indépendants du nombre de rangs en côtes fantaisie; pensez juste que le point utilisé peut affecter la quantité nécessaire. Les manches se tricotent ici en jersey, si votre échantillon est juste en largeur et en hauteur, il vous suffira de suivre les indications sans avoir à ajuster/ adapter. Bon tricot!
04.04.2025 - 07:48
Letizia skrifaði:
Grazie per la risposta, forse c'è bisogno di una correzione: Mettere ora in attesa su un ferma maglie le 17-17-19-21-23-25 maglie centrali per lo scollo, e finire ogni spalla separatamente. v = per la spalla rimangono 18-21-22-25-29-32 maglie. Proseguire finché il lavoro non misura 62-64-66-68-70-72 cm; intrecciare le maglie. Lavorare l’altra spalla in modo uguale. Non sono riportate 27 maglie né le diminuzioni ❤️grazie ancora
01.02.2025 - 23:54
Rainy Day Sweater#rainydaysweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með áferðamynstri úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-5 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 89 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 7,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku á hálsmáli á framstykki): Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur, þessar 3 lykkjur halda áfram í sléttprjóni upp úr meðfram kanti í hálsmáli. Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið lykkjum á undan lykkjum sem eru settar á þráð fyrir hálsmáli (vinstri öxl) þannig: Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (að lykkjum sem eru settar á þráð), prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið síðustu 3 lykkjurnar á prjóni í sléttprjóni. Fækkið lykkjum á eftir lykkjum sem eru settar á þráð fyrir hálsmáli (hægri öxl) þannig: Prjónið 3 lykkjur í sléttprjóni, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið út umferðina. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 89-97-103-113-125-137 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 12-14-14-16-18-20 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚRTAKA-1 = 77-83-89-97-107-117 lykkjur. Prjónið A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 43-44-45-46-47-48 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkju 1-1-2-2-2-3 sinnum = 65-71-75-83-93-101 lykkjur. Haldið áfram með A.1 þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Fellið af miðju 27-27-29-31-33-35 lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á næstu umferð frá hálsmáli þannig: 1 lykkja 1 sinni = 18-21-22-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Setjið nú miðju 17-17-19-21-23-25 lykkjurnar á 1 þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú lykkjum í hverri umferð frá réttu þannig: 1 lykkja 6 sinnum – SJÁ ÚRTAKA-2 (úrtaka í hálsmáli) = 18-21-22-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Stykkið skiptist þegar fellt er af fyrir ermakúpu og síðan er það prjónað fram og til baka. Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjóna 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið í sléttprjóni. Í fyrstu umferð í sléttprjóni er fækkað um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjón, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, svo ekki myndist gat. Aukið út með 3½-3½-3-3-2-2 cm millibili alls 11-12-13-13-15-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-49-48-45-44 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af mitt undir ermi), prjónið síðan ermina fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til eftir eru 8 cm = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 92-106 lykkjur á hringprjón 4,5 í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði og passið uppá að heildar lykkjufjöldinn sé deilanlegur með 2). Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 9 cm. Fellið síðan af. Brjótið niður stroffið efst í hálsi að innanverðu á stykkinu. Saumið stroffið niður þannig að það myndist uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði stífur og sveigist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rainydaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.