Sand Tickles Jacket#sandticklesjacket |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Delight og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og klukkuprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-24 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning A.1 er prjónuð yfir kantlykkjur að framan, A.2 er prjónað í laskalínu, A.3 er prjónað í hlið á fram- og bakstykki og A.4 er prjónað mitt undir ermi. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR (fram og til baka): Laskalína og kantar að framan er prjónað í klukkuprjóni eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.1 til A.4. Þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu. Til að fá tvöföldu áhrifin, prjónið rendur með til skiptis 1 umferð með Alpaca og 1 umferð með Delight þannig: * Prjónið 1 umferð frá réttu með Alpaca, færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninn, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá réttu. Prjónið síðan 1 umferð frá réttu með Delight. Prjónið 1 umferð frá röngu með Alpaca, færið síðan lykkjurnar til baka á hringprjóninn, þannig að næsta umferð sé einnig prjónuð frá röngu. Prjónið síðan 1 umferð frá röngu með Delight *, prjónið frá *-*. Þegar prjónað er í hring á ermi er prjónuð * 1 umferð með Delight, síðan 1 umferð með Alpaca *, prjónið frá *-*. ÚTAUKNING-1 (á við um laskalínu útaukningu): Aukið út í hverri umferð með Alpaca. Þ.e.a.s. aukið er út í annarri hverri umferð, aukið út bæði frá réttu og frá röngu. Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við hvert A.2 (= 8 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð. Nýjar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Öll útaukning er gerð í umferð með Alpaca frá réttu. Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan A.3. 1 uppsláttur, 1 lykkja brugðið, A.3, 1 lykkja brugðið, 1 uppsláttur (= alls 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt! Nýjar lykkjur eru prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.4 þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan A.4, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, A.4, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjurnar eins og áður. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9-8-8½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 118-133-139-145-151-157 lykkjur (meðtaldar 8 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 1 lykkju GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja slétt (= kantur að framan), * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* yfir 9-12-12-15-15-18 lykkjur, 2 lykkjur brugðið. Laskalína: Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* yfir 10 lykkjur, 1 lykkja slétt. Ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið *-* yfir 6-6-9-6-9-6 lykkjur, 2 lykkjur brugðið. Laskalína: Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* yfir 10 lykkjur, 1 lykkja slétt. Bakstykki: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið *-* yfir 18-27-27-33-33-39 lykkjur, 2 lykkjur brugðið. Laskalína: Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* yfir 10 lykkjur, 1 slétt lykkja. Ermi: Prjónið * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið *-* yfir 6-6-9-6-9-6 lykkjur, 2 lykkjur brugðið. Laskalína: Prjónið * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* yfir 10 lykkjur, 1 lykkja slétt. Hægra framstykki: Prjónið 2 lykkjur brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið *-* yfir 9-12-12-15-15-18 lykkjur, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 lykkja garðaprjón. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Haldið svona áfram í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3. Setjið 1 prjónamerki eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Í næstu umferð frá réttu er prjónað og aukið út jafnt yfir þannig: Vinstra framstykki: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, A.1 (= 7 lykkjur = kantur að framan), 11-14-14-17-17-20 lykkjur brugðið og aukið út 1-1-2-2-3-3 lykkjur. Ermi: Prjónið A.2 (= 11 lykkjur = laskalína), 8-8-11-8-11-8 lykkjur brugðið og aukið út 2 lykkjur, A.2 yfir 11 lykkjur (= laskalína). Bakstykki: Prjónið 20-29-29-35-35-41 lykkjur brugðið og aukið út 2-2-4-4-6-6 lykkjur. Ermi: Prjónið A.2 yfir 11 lykkjur (= laskalína), 8-8-11-8-11-8 lykkjur brugðið og aukið út 2 lykkjur, A.2 yfir 11 lykkjur (= laskalína). Hægra framstykki: Prjónið 11-14-14-17-17-20 lykkjur brugðið og aukið út 1-1-2-2-3-3 lykkjur, A.1 yfir 7 lykkjur og 1 lykkja garðaprjón. = 126-141-151-157-167-173 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og garðaprjón yfir garðaprjón. Prjónið nú stykkið áfram í RENDUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í 3. umferð í A.2 byrjar útaukning fyrir laskalínu þannig: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við A.2 í annarri hverri umferð alls 26-28-32-36-40-44 sinnum – sjá ÚTAUKNING-1 = 334-365-407-445-487-525 lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.1a og A.2a á hæðina. Þegar stykkið mælist 19-21-22-24-26-28 cm frá prjónamerki, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með Delight frá röngu, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, A.1a eins og áður, 45-50-55-61-68-76 lykkjur slétt, setjið næstu 69-75-85-93-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, 90-99-111-121-137-151 lykkjur slétt, setjið næstu 69-75-85-93-99-103 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7 lykkjur undir ermi, 45-50-55-61-68-76 lykkjur, A.1a eins og áður og endið með 1 lykkju garðaprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-229-251-273-303-333 lykkjur. Haldið áfram með rendur, lykkjur brugðið frá réttu, sléttar lykkjur frá röngu og klukkuprjón þannig: Næsta umferð er prjónuð frá réttu með Alpaca þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, A.1a eins og áður, 48-53-58-64-71-79 lykkjur brugðið, A.3 (= 1 lykkja = mitt undir ermi), 96-105-117-127-143-157 lykkjur brugðið, A.3 yfir næstu lykkju (= mitt undir ermi), 48-53-58-64-71-79 lykkjur brugðið, A.1a eins og áður og 1 lykkja garðaprjón. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.3a á hæðina. Þegar stykkið mælist 5 cm frá skiptingu, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvert A.3 – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 7 sinnum = 238-257-279-301-331-361 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu, stillið af að næsta umferð sé prjónuð með Delight frá röngu, aukið út jafnt yfir þannig: Prjónið 1 lykkju garðaprjón, A.1a eins og áður, 55-60-65-71-78-86 lykkjur slétt og aukið út 1-2-0-0-2-0 lykkjur, A.3a eins og áður, 110-119-131-141-157-171 lykkjur slétt og aukið út 0-0-0-2-1-2 lykkjur, A.3a eins og áður, 55-60-65-71-78-86 lykkjur slétt og aukið út 1-2-0-0-2-0 lykkjur, A.1a eins og áður og endið með 1 lykkju garðarpjón = 240-261-279-303-336-363 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið nú stykkið til loka með Alpaca þannig: Prjónið 1 lykkja garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið *-* þar til 10 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið *-* yfir 6 lykkjur, 1 lykkja slétt og endið með 1 lykkju garðaprjón. Þ.e.a.s. A.3a er síðan prjónað í sléttprjóni. Prjónið svona þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 69-75-85-93-99-103 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 76-82-92-100-106-110 lykkjur. Snúið stykkinu, þannig að nú er prjónað með sléttum lykkjum frá röngu hringinn. Prjónið A.4 yfir miðju lykkjuna mitt undir ermi, þær lykkjur sem eftir eru, eru prjónaðar slétt frá röngu í röndum. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið A.4a á hæðina. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.4a – sjá ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 2½-2½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 12-13-17-20-22-23 sinnum = 52-56-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-37-36-35-33-32 cm frá skiptingu skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út 2-1-2-0-1-2 = 54-57-60-60-63-66 lykkjur. Prjónið nú stykkið til loka meðAlpaca. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið) , stillið af að klukkuprjónslykkjan mitt undir ermi sé prjónuð brugðið (prjónið nú áfram frá röngu). Fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu þegar stroffið mælist 4 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sandticklesjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.