Tina skrifaði:
Als je in het rond gaat breien heb je minderingen voor de armsgaten maar als je verder leest waar alle delen apart staan (dus zo kan je ook in 2 delen breien) zijn er geen armsgatminderingen precies... Ik wil in 2 delen breien maar dan kloppen de cijfers precies niet...Als je op 90 steken je markeerdraad plaatst, dan min 6 steken en nog eens min 3 steken voor de armsgaten, kom ik aan 81 steken. Als de uitleg verder gaat voor achterpand starten ze met 84 steken... hoe kan dit aub?
28.04.2020 - 16:01DROPS Design svaraði:
Dag Tina,
Het werk wordt vanaf het begin in de rondte gebreid en vanaf de armsgaten worden het voor- en achterpand apart verder gebreid. Op het voor- en achterpand worden even later ook de beide schouders apart verder gebreid. Als je vanaf het begin de voor- en achterpanden heen en weer wilt breien, moet je de helft van de steken opzetten voor 1 pand, en 2 extra kantsteken erbij doen, Deze kantsteken vallen weg bij het in elkaar naaien van de zijnaden. Welke maat brei je? As je 90 steken hebt en 6 steken mindert voor de armsgaten, dan houd je 82 steken over voor het achterpand.
28.04.2020 - 19:28
Jytte skrifaði:
Kan man bruge opskriften til at lave en sweater med 3/4 ærme ? jeg tænker dem som påsatte ved ærmegabene (og måske uden indtagning ?)
22.04.2020 - 10:17DROPS Design svaraði:
Hej Jytte, Ja absolut kan du det, det er bare at fortsætte ærmekanten, og fordelen ved at strikke ovenfra og ned er at du kan prøve blusen og stoppe når du har den ærmelængde du synes om :)
22.04.2020 - 11:17
Helen Medin skrifaði:
Håller på och stickar denna väst i stil XL och enligt mönster ska garnåtgång vara 150 gr och kan tala om att det stämmer definitivt inte! Har mätt stickfastighet och den stämmer.......... det mest beklagliga är att återförsäljaren har inte garnet kvar i samma färgbad, så nu står jag hör med en halvfärdig väst och är utan garn..... MOOORRRRRR
27.03.2020 - 15:00
Milada Stočková skrifaði:
Lovely and simple, I will definitely try it,
24.02.2020 - 07:29
Grete Andersen skrifaði:
Giver I snart opskrifter fri på vestene??? Tk
14.02.2020 - 12:06
Véronique skrifaði:
A porter sur les tee-shirts pour une touche sport .
28.12.2019 - 21:56
Rosella skrifaði:
Molto giovane e semplice
23.12.2019 - 14:27
Angela skrifaði:
Super praktisch so ein Teil
11.12.2019 - 16:38
Golden Treasure#goldentreasurevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti / slipover með hringlaga hálsmáli úr DROPS Melody. Stærð S – XXXL.
DROPS 212-17 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 132 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 16) = 8,25. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 7. og 8. hverja lykkju slétt saman. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg, síðan er stykkinu skipt og prjónað er fram og til baka á framstykki og bakstykki. Kantur í hálsmáli og kantur í handvegi er prjónað í hring á stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-140-156-172-188-208 lykkjur á hringprjón 5,5 með Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 16-16-20-24-24-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 116-124-136-148-164-180 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 58-62-68-74-82-90 lykkjur, látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið í sléttprjóni þar til stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð eru felldar af 4-4-4-6-6-6 lykkjur fyrir handveg í hvorri hlið, fellið af 2-2-2-3-3-3 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki. Prjónið síðan framstykki og bakstykki hvort fyrir sig með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. BAKSTYKKI: = 54-58-64-68-76-84 lykkjur. Prjónið eins og áður og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið 2 sinnum = 50-54-60-64-72-80 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið og fellt er af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 13-15-17-19-22-26 lykkjur, fellið af næstu 24-24-26-26-28-28 lykkjur slétt og prjónið út umferðina. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Vinstri öxl er prjónuð áfram héðan. VINSTRI ÖXL (bakstykki): = 13-15-17-19-22-26 lykkjur. Byrjið frá röngu og prjónið eins og áður út umferðina. Fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu og prjónið út umferðina = 12-14-16-18-21-25 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. HÆGRI ÖXL (bakstykki): = 13-15-17-19-22-26 lykkjur. Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður út umferðina. Fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá röngu og prjónið út umferðina = 12-14-16-18-21-25 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu og fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. FRAMSTYKKI: = 54-58-64-68-76-84 lykkjur. Prjónið eins og áður og fækkið um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið 2 sinnum = 50-54-60-64-72-80 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umferð frá réttu skiptist stykkið og fellt er af fyrir hálsmáli þannig: Prjónið eins og áður yfir fyrstu 18-20-22-24-27-31 lykkjur, fellið af næstu 14-14-16-16-18-18 lykkjur slétt, prjónið eins og áður yfir síðustu 18-20-22-24-27-31 lykkjur. Héðan eru axlirnar prjónaðar hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá. Hægri öxl er prjónuð áfram héðan. HÆGRI ÖXL (framstykki): = 18-20-22-24-27-31 lykkjur. Prjónið eins og áður með byrjun frá röngu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 12-14-16-18-21-25 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu eða brugðnum lykkjum frá röngu. VINSTRI ÖXL (framstykki): = 18-20-22-24-27-31 lykkjur. Prjónið eins og áður með byrjun frá réttu og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 12-14-16-18-21-25 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist alls 52-54-56-58-60-62 cm og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu eða brugðnum lykkjum frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju meðfram kanti í hálsi með hringprjón 5,5. Byrjið frá réttu við axlasaum. Prjónið upp ca 68-68-72-72-76-76 lykkjur (verður að vera deilanlegt með 4). Prjónið stroff með 2 lykkjum slétt, 2 lykkjur brugðið í ca 2½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HANDVEGI: Prjónið upp lykkjur innan við 1 lykkju meðfram handveg með stuttum hringprjóni 5,5. Byrjið frá réttu við handveg. Prjónið upp ca 64-80 lykkjur (verður að vera deilanlegt með 4). Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 2½ cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið hinn kantinn í handvegi á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #goldentreasurevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.