DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

New Girl

Prjónað vesti / slipover úr DROPS Air. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með stroffi og hringlaga hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 215-39
DROPS Design: Mynstur ai-280
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-200-200-250-250-300 g litur 26, beige

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5456.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 174 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 10) = 17,4. Í þessu dæmi þá er prjónuð ca 16. og 17. hver lykkja slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handveg. Síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli og kantur í kringum handveg á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 156-172-184-200-220-240 lykkjur á hringprjón 4 með Air. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu. Prjónið stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist ca 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna 5, prjónið sléttprjón og fækkið um 8 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 148-164-176-192-212-232 lykkjur – sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki á eftir næstu 74-82-88-96-106-116 lykkjum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, það á að nota þau síðar þegar fella á af fyrir handvegi.

Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm frá uppfitjunarkanti.
ATHUGIIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umferð er fellt af fyrir handvegi, byrjið 3-3-3-4-4-4 lykkjur á undan fyrra prjónamerki. Fellið af 6-6-6-8-8-8 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), prjónið eins og áður þar til 3-3-3-4-4-4 lykkjur eru eftir á undan næsta prjónamerki, fellið af næstu 6-6-6-8-8-8 lykkjur (prjónamerki situr mitt í þessum lykkjum) og prjónið út umferðina. Héðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 68-76-82-88-98-108 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka og fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 2-5-6-7-10-14 sinnum = 60-62-66-70-74-76 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 40-42-44-46-48-50 cm (nú eru eftir ca 8 cm að loka máli). Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjóni fyrstu 21-21-22-24-25-26 lykkjur, fellið af næstu 18-20-22-22-24-24 lykkjur og prjónið síðustu 21-21-22-24-25-26 lykkjur. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá – hægri öxl er prjónuð frá röngu héðan.

HÆGRI ÖXL FRAMSTYKKI:
= 21-21-22-24-25-26 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með byrjun frá röngu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá réttu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 17-17-18-20-21-22 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af og klippið frá.

VINSTRI ÖXL FRAMSTYKKI:
= 21-21-22-24-25-26 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með byrjun frá réttu og fellið af lykkjur fyrir hálsmáli í byrjun á umferð frá röngu þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 2 sinnum = 17-17-18-20-21-22 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist alls 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti. Fellið af og klippið frá.

BAKSTYKKI:
= 68-76-82-88-98-108 lykkjur.
Prjónið sléttprjón og fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið í byrjun á hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og fellið af 1 lykkju 2-5-6-7-10-14 sinnum = 60-62-66-70-74-76 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 46-48-50-52-54-56 cm (nú eru eftir ca 2 cm til loka). Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Prjóni fyrstu 18-18-19-21-22-23 lykkjur, fellið af næstu 24-26-28-28-30-30 lykkjur og prjónið síðustu 18-18-19-21-22-23 lykkjur. Axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig, ekki klippa þráðinn frá – vinstri öxl er prjónuð frá röngu héðan.

VINSTRI ÖXL BAKSTYKKI:
= 18-18-19-21-22-23 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með byrjun frá röngu og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá réttu = 17-17-18-20-21-22 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af við framstykkin. Fellið af og klippið frá.

HÆGRI ÖXL BAKSTYKKI:
= 18-18-19-21-22-23 lykkjur.
Prjónið sléttprjón með byrjun frá réttu og fellið af 1 lykkju í byrjun á næstu umferð frá röngu = 17-17-18-20-21-22 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 48-50-52-54-56-58 cm frá uppfitjunarkanti, stillið af við framstykkin. Fellið af og klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið frá réttu við annan axlasauminn. Notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 76 til 92 lykkjur innan við 1 lykkju í kringum allt opið á hálsmáli (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjum slétt og 2 lykkjum brugðið þar til stroffið mælist 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið frá réttu þar sem stykkið skiptist við handveg. Notið stuttan hringprjón 4 og prjónið upp ca 84 til 124 lykkjur í kringum allan handveginn (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4). Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stroffið mælist 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

Prjónið kant í kringum hinn handveginn á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 215-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Irena Pęczek wrote:

Właśnie zakończyłam moją kamizelkę. Mogę w niej chodzić. Jest wykończona dobrze. Praca trwała 2 lata.

07.04.2024 - 13:59

DROPS Design answered:

Ireno, wielkie brawa za wytrwałość. Przyznam się, że ja również mam tą kamizelkę. Jest bardzo praktyczna, cieplutka i leciutka. Niech się dobrze nosi. Pozdrawiamy!

08.04.2024 - 09:04

country flag Liz wrote:

Is there a difference between pattern College Days 210-28 and New Girl 215-39? they look very similar. I have knitted New Girl and like it very much.

06.04.2023 - 18:19

DROPS Design answered:

Dear Liz, New Girl is a variation of College Days. The armholes and the shoulders are slightly different and so is the shaping of the neck, but they are pretty similar in general. Happy knitting!

06.04.2023 - 22:57

country flag Jacqui wrote:

For front, if I decrease two stitches one time, the front will be wonky. It should be decrease two stitches TWO times. Then if I decrease one stitch ten times, that is a total decrease of 14 stitches. 98 stitches minus 14 stitches equals 84 stitches, not 74 stitches. Do I decrease as in the pattern so that I have 84 stitches or decrease so I have 74 stitches?

28.05.2022 - 22:35

DROPS Design answered:

Dear Jacqui, you need to decrease two stitches one time on each side (each armhole). Then you decrease 1 stitch ten times on each side as well. So, you will decrease 24 stitches (12 on each side). 98-24 = 74 stitches. Happy knitting!

29.05.2022 - 22:44

country flag Christine wrote:

Sorry - I am still confused by this: “ at the beginning of each row as follows: Bind off 2 stitches 1 time and 1 stitch 2-5-6-7-10-14 times = 60-62-66-70-74-76 stitches.”

25.04.2022 - 21:42

DROPS Design answered:

Dear Christine, you cast off 2 stitches at the beginning of the first row (RS) and the next row (WS). Then, you cast off 1 stitch at the beginning of the next row (RS) and the beginning of the following row (WS). You cast off 1 stitch in a total of 2-5... rows (duplicate the amount of rows, because 1 time = from the RS and the WS), depending on your size. Happy knitting!

25.04.2022 - 21:52

country flag Betsy wrote:

How much ease in xxl size? Does the finished size of 48 3/4 inches reflect the incorporated ease?

23.11.2021 - 19:05

DROPS Design answered:

Dear Betsy, measure a similar garment you have and like the shape and compare to the measurements in the chart, then choose your own desired ease - read more here. Happy knitting!

24.11.2021 - 07:38

country flag Christine wrote:

Bonjour J'ai rabattu les mailles pour l'emmanchure. Je vais commencer à tricoter le devant. Est ce que je dois couper le fil ? Merci pour votre aide.

16.11.2021 - 14:47

DROPS Design answered:

Bonjour Christine, pas forcément, vous pouvez simplement tourner et tricoter le rang suivant sur l'envers sur la moitié des mailles (et glisser l'autre moitié des mailles en attente). Bon tricot!

16.11.2021 - 16:27

country flag Sara wrote:

Hvad er forskellen på denne og model ai-246?

27.09.2021 - 14:16

DROPS Design answered:

Hei Sara. Ikke så veldig mye. Fargen, pinnestr på vrangbord, 210-28 er litt lengre i de største størrelsene og litt forskjell på forstykket og bakstykket. mvh DROPS Design

28.09.2021 - 15:02

country flag Anna wrote:

In the materials description is written knitting needles 4.5mm for the rib, but in the pattern description it says 4mm. Which size should I use?

01.09.2021 - 22:00

DROPS Design answered:

Dear Anna, rib should be worked with needle size 4 mm - pattern will be edited, thanks for your feedback. Happy knitting!

02.09.2021 - 08:55

country flag Avril wrote:

I’m so sorry, I don’t understand what this means: Bind off 2 stitches 1 time and 1 stitch 2-5-6-7-10-14 times?

26.08.2021 - 02:11

DROPS Design answered:

Dear Avril, at the beg of next 2 rows cast off 2 sts (= 2 sts 1 time on each side), then cast off at the beg of rows on each side (= both from RS and from WS): 1 stitch 2 times in size S (= cast off 1 stitch at the beg of next 4 rows), 5 times in size M (= cast off 1 st at the beg of next 10 rows), etc.. Happy knitting!

26.08.2021 - 08:44

country flag Helen Gleeson wrote:

Where can I find the measurements for each size?

21.06.2021 - 11:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gleeson, all finished measurements in each size are shown in the chart at the bottom of the page; measure a similar garment you have and like the shape and compare them to the chart to find the matching size. Read more about size and chart here. Happy knitting!

21.06.2021 - 13:19