Paula Kinnear skrifaði:
Hi. Just wanted to confirm something : The first increase of the yoke is 3 cm from the marker. The second increases just says 'When the piece measures 7-8-9-9-9-10 cm increase as follows:' so can I confirm that the second and subsequent increases of the yoke are measured from the neck edge and not the marker? The reason I am comfuses is the paragraph before states "Insert 1 marker after the rib, mid-back; the yoke will be measured from this marker!" Can you clarify please? Paula
07.03.2020 - 19:55DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Kinnear, measurements on yoke are taken from the marker added at the end of neck edge, ie after rib. first increases = 3 cm from marker and then later too (it says before "yoke will be measured from this marker". Happy knitting!
09.03.2020 - 10:56
Nina skrifaði:
Trenger man både settepinner og liten rundpinner til ermene, eller velger man? Ser valgfritt ut i oppskriften, men under «pinner» øverst ser det ut til at man trenger begge deler.
17.02.2020 - 21:42DROPS Design svaraði:
Hei Nina, Vi nevner begge typer pinner fordi man kan bruke liten rundpinne når man har nok masker; mange synes dette er lettere enn å bare bruke settepinner. Settepinner må man bruke når det er mindre masker. God fornøyelse!
18.02.2020 - 07:21
Trudy Smith skrifaði:
Like to knit this pattern
04.02.2020 - 18:55
Carina Pedersen skrifaði:
Grøn er min ynglings farve og har længe ønsket mig en grøn hjemmestrikket bluse, så ville blive rigtig glad hvis den her kommer i den nye kollektion :-)
11.01.2020 - 14:23
Betina Kauer skrifaði:
Sehr schönes Modell, ich freue mich schon auf die Anleitung.
21.12.2019 - 23:47
Anna Wang skrifaði:
Very beautiful color.
15.12.2019 - 00:57
Sofie skrifaði:
Gorgeous! Love these colours and a nice simple style.
10.12.2019 - 22:28
Mountain Moss#mountainmosssweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Big Delight. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (mynsturteikning A.3 til A.5 á við um stærð XL, XXL og XXXL). ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 76 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 19. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 19. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð 18. og 19. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð = 2 lykkjur færri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar, síðan er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 76-76-80-84-88-92 lykkjur á hringprjón 4,5 með Big Delight. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Þegar stroffið er tilbúið, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-4-8-8-12-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 76-80-88-92-100-108 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki eftir stroff mitt að aftan, það á að mæla berustykkið frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki í öllum stærðum, prjónið mynstur eftir mynsturteikningu og aukið út þannig: ÚTAUKNING 1: Prjónið A.1 (= 4 lykkjur) alls 19-20-22-23-25-27 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka eru 114-120-132-138-150-162 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 115-120-135-140-150-165 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S, L, XL, XXXL eru auknar út 1-3-2-3 lykkjur og í stærð M og XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-9-10 cm aukið út þannig: ÚTAUKNING 2: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 23-24-27-28-30-33 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 161-168-189-196-210-231 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 160-170-190-198-210-234 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er fækkað um 1 lykkju, í stærð M, L, XL og XXXL er aukið út um 2-1-2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15-15-15-17 cm, prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S, M og L: Prjónið mynstur og aukið út þannig: ÚTAUKNING 3: Prjónið A.2 (= 5 lykkjur) alls 32-34-38 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 224-238-266 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 18-20-22 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið mynstur og aukið út þannig: ÚTAUKNING 3: Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) alls 33-35-39 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 264-280-312 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 266-280-315 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð XL og XXXL eru auknar út 2-3 lykkjur og í stærð XXL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-21-24 cm, prjónið þannig: ÚTAUKNING 4: Prjónið * 3-2-3 mynstureiningar A.5, prjónið 1 mynstureiningu A.4 *, prjónið *-* 9-13-11 sinnum, síðan endar umferðin mismunandi eftir stærðum eins og útskýrt er að neðan: Stærð XL: Endið umferð með A.5 yfir síðustu 14 lykkjur (= 2 mynstureiningar). Stærð XXL: Endið umferð með A.4 yfir síðustu 7 lykkjur (= 1 mynstureining). Stærð XXXL: Endið umferð með 5 lykkjur slétt og prjónið síðustu 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka eru 284-308-336 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 24-26-28 cm. Haldið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan. ALLAR STÆRÐIR: Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 32-34-38-41-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 64-69-76-83-90-98 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 48-50-57-59-64-70 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-8-8-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 32-35-38-42-45-49 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-154-168-182-196-216 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 29 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-28-30-32-32 lykkjur jafnt yfir = 160-176-196-112-228-248 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-50-57-59-64-70 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna/stuttan hringprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-8-8-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-65-67-72-80 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur í hlið undir ermi (= 3-4-4-4-4-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 3½-3-2-1½-1½-1 cm millibili alls 7-8-11-11-13-16 sinnum = 40-42-43-45-46-48 lykkjur. Prjónið með sléttprjóni þar til ermin mælist 30-29-28-26-24-23 cm (styttri ermi í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-2-5-3-6-4 lykkjur jafnt yfir = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Ermin mælist ca 33-32-31-29-27-26 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mountainmosssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.