Mariluz skrifaði:
Me gustaría tener este patrón con el hilo Safran, normalmente llevo la talla S, que talla me aconseja con este hilo, gracias de antemano un saludo.
22.03.2024 - 15:40
Dorthe Johannesen skrifaði:
Hvorfor kan jeg ikke finde diagrammet på den her opskrift?
13.03.2023 - 18:38
MAIGROT Marceline skrifaði:
Bonjour Quand vous écrivez qu’il faut tricoter tant de centimètres de hauteur dans l’empiètement après A1 faut-il mesurer depuis le premier rang de côtes où depuis le marqueur après les côtes ?
03.03.2023 - 19:03DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Maigrot, on mesure l'empiècement à partir du marqueur placé après le col. Bon tricot!
06.03.2023 - 09:01
Janne skrifaði:
Hei Må bare si at denne blusen har jeg "forelsket" meg i. Strikket flere av disse. Enkel og grei oppskrift, med fin fasong i plagget. Tusen takk Drops Design.
20.08.2022 - 07:41
Janne skrifaði:
Er det sånn å forstå at en kan bruke alle garn alternativene i garn gruppen B til denne oppskriften?
26.08.2021 - 10:29DROPS Design svaraði:
Hei Janne, Ja det er korrekt. Det er lurt å strikke en prøvelapp før du begynner uansett, og justere pinnestørrelsen hvis nødvendig. Hilsen Drops Team
26.08.2021 - 13:42
Trine skrifaði:
Strikker str m Efter 1.udtagn efter diagram A1 har jeg 161 m som opskriften siger. Efter 2.udtagn efter diagram A2 er der 2 masker for meget !! Gør nøjagtigt som beskrevet - forklaring ønskes !!
19.08.2021 - 20:00DROPS Design svaraði:
Hej Trine. Du tar ut 2 m i varje rapport av A.2 och du stickar A.2 26 gånger på p. Då har du alltså tagit ut 2m x 26= 52 m. 161+52= 213 m. Mvh DROPS Design
24.08.2021 - 13:31
Trine skrifaði:
Jeg strikker str. m og efter første udtagning efter diagram A1 har jeg som opskriften siger 161 masker men efter næste udtagn A2 passer det ikke mere. Der er 2 masker for meget !!! Jeg gør nøjagtig som der står - forklaring ønskes !
19.08.2021 - 19:56DROPS Design svaraði:
Hej Trine. Se svar ovan. Mvh DROPS Design
24.08.2021 - 13:32
Connie Enghoff skrifaði:
Hej, igen, I behøver ikke at svare Pia og jeg, jeg har fundet ud af det og hjulpet Pia. Jeg må dog sige at til så simpel en bluse er det meget kompliceret forklaret.....
25.03.2021 - 16:17
Connie Enghoff skrifaði:
Hej, efter rapport A2 skal der være 233 masker, men 175 + 2x29 og en maske ret til sidst giver 234 masker. Jeg har en kunde dear spørger om hjælp!
25.03.2021 - 10:29
Pia skrifaði:
Jeg strikker i str Large. Jeg er med på mønstret, men forstår ikke hvordan jeg kommer videre efter de 8 cm på A1 ( 182 masker) Forstår ganske enkelt ikke 5-1...... og hvor mange cm førend A3 Håber spørgsmålet giver mening
25.03.2021 - 01:58
White Dove#whitedovetop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum og hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-3 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 54. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 54. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi 53. og 54. hver lykkja prjónuð slétt saman. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-3-9-10-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 110-115-125-130-135-145 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Héðan er nú mælt! BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð (= 22-23-25-26-27-29 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hefur verið aukið út um 44-46-50-52-54-58 lykkjur = 154-161-175-182-189-203 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 6-6-7-8-9-10 cm. Prjónið nú mynstur eftir stærðum þannig: Stærð S: Prjónið A.3 hringinn í umferð (= 22 mynstureiningar með 7 lykkjum). Stærð M og L: Prjónið A.2 þar til 5-1 lykkjur eru eftir (= 26-29 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 5-1 lykkjur slétt. Stærð XL, XXL og XXXL: Prjónið A.1 þar til 2-4-3 lykkjur eru eftir (= 36-37-40 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 2-4-3 lykkjur slétt. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 198-213-233-254-263-283 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 10-11-12-14-15-17 cm. Prjónið nú mynstur eftir stærðum þannig: Stærð S: Prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 28 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt. Stærð M, L og XL: Prjónið A.2 þar til 3-5-2 lykkjur eru eftir (= 35-38-42 mynstureiningar með 6 lykkjum), 3-5-2 lykkjur slétt. Stærð XXL og XXXL: Prjónið A.1 þar til 3-3 lykkjur eru eftir (= 52-56 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 3-3 lykkjur slétt. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 254-283-309-338-367-395 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 256-280-304-338-366-396 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S og XXXL er aukið út um 2-1 lykkjur jafnt yfir, í stærð M, L og XXL er fækkað um 3-5-1 lykkjur jafnt yfir og í stærð XL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-17-19-21-23-25 cm. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 36-40-43-48-54-60 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 56-60-66-73-75-78 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið næstu 72-80-86-96-108-120 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-60-66-73-75-78 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 36-40-43-48-54-60 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 160-176-192-212-240-264 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar eru upp í hliðum undir ermi. Nú eru 80-88-96-106-120-132 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 8 cm millibili alls 4 sinnum = 176-192-208-228-256-280 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33 cm frá skiptingu, aukið út 24-28-32-32-40-44 lykkjur jafnt yfir = 200-220-240-260-296-324 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 56-60-66-73-75-78 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af nýjum 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 64-68-76-83-87-90 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn í 4 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn í 4 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1-½ cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum = 56-60-68-73-77-80 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist 15-14-12-11-9-7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-3-3-4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-72-76-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitedovetop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.