DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5808.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Free Flow Sweater

Prjónuð peysa úr DROPS Bomull-Lin eða DROPS Paris. Stykkið er prjónað með gatamynstri. Stærð XS - XXL.

DROPS 213-17
DROPS Design: Mynstur l-156
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

EFNI:
DROPS BOMULL-LIN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
400-450-500-550-600-650 g litur 03, ljós beige

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
500-500-550-650-700-750 g litur 26, beige

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón/mynstur.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir garðaprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 726.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5808.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón upp að handveg. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið og framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 146-166-174-190-198-218 lykkjur á hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 73-83-87-95-99-109 lykkjur. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
Prjónið mynstur þannig: * 3-2-4-2-4-3 lykkjur slétt, A.1 yfir næstu 60-72-72-84-84-96 lykkjur (= 5-6-6-7-7-8 mynstureiningar með 12 lykkjum), A.2 yfir næstu 6 lykkjur (= 1 mynstureining með 6 lykkjum), 4-3-5-3-5-4 lykkjur slétt *, prjónið *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Haldið áfram hringinn með mynstur þannig:
ATH: Í 5. umferð í A.1 er prjónuð 1 lykkja fleiri með sléttum lykkjum á milli prjónamerkja í hlið og fyrstu lykkju í A.1.
Í 15. umferð í A:2 er prjónuð 1 lykkja færri með sléttum lykkjum á milli síðustu lykkju í A.2 og prjónamerki í hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm – stillið af að næsta umferð sé umferð í mynsturteikningu án mynsturs, fækkið um 2 lykkjur í hvorri lið, þ.e.a.s. 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið.

BAKSTYKKI:
= 71-81-85-93-97-107 lykkjur. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja garðaprjón, 1-0-2-0-2-1 lykkjur slétt, prjónið mynstur eins og áður yfir næstu 66-78-78-90-90-102 lykkjur, 2-1-3-1-3-2 lykkjur slétt, 1 kantlykkja garðaprjón. Haldið svona áfram fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina. Þegar síðasta gatamynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 47-49-51-53-55-57 cm, fellið af miðju 23-23-23-25-25-27 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja = 23-28-30-33-35-39 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af. Prjónið hina öxlina alveg eins.

FRAMSTYKKI:
= 71-81-85-93-97-107 lykkjur. Prjónið mynstur alveg eins og á bakstykki.
Þegar stykkið mælist 39-41-42-44-45-47 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina. Þegar síðasta gatamynstrið hefur verið prjónað til loka er haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið.
Þegar stykkið mælist 43-45-46-48-49-51 cm, setjið miðju 13-13-13-15-15-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af lykkjur í hverri umferð frá hálsi þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 1 sinni = 23-28-30-33-35-39 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-52-54-56-58-60 cm, fellið af.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

ERMI:
Fitjið upp 35-35-37-39-41-41 lykkjur á sokkaprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjón 5,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Prjónið mynstur þannig: 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt, A.3 (= 9 lykkjur) 13-13-14-15-16-16 lykkjur slétt. Prjónið mynstur í hring svona. Þegar ermin mælist 8-8-8-9-9-9 cm, aukið út 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili alls 10-11-12-13-13-15 sinnum = 55-57-61-65-67-71 lykkjur. Þegar ermin mælist 43-41-40-39-39-36 cm, er ekki byrjað á fleiri gatamynstrum á hæðina (þannig að ekki er fellt af á ermi mitt í gatamynstri). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar ermin mælist 48-46-45-44-44-41 cm, fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki innan við 1 kantlykkju garðaprjón á fram- og bakstykki og innan við affellingarkantinn á ermi. Klippið frá og festið enda.
Bomull-Lin verður jafnara og fallegra eftir að það hefur verið þvegið. Þegar stykkið hefur verið prjónað til loka, skolið það, strekkið út í rétt mál – sjá mynsturteikningu og þurrkið flatt.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp 62 til 72 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 5 með Bomull-Lin eða Paris. Prjónið 4 umferðir garðaprjón, prjónið síðan 1 umferð slétt. Fellið af með brugðnum lykkjum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður brugðið í næstu umferð (þ.e.a.s. frá röngu) svo að það myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman

symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (33)

country flag Vera wrote:

Hallo! Beim Ärmel steht A4? Ich nehme an es ist A3 gemeint? Vielen Dank für die Antwort und liebe Grüße Vera

21.02.2024 - 15:47

DROPS Design answered:

Liebe Vera, ja genau, danke für den Hinweis, eine Korrektur erfolgt. Viel Spaß beim stricken!

21.02.2024 - 16:31

country flag Kristine wrote:

Hello! What size is model wearing?

07.01.2024 - 11:29

DROPS Design answered:

Dear Kristine, the model is wearing an M size. Happy knitting!

07.01.2024 - 18:18

country flag Sara Maria Luisa Pompei wrote:

Buongiorno, Ho un problema. Sto seguendo il modello Free Flow Sweater della drop ma con cotone Belle verde muschio. Ho fatto tutti i calcoli in base alla lunghezza di un gomitolo di filato ma ora, dopo aver lavorato in tondo i primi 8,5 cm, ho già esaurito un gomitolo. E ne ho comprati solo 8. Facendo i conti, rimarrebbero incompiute le maniche. Mi chiedevo se potesse darmi una mano a capire quanti gomitoli devo acquistare

15.03.2023 - 12:10

DROPS Design answered:

Buonasera Sara, quale taglia sta eseguendo? Ha controllato che il suo campione corrispondesse a quello indicato prima di iniziare il lavoro? Buon lavoro!

15.03.2023 - 16:56

country flag Hjørgunn Brown wrote:

Finner ikke diagrammet

01.02.2023 - 16:37

DROPS Design answered:

Hei Hjørgunn, Diagrammene finner du på bunnen av oppskriften. God fornøyelse!

02.02.2023 - 06:55

country flag Karin wrote:

Er staat bij het voorpand bij 46 cm hoogte zet 13 steken op een hulpdraad voor de hals(maat m). Ga dan met de schouders apart verder en kant bij een hoogte van 54 cm alle steken af. Maar hoe kant ik de steken die op de hulpdraad staan en volgens mij dus niet verder zijn gebreid dan af?

22.06.2021 - 20:44

country flag Argentina Tomarchio wrote:

Buongiorno, mi scuso ma non riesco a comprendere la NOTA relativa al 5 giro del CORPO. Al quinto giro l'istruzione dice di lavorare una maglia diritto in più ma nello schema il totale delle maglie di A1 + A2 fa 17 (5+12) quindi sembrerebbe una in meno non in più. Inoltre dice di lavorare questa maglia in più tra il segnapunti a lato (?) e la prima maglia di A1 ma tra il segnapunti e lo schema A1 ci sono 4 maglie a diritto. Grazie mille della pazienza :) Saluti Argentina

16.06.2021 - 08:36

DROPS Design answered:

Buonasera Argentina, deve lavorare a maglia rasata la 1° maglia di A.1, poi lavorare le 12 maglie di A.1 e poi continuare. Buon lavoro!

16.06.2021 - 19:45

country flag Marlène wrote:

Bonjour, et merci 😊 je viens de finir mon pull... j‘adore... vos explications sont tellement claires et en plus toutes vos vidéos sont vraiment bien faites. C’est un vrai plaisir! Je suis enchantée par votre site. Un grand bravo pour cet immense travail 👍 Cordiales salutations de la Suisse

28.05.2021 - 19:51

country flag Cecile Dadachanji wrote:

Bonjour, je n\'arrive pas a passer le 5eme rang. Il y aurait-il une autre maniere de l'expliquer. Si on tricotte A1 comme sur les 12 premieres mailles comme indique, le motif est decale. J ai bien lu votre reponse a Rachel-Louise mais pour moi ca marche sur les repetitions de A1 mais pas sur les 12 premieres mailles. Help!

16.03.2021 - 20:54

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dadachanji, la 1ère maille de A.1 doit être tricotée en jersey, autrement dit, tricotez les 12 m du 1er A.1 comme dans le diagramme (= avec la 1ère du 1er en jersey), et tricotez la 12ème maille du 1er A.1 avec la 1ère m du A.1 suivant (ou de A.2 à la fin des motifs). Vous avez ainsi toujours bien 12 m dans chaque A.1 (la diminution à la fin de A.1 = 1ère m du A.1 suivant). Bon tricot!

17.03.2021 - 08:17

country flag Valentina wrote:

Buongiorno. Ma è possibile eseguire il lavoro con i ferri normali invece che con quelli circolari? Grazie

30.11.2020 - 12:08

DROPS Design answered:

Buongiorno Valentina, se preferisce può lavorarlo in piano, adattando lo schema. Buon lavoro!

30.11.2020 - 13:25

country flag Irene wrote:

Salve, vorrei istruzioni un po' piu' dettagliate sul bloccaggio finale. Devo completamente immergere il maglione nell'acqua, tamponarlo con un asciugamano e farlo asciugare in piano?

08.09.2020 - 08:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Irene. Sì esatto, deve bagnare completamente il capo, far uscire più acqua possibile senza torcerlo e farlo asciugare in piano portandolo alle misure indicate. Buon lavoro!

08.09.2020 - 13:35