Signs of Spring |
||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 213-4 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 116 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 3,2. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2 og A.4). LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við mynsturbekk meðfram hverri laskalínu, þ.e.a.s. aukið út 1 lykkju hvoru megin við A.3 (= 8 lykkjur fleiri í útauknings umferð). Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki og mitt undir ermum): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri við prjónamerki). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 116-120-124-128-136-140 lykkjur á hringprjón 2,5 með BabyMerino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-40-40-36-40-40 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 152-160-164-164-176-180 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt án útaukninga. Setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. Berustykkið er mælt frá prjónamerki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið fyrstu umferð þannig (frá vinstri laskalínu að aftan þegar stykkið er mátað): Prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið 53-57-59-59-65-67 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið 5 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi), prjónið A.1 (= 9 lykkjur), prjónið 1-3-4-4-3-4 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 9 lykkjur), A.2 (= 33-33-33-33-41-41 lykkjur mitt að framan), A.1 (= 9 lykkjur), 1-3-4-4-3-4 lykkjur sléttprjón, prjónið A.1 (= 9 lykkjur) og endið með 5 lykkjur sléttprjón mitt á ermi. Nú eru 168-176-180-180-192-196 lykkjur í umferð. Prjónið næstu umferð eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Í næstu umferð byrjar mynstur eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.3 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 53-57-59-59-65-67 sléttprjón (= bakstykki), aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.3 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 5 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.3 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 1-3-4-4-3-4 lykkjur sléttprjón, A.3 (= 10 lykkjur), A.4 (= 43-43-43-43-51-51 lykkjur mitt að framan), A.3 (= 10 lykkjur), 1-3-4-4-3-4 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.3 (= 10 lykkjur), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 5 lykkjur sléttprjón (= mitt á ermi) og aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 13-16-19-24-28-31 sinnum (meðtaldar útaukningar útskýrðar í fyrstu umferð) og síðan í 4. hverri umferð alls 8-8-8-8-7-7 sinnum. Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu eru 336-368-396-436-472-500 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur með sama hætti án útaukningar, þar til berustykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá prjónamerki við háls. Klippið frá. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Setjið fyrstu 10-10-11-10-9-7 lykkjur á þráð fyrir ermi (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar), prjónið sléttprjón yfir næstu 95-105-111-123-137-149 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 67-73-81-89-93-95 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), haldið áfram í sléttprjóni og mynstri yfir næstu 107-117-123-135-149-161 lykkjur (= framstykki), setjið 57-63-70-79-84-88 lykkjur sem eftir eru á sama þráð og fyrri hluti á ermi í byrjun á umferð og fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-258-282-314-342 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón yfir bakstykki fram að fyrsta prjónamerki. Umferðin byrjar núna hér. Prjónið síðan sléttprjón hringinn, með A.3 og A.4 yfir miðju 63-63-63-63-71-71 lykkjur mitt að framan eins og áður. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 5 cm millibili alls 5 sinnum í hvorri hlið = 242-262-278-302-334-362 lykkjur. Prjónið áfram þar til fram- og bakstykki mælist 27 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Í næstu umferð er fækkað um 12 lykkjur yfir kaðla í A.3 og A.4 (fækkið um 4 lykkjur yfir hvern og einn af 2 stóru köðlunum og 1 lykkju yfir hvern og einn af 4 litlu köðlunum og fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman) = 230-250-266-290-322-350 lykkjur eftir í umferð. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur jafnframt því sem aukið er út um 70-74-78-86-98-106 lykkjur jafnt yfir = 300-324-344-376-420-456 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 67-73-81-89-93-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 3 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-93-101-107-111 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum og auka út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 1½-1½-1½-1½-1½-2 cm millibili alls 7-7-8-8-7-5 sinnum = 63-69-77-85-93-101 lykkjur. Þegar stykkið mælist 16 cm frá skiptingu, aukið út 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 1 cm millibili alls 21-18-18-14-14-14 sinnum = 105-105-113-113-121-129 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-39-38-36-35-33 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 1 lykkju = 104-104-112-112-120-128 lykkjur. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-44-43-41-40-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (53)
Michela Sali wrote:
Lavorando con i ferri dritti, lo schema del disegno centrale, come lo leggo?
26.01.2024 - 10:17DROPS Design answered:
Buonasera Michela, deve pensare di lavorare sempre come se fosse sul diritto del lavoro. Buon lavoro!
26.01.2024 - 22:26Lourdes wrote:
Disculpen, el error ha sido mío no he tejido A2 en el centro del frente.
29.07.2023 - 21:33Lourdes wrote:
Hola, en la talla XXL , si al comenzar con la aguja del nº 3 el canesú se tienen 176 puntos y al tejer en la primera vuelta se aumentan 6 puntos de A1 . (176+6= 182 puntos) y creo que hay un error en el patrón ya que pone que tiene que haber ¿192 puntos en la aguja ? Saludos
29.07.2023 - 20:49DROPS Design answered:
Hola Lourdes, tienes 6 aumentos (1 en cada repetición de A.1) y 10 aumentos en el A.2 central. Así que en total tienes 192 puntos en la aguja.
31.07.2023 - 18:33Amal wrote:
Hello thank you for responding. I am at the point of dividing for sleeve and body. I’m working on the size XL I have the correct number of stitches but my begging of round ended up in the middle of the left sleeve. In the directions it says to add the last raglan increase at the end which happens to be after the beginning of round marker. I think I shifted the marker every time I increased to raglan. I don’t want to undo my work so if you can give me any input I’d appreciate it. Thanks
09.12.2022 - 17:27DROPS Design answered:
Dear Amal, the initial marker is not moved. How many stitches do you have right now? If you have been increasing after the marker of the beginning of the round, then just check how many stitches are in the sleeves. If they match the instructions of the pattern, you can continue working until the raglan line (after the marker for the beginning) and then cut the thread. Happy knitting!
11.12.2022 - 23:10Amal wrote:
Hi I followed the pattern but I feel like I did something wrong because my beginning of round ended up in the middle of the left sleeve. The pattern said Work A.1 (= 9 stitches), then 53-57-59-59-65-67 which I did but because of the raglan increase the starting point ended up in the middle of the sleeve. The pattern says to cut the strand and mine is in the middle of the left sleeve Why was the pattern written that way?
08.12.2022 - 21:02DROPS Design answered:
Dear Amal, I might misunderstand your question, sorry in advance, but can you tell us more? Which size are you working on and where are you exactly in the pattern? Just after the first round on yoke or do you already have increased all stitches for raglan and are ready to divide piece? Thanks for your comprehension
09.12.2022 - 08:51Lucy wrote:
Hello! I'm sorry, I couldn't understand: diagram A3 has 11 stitches on the picture, but you write A.3 (= 10 stitches). How many stitches does have A3?
13.11.2022 - 15:14DROPS Design answered:
Dear Lucy, A.3 has 10 stitches, the black square does not count as a stitch. Happy knitting!
13.11.2022 - 23:57Kristiina wrote:
Miksi puseron helmassa lisätään silmukoita ennen resoria noin paljon?
01.10.2022 - 17:44DROPS Design answered:
Silmukat lisätään, jotta joustinneuleesta tulisi tarpeeksi joustava.
03.10.2022 - 17:54Nelleke wrote:
Wordt de markeerdraad midden achter geplaats? Omdat er staat dat je moet beginnen vanaf de linker raglan aan de achterkant als het kledingstuk gedragen wordt.
25.09.2022 - 22:10Lene wrote:
De 74 masker man skal tage ud. Inden ribben. Er det kun over retmaskerne eller er det også mønsteret?
21.09.2022 - 18:00DROPS Design answered:
Hej Lene, det er jævnt fordelt over alle retmasker :)
22.09.2022 - 15:00Yvonne wrote:
Når jeg har strikket rib til hals står der man skal tage ud til 160 m i str M. Derefter strikkes A1 og der slår jeg om 6 gange, altså får jeg 6 m mere . Men der står at man skal have 176 m når man har strikket A1 . Hvordan kan det lade sig gøre. Har jeg misforstået noget i opskriften
15.04.2022 - 19:04DROPS Design answered:
Hej Yvonne, husk at der er 10 udtagninger i A.2 :)
21.04.2022 - 15:12