DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Dove

Prjónuð peysa með stuttum ermum og hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 213-3
DROPS Design: Mynstur sk-087
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SKY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-200-250-250-250 g litur 01, hvítur

PRJÓNFESTA:
20 lykkjur á breidd og 26 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Sky
DROPS Sky
74% Alpakka, 18% Polyamide, 8% Ull
frá 1496.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5984.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3.

ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 2) = 54.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 54. hverja lykkju.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.
Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi 53. og 54. hver lykkja prjónuð slétt saman.

ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki):
Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni.

ÚRTAKA (á við um ermi):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

AFFELLING:
Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur á hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 2 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-3-9-10-11-13 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 110-115-125-130-135-145 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Héðan er nú mælt!

BERUSTYKKI:
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú mynstur A.1 hringinn í umferð (= 22-23-25-26-27-29 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka hefur verið aukið út um 44-46-50-52-54-58 lykkjur = 154-161-175-182-189-203 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 6-6-7-8-9-10 cm.
Prjónið nú mynstur eftir stærðum þannig:
Stærð S: Prjónið A.3 hringinn í umferð (= 22 mynstureiningar með 7 lykkjum).
Stærð M og L: Prjónið A.2 þar til 5-1 lykkjur eru eftir (= 26-29 mynstureiningar með 6 lykkjum), prjónið 5-1 lykkjur slétt.
Stærð XL, XXL og XXXL: Prjónið A.1 þar til 2-4-3 lykkjur eru eftir (= 36-37-40 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 2-4-3 lykkjur slétt.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 198-213-233-254-263-283 lykkjur í umferð. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 10-11-12-14-15-17 cm.
Prjónið nú mynstur eftir stærðum þannig:
Stærð S: Prjónið A.3 þar til 2 lykkjur eru eftir (= 28 mynstureiningar með 7 lykkjum), prjónið 2 lykkjur slétt.
Stærð M, L og XL: Prjónið A.2 þar til 3-5-2 lykkjur eru eftir (= 35-38-42 mynstureiningar með 6 lykkjum), 3-5-2 lykkjur slétt.
Stærð XXL og XXXL: Prjónið A.1 þar til 3-3 lykkjur eru eftir (= 52-56 mynstureiningar með 5 lykkjum), prjónið 3-3 lykkjur slétt.
Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru 254-283-309-338-367-395 lykkjur í umferð.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 256-280-304-338-366-396 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S og XXXL er aukið út um 2-1 lykkjur jafnt yfir, í stærð M, L og XXL er fækkað um 3-5-1 lykkjur jafnt yfir og í stærð XL er lykkjufjöldinn ekki jafnaður út) – munið eftir ÚTAUKNING/ÚRTAKA.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 15-17-19-21-23-25 cm.
Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig:
Prjónið fyrstu 36-40-43-48-54-60 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 56-60-66-73-75-78 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið næstu 72-80-86-96-108-120 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 56-60-66-73-75-78 lykkjur á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur í hlið undir ermi, prjónið síðustu 36-40-43-48-54-60 lykkjur (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 160-176-192-212-240-264 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar eru upp í hliðum undir ermi. Nú eru 80-88-96-106-120-132 lykkjur á milli prjónamerkja á framstykki og bakstykki. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð síðar þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með ca 8 cm millibili alls 4 sinnum = 176-192-208-228-256-280 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 33 cm frá skiptingu, aukið út 24-28-32-32-40-44 lykkjur jafnt yfir = 200-220-240-260-296-324 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið til baka 56-60-66-73-75-78 lykkjur af þræði í annarri hliðinni á sokkaprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja og eina af nýjum 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 64-68-76-83-87-90 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt undir ermi (= 4-4-5-5-6-6 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn í 4 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn í 4 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-1½-1-½ cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum = 56-60-68-73-77-80 lykkjur. Haldið svona áfram hringinn í sléttprjóni þar til ermin mælist 15-14-12-11-9-7 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-4-4-3-3-4 lykkjur jafnt yfir = 60-64-72-76-80-84 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 31.03.2020
Engin leiðrétting, en nýr texti í 2. tákni í mynsturtexta

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = prjónið 1 lykkju slétt án þess að sleppa lykkjunni af prjóninum, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju, en í aftari lykkjubogann. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri)
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 213-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Lourdes wrote:

Hola. Es correcta la cantidad de gramos que indicáis para hacer este jersey? 200 gramos me parece poco. Gracias

20.03.2021 - 00:45

DROPS Design answered:

Hola Lourdes, las cantidades son en principio correctas, siempre que se mantenga la tensión del tejido y las medidas del patrón. Si tienes dudas, te recomendamos coger un ovillo más. La razón por la que se necesitan menos gramos de esta lana es porque está tiene un alto metraje, con cada ovillo cundiendo 190m, que serían los mismos metros que 2 ovillos de Karisma o de Merino Extra Fine.

21.03.2021 - 19:43

country flag Marianne wrote:

Bonjour, est-il possible de connaître le niveau de difficulté de vos modèles ? Ils sont très beaux, mais je préférerais être sûre de ne pas me lancer dans un projet trop compliqué pour mon niveau et m'améliorer progressivement. Merci !

17.07.2020 - 16:18

DROPS Design answered:

Bonjour Marianne, le niveau de difficulté est parfois difficile à déterminer en fonction des connaissances de chacune, lisez attentivement les explications, regardez les vidéos et les leçons listées en bas de page et, vous pouvez poser votre question ici ou bien contacter votre magasin pour toute assistance individuelle complémentaire. Bon tricot!

20.07.2020 - 08:38

country flag Isabelle wrote:

Très beau dans sa simplicité. Je tente de le tricoter dès maintenant.

03.06.2020 - 23:51

country flag Isabelle Desbiens wrote:

Je ne comprends réellement pas comment faire l\'augmentation \" maille endroit, jeté et une maille endroit dans le brin arrière de la même maille\". Est-ce normal si cela me crée une petite barre horizontale sur le devant, couvrant le jeté et la maille tricotée dans le brin arrière ?\r\nEt au rang suivant on tricote le groupe de 3 mailles comme suit: maille 1 à l\'endroit, le jeté endroit torse et maille 3 à l\'endroit??? Je tricote en circulaire. MERCI!

03.06.2020 - 23:50

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Desbiens, c'est tout à fait normal, cette vidéo montre comment on tricote cette augmentation et le tour suivant. Bon tricot!

04.06.2020 - 09:08

country flag Anett wrote:

Bald bin ich fertig. Leider musste ich öfter die Nadel ziehen und ein neues Stück stricken. Vor dem Bündchen (Rumpf) werden lt. Anleitung zu viele Maschen zugenommen. Ich wollte keinen Rock anstricken, doch stand der Bund ab wie ein Volant. Der Ärmel wurde ebenfalls zu weit, weil sich ein Rechenfehler eingeschlichen hat. Schade auch, dass das Modell auf Ihrem Foto Löcher in der Passe vom Zunehmen zeigt, obwohl diese lt. Anleitung vermieden werden sollten. Meiner wird nicht so gut. Anett

19.04.2020 - 20:13

country flag Willeke Groos wrote:

Wat bedoelen jullie met zet 10 steken in de zijkant onder de mouw. En hoe zet je steken op een hulpdraad?

18.04.2020 - 23:03

DROPS Design answered:

Dag Willeke,

Onder de mouw (dus eigenlijk onder de oksel) zet je 10 nieuwe steken op. In deze video kun je zien hoe je steken op een hulpdraad zet.

29.04.2020 - 09:50

country flag Benedikte wrote:

Hej, Jeg forstår ikke anvisningen i diagrammet: "strik 1 maske ret, slå om, 1 maske ret i samme maske" I hvilken 'samme maske'? I omslaget, eller i den retmaske man strikkede før omslaget, eller i retmasken, man strikkede retmasken i? En video ville hjælpe rigtig meget her ;-)

25.03.2020 - 14:58

DROPS Design answered:

Hei Benedikte. Du skal strikke 1 maske rett, men ikke løft av masken av pinnen, gjør et kast, strikk 1 maske i samme maske. Vi skal få lage en video ganske snart, takk for ditt innspill. God Fornøyelse!

30.03.2020 - 12:04

country flag Valérie wrote:

Bonjour, puis-je faire les augmentations dans les diagrammes A1, A2 et A3 d'une autre manière ? Si oui, laquelle ? Merci.

19.03.2020 - 19:07

DROPS Design answered:

Bonjour Valérie, vous pouvez probablement tricoter 3 fois la même maille (celle correspondant au 2ème symbole de la légende), mais vous n'aurez peut-être pas le même résultat. N'hésitez pas à faire différents essais pour vérifier le rendu. Bon tricot!

20.03.2020 - 09:34

country flag Anett wrote:

Hallo Frau Alt, ich stricke gerade White Dove in XXL und habe 254 Maschen mit Rapporten zugenommen. Bis hier war alles rechnerisch nachvollziehbar und korrekt. Nun komme ich auf 355 Maschen. In der Anleitung sollten es nur 338 M sein. Hier stimmt die Berechnung bei allen Größen nicht. Danke für Ihre Antwort. Anett

15.03.2020 - 10:47

DROPS Design answered:

Liebe Anett, Sie sollten 367 M haben: Sie beginnen mit 135 M (= 27 x 5 M in jedem A.1) und es sind dann 27 x 7M in jedem A.1 = 189 M. Dann stricken Sie (37 x 5 M in jedem A.1) + 4 M = nach A.1 = (37x7)+4= 263 Maschen. Dann stricken Sie 52 Mal A.1 (= 52x5 M) + 3 Maschen (= 263 M) und es sind dann 52x 7 M in jedem A.1 + die letzen 3 Maschen der Runde = 367 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

16.03.2020 - 09:59

country flag Irmgard Alt wrote:

Ich habe das Model gestrickt in Gr. L . es war sehr klein hat sich beim anziehen zwar gedehnt aber ich mag keine hautengen Pullover. Er sah auf der Abbildung auch nicht so eng aus. Habe den Pullover dann verschenkt an jemanden mit der Größe S. da hat er toll ausgesehen. Was habe ich falsch gemacht? Möchte den Pullover für mich noch einmal stricken.

11.03.2020 - 08:19

DROPS Design answered:

Liebe Frau Alt, hatten Sie die richtige Maschenprobe bzw 20 Maschen und 26 Reihen glatt rechts gestrickt = 10 x 10 cm? Diese Angaben (in der Breite sowie in der Höhe) sind wichtig um die korrekte Maßnahmen von der Maßskizze zu bekommen. Hier lesen Sie mehr über Maschenprobe und hier lesen Sie, wie man die Maßsjiuzze liest, ob es auch hilfen kann. Viel Spaß beim stricken!

11.03.2020 - 08:47