Marie skrifaði:
Hei! Lurer på hvordan det er å blande en tråd drops air med en tråd drops melody for å få en litt mer "fluffy" genser? Ettersom garnene ikke alltid har samme navn for de ulike fargene lurer jeg også på om drops air i fargen "rose" og drops melody i fargen "sterk rosa" er like i fargene?
20.02.2020 - 12:40DROPS Design svaraði:
Hej Marie, Ja det kan du absolut gøre, da skal du vælge en genser som strikkes på tykkere pinde: dame - tykke pinner
20.02.2020 - 14:29
SA skrifaði:
Er ret forvirret???? Der står, at alle pinde strikkes ret, men på billedet er det glatstrikket? Virker som om bagstykket strikkes oppefra og ned, mens forstykket strikkes nedefra og op???
16.02.2020 - 19:59DROPS Design svaraði:
Hej, Alt som står ovenfor "START ARBEJDET HER" er forklaringer til hvordan de forskellige teknikker strikkes. Start ved BAGSTYKKE ved at slå op ifølge opskriften og så er det bare at følge den i din størrelse. Når du kommer til forstykket så kan du læse at det strikkes som bagstykket helt op til halsen . God fornøjelse!
18.02.2020 - 11:20
SA skrifaði:
Er ret forvirret???? Der står, at alle pinde strikkes ret, men på billedet er det glatstrikket?
16.02.2020 - 19:55
Marga Castell skrifaði:
Mi pregunta es si se podría tejer en redondo ya que me gusta más cuando no hay costuras. Gracias
16.02.2020 - 17:51DROPS Design svaraði:
Hola Marga. Este tipo de jersey se trabaja mejor de ida y vuelta, porque por un lado tiene las aberturas laterales (es decir, el delantero y la espalda se trabajan por separado) y desde la parte de la sisa el delantero y la espalda también se trabajan por separado. Si prefieres una prenda sin costuras echa un vistazo a nuestra selección de jerséis.
16.02.2020 - 21:17
Tanja skrifaði:
Hej. Der står at opskriften strikkes ret på alle pinde, men billedet af blusen er glat strik? Mon ikke nybegyndere bliver ret forvirret over de får retrillet og ikke glat strik når de kommer igang? Vil ikke overveje at lave sammen opskrift bare top/down i stedet for, og på rundpind? Så tror jeg det bliver et kæmpe hit, da montering er kedeliget arbejde + sammensyning er træls i siden på en lækker sweater ... ellers skøn opskrift som er meget on trend og super moderne.
27.01.2020 - 23:08
Susanne skrifaði:
Jeg gleder meg å strikke denne!
22.01.2020 - 07:04
Pia skrifaði:
Altid anvendelig model
05.01.2020 - 14:31
Claudia Wächtler skrifaði:
Schöner Schlichter Pullover und nicht so viel Schnickschnack.Habe in Air gerade einen Schal im Patent gestrickt und habe noch von Air Wolle .Freu mich schon auf die Strickanleitung
21.12.2019 - 11:35
Ursula skrifaði:
Schlicht und schön
13.12.2019 - 17:09
Grey Pearl#greypearlsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-36 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 89 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 6,8. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna til skiptis ca 5. og 6. hverja lykkju og 6. og 7. hverja lykkju slétt saman. ÚTAUKNING (á við um ermar): Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 89-97-103-113-125-137 lykkjur á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan þannig – frá réttu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 8 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-15-15-17-19-21 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚRTAKA = 76-82-88-96-106-116 lykkjur. Haldið svona áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, fellið af fyrir handveg í hvorri hlið. Fellið af í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-1-1-1-1 sinni og 1 lykkja 1-1-2-2-2-3 sinnum = 64-70-74-82-92-100 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið nú af miðju 26-26-28-30-32-34 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á næstu umferð við hálsmál þannig: 1 lykkja 1 sinni = 18-21-22-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Setjið nú miðju 20-20-22-24-26-28 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun á hverri umferð við hálsmál þannig: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-21-22-25-29-32 lykkjur eftir á öxl. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm og fellið af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ERMI: Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp, í hring á sokkaprjóna/hringprjón. Stykkið skiptist þar sem lykkjur eru felldar af fyrir handveg og síðan prjónaðar fram og til baka. Fitjið upp 46-48-50-52-52-56 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið. Þegar stykkið mælist 8 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið sléttprjón. Í fyrstu umferð í sléttprjóni er fækkað um 8-8-8-8-8-10 lykkjur jafnt yfir = 38-40-42-44-44-46 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-10-10-10-12-12 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚTAUKNING. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, svo ekki myndist gat. Aukið svona út með 3½-3½-3-3-2-2 cm millibili alls 11-12-13-13-15-15 sinnum = 60-64-68-70-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 50-49-49-48-45-44 cm, fellið af 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerki (= 6 lykkjur felldar af undir ermi), prjónið síðan ermi fram og til baka. Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 3 lykkjur 1 sinni, síðan eru þær lykkjur sem eftir eru felldar af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju þar til 8 cm eru eftir = klauf. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Prjónið upp ca 92-106 lykkjur á hringprjón 4,5 í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði og deilanlegt með 2). Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 9 cm. Fellið síðan af. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli innanverðu á stykki. Saumið stroffið þannig að það verði uppábrot. Til að koma í veg fyrir að kantur í hálsmáli verði og stífur og sveigist út, þá er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greypearlsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.