Mari skrifaði:
Hei, denne jakka har fine farger og pent mønster. Dessverre er passformen forferdelig! Ellers er jeg frustrert over at dere nå nærmest utelukkende har oppskrifter hvor det strikkes ovenfra og ned. Jeg skulle ønske dere hadde langt flere hvor det strikkes nedenfra og opp. Det blir penere vrangborder og halskant da, i tillegg til at det er mye mer tilfredstillende å strikke bærestykke og hals til slutt. Greit at folk er forskjellig, men det er virkelig altfor mye av ovenfra og ned nå.
24.08.2023 - 19:55
Kirsten Emmoth skrifaði:
Hej. Jag har stickat denna kofta åt en kompis i storlek L. Jag har använt det rekommenderade garnet och stickor. Enligt mönstret skulle den bli 56 cm lång, den blev 48 cm. Den skulle bli 53cm bred, den blev 40 cm. Koftan blev alldeles för liten! Jag stickar definitivt inte hårt, snarare lite löst. Jag är en van stickare har aldrig upplevt något sånt här tidigare. Kan det vara fel på mönstret? Hälsningar Kirsten
15.04.2021 - 14:59DROPS Design svaraði:
Hej Kirsten. Det låter som om du har haft en annan stickfasthet än den som uppges i mönstret. I storlek L är det 227 m på fram- och bakstycke, varav 5 m överlappar den andra framkanten. Enligt stickfastheten ska du ha 2,1 m/cm; 222 m/2,1= 106 cm. Detta innebär 106/2= 53 cm i bredden, så måtten ska vara riktiga i måttskissen. Mvh DROPS Design
16.04.2021 - 10:46
River Challenge Jacket#riverchallengejacket |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 35) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptist á eftri ca aðra hverja og 3. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7 cm millibili. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 3 með litnum hvítur. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroffi í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið þannig: 5 lykkjur garðaprjón, A.1 þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið fyrstu lykkjuna í A.1 og endið með 5 lykkjur garðaprjón. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör, á að auka út jafnt yfir þannig: UMFERÐ 1: Aukið út 35-43-55-51-47-55 lykkjur – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 143-155-167-167-167-179 lykkjur í umferð (11-12-13-13-13-14 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 2: Aukið út 36-36-48-48-48-48 lykkjur = 179-191-215-215-215-227 lykkjur í umferð (14-15-17-17-17-18 mynstureiningar með 12 lykkjur.) UMFERÐ 3: Aukið út 36-36-48-48-48-48 lykkjur = 215-227-263-263-263-275 lykkjur í umferð. (17-18-21-21-21-22 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 4: Aukið út 36-36-36-36-48-48 lykkjur = 251-263-299-299-311-323 lykkjur í umferð (20-21-24-24-25-26 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 5: Aukið út 24-36-36-36-48-48 lykkjur = 275-299-335-335-359-371 lykkjur í umferð (22-24-27-27-29-30 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 6: Aukið út 24-24-24-36-36-48 lykkjur = 299-323-359-371-395-419 lykkjur í umferð (24-26-29-30-32-34 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 7 (á einungis við um stærð XL-XXL og XXXL): Aukið út 0-0-0-24-24-24 lykkjur = 299-323-359-395-419-443 lykkjur í umferð (24-26-29-32-34-36 mynstureiningar með 12 lykkjur). Prjónið A.1 til loka á hæðina. Næsta umferð er prjónuð frá röngu með litnum hvítur þannig: Prjónið fyrstu 47-50-55-61-66-71 lykkjurnar í sléttprjóni og garðaprjóni (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 85-91-101-113-123-133 lykkjur sléttprjón eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-66-74-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-50-55-61-66-71 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni og garðaprjóni (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 191-203-227-251-275-299 lykkjur. Prjónið eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið með litnum hvítur í sléttprjóni og garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 20-22-24-24-26-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 1-1-1-1-1-1 lykkjur = 192-204-228-252-276-300 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af, sjá AFFELLING í útskýringu að ofan. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið 60-66-74-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-82-88-92-96 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi. Prjónið áfram hringinn eftir A.2. Þegar stykkið mælist ca 3-3-4-4-4-4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið úrtöku með 3½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-10-14-16-16-18 sinnum = 50-52-54-56-60-60 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið með litnum hvítur og sléttprjóni. Prjónið þar til ermin mælist ca 34-34-35-33-34-34 cm (prjónið e.t.v. að óskaðri lengd, það eru eftir ca 5 cm til loka). Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 2-0-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Fellið laust af, sjá AFFELLING. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riverchallengejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 210-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.