Heidi wrote:
Har strikket denne genser (River Challenge)i til meg selv i str M med garn/oppskrift fra dere. Genseren er så liten at den passet til en jente på 8 år. Kan det være noe feil i oppskriften?
02.08.2022 - 19:59DROPS Design answered:
Hej Heidi, hvilket garn har du strikket den i? Og har du 21 masker på 10 cm? For at få målene i måleskitsen nederst i opskriften er det vigtigt at man overholder strikkefastheden. Læs gerne mere om det her: Hvordan måle strikkefastheten
05.08.2022 - 11:31Jonna Clausen wrote:
Jeg ønsker at strikke denne model i DROPS KARISMA i størrelse L. Hvor mange g garn skal jeg bruge, da Karisma har en løbelængde på 100 m.
19.12.2021 - 10:55DROPS Design answered:
Hej Jonna, Brug garnomregneren som du finder lige under materialer. Vælg Sky, vælg antal gram for din størrelse og vælg 1 tråd, så får du antal gram op i DROPS Karisma. God fornøjelse!
21.12.2021 - 08:24Merete Jenssen wrote:
Hei Hvor mye er den i cm i brystvidde i xxxl? Mvh Merete
30.05.2021 - 13:02DROPS Design answered:
Hei Merete, Du finner en målskisse i bunnen av oppskriften som gir deg mål for hver størrelse. God fornøyelse!
31.05.2021 - 07:33Ulla Scholz wrote:
Ich stricke diesen Pullover in Größe L, Muster A1. Wenn ich so zunehme wie angegeben, verschiebt sich das Muster, d.h. es greift nicht so wie auf dem Bild ineinander. Kann das sein oder wo liegt der Fehler.
28.12.2020 - 18:23DROPS Design answered:
Liebe Frau Scholz, wegen den Zunahmen, die regelmäßig verteilt gestrickt werden, wird das Muster nicht genau übereinander gestrickt sein, und so ist es auch im Foto (auch wenn es nicht so siehtbar ist). Viel Spaß beim stricken!
04.01.2021 - 11:19Ulla Eklund wrote:
Stickar mönster River Challenge. Kan inte få stickfastheten att stämma. På stickor 4 får jag endast 7 cm med 21 maskor, dock stämmer höjden 28 varv för 10 cm? Jag brukar sticka enligt stickfastheten och fastheten känns bra på min provlapp. jag funderar på att gå upp en storlek. Jag har kollat på andra mönster med samma garn och samma storlek på stickor och de överensstämmer. Förbryllande, jag vill gärna komma igång snabbt.
01.09.2020 - 12:33DROPS Design answered:
Hej Ulla. Eftersom detta garn har en så speciell konstruktion så kan man få väldigt olika stickfasthet beroende på hur hårt man stickar. Testa att gå upp i storlek på stickor och sticka lösare för att se om du då får stickfastheten att stämma. Mvh DROPS Design
03.09.2020 - 09:08Margherita wrote:
Sbaglio o i numeri dei colori sono errati? 12 e 13 non corrispondono a blu jeans e blu jeans chiaro. Grazie
24.08.2020 - 08:07DROPS Design answered:
Buongiorno Margherita. L'indicazione dei colori per il filato Sky sono corrette. Buon lavoro!
24.08.2020 - 08:40Conny wrote:
Bei der Anleitung irritiert mich etwas. Auf den Fotos ist zu sehen, dass vor Ende von A1 die Arbeit geteilt wird. Auf den Armen ist doch auch mehr Muster als einmal A2 .Sonst würde das Muster doch auch nicht so weit runter gehen , oder ?
18.01.2020 - 12:32DROPS Design answered:
Liebe Conny, je nach der Größe wird es unterschiedlich aussehen, dh in den grösseren Grösse werden die Runden mit jeansblau bei der Passe gestrickt (= A.1) aber diese Runden werden in die 3 ersten Größen nach der Verteilung gestrickt (= A.2). Viel Spaß beim stricken!
20.01.2020 - 08:38Verena wrote:
Der Pullover ist ein Traum
10.01.2020 - 06:58Irene Petix wrote:
Bello, mi piacerebbe realizzarlo ma temo sia complicato l'intreccio dei colori con i ferri circolari, aspetto le istruzioni
30.12.2019 - 19:44
River Challenge |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með norrænu mynstri úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 210-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 96 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 36) = 2,6. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca aðra hverja og 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-100-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3 með litnum hvítur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með stroffi í 3 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið A.1 yfir allar lykkjur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör, á að auka út jafnt yfir þannig: UMFERÐ 1: Aukið út 36-44-56-52-48-56 lykkjur – sjá ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 132-144-156-156-156-168 lykkjur í umferð (11-12-13-13-13-14 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 2: Aukið út 36-36-48-48-48-48 lykkjur = 168-180-204-204-204-216 lykkjur í umferð (14-15-17-17-17-18 mynstureiningar með 12 lykkjur.) UMFERÐ 3: Aukið út 36-36-48-48-48-48 lykkjur = 204-216-252-252-252-264 lykkjur í umferð. (17-18-21-21-21-22 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 4: Aukið út 36-36-36-36-48-48 lykkjur = 240-252-288-288-300-312 lykkjur í umferð (20-21-24-24-25-26 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 5: Aukið út 24-36-36-36-48-48 lykkjur = 264-288-324-324-348-360 lykkjur í umferð (22-24-27-27-29-30 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 6: Aukið út 24-24-24-36-36-48 lykkjur = 288-312-348-360-384-408 lykkjur í umferð (24-26-29-30-32-34 mynstureiningar með 12 lykkjur). UMFERÐ 7 (á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL): Aukið út 0-0-0-24-24-24 lykkjur = 288-312-348-384-408-432 lykkjur í umferð (24-26-29-32-34-36 mynstureiningar með 12 lykkjur). Prjónið A.1 til loka á hæðina. Næsta umferð er prjónuð með litnum hvítur þannig: Prjónið fyrstu 42-45-50-56-62-66 lykkjurnar slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 60-66-74-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 84-90-100-112-120-132 lykkjur slétt eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-66-74-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 42-45-50-56-62-66 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 180-192-216-240-264-288 lykkjur. Prjónið eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, prjónið með hvítur í sléttprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist ca 20-22-24-24-26-28 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af, sjá AFFELLING í útskýringu að ofan. Klippið frá og festið enda. ERMI: Setjið 60-66-74-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi. Prjónið síðan hringinn eftir A.2. Þegar stykkið mælist ca 3-3-4-4-4-4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Haldið svona áfram með mynstur og endurtakið úrtöku með 3½-3-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 8-10-14-16-16-18 sinnum = 50-52-54-56-60-60 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið með litnum hvítur og sléttprjóni. Prjónið þar til ermin mælist ca 34-34-35-33-34-34 cm (prjónið e.t.v. að óskaðri lengd, það eru eftir ca 5 cm að loka máli). Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 2-0-2-0-0-0 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3, prjónið stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Fellið laust af, sjá AFFELLING. Klippið frá og festið enda. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Heidi wrote:
Strikket i det garnet som står i oppskriften. Og ja strikkefastheten stemmer.
05.08.2022 - 12:07