Sharon skrifaði:
I have california 8 ply wool and wondered what needles to use and how many balls required for this pattern, thanks
03.05.2020 - 02:31DROPS Design svaraði:
Dear Sharon, We are able to provide free patterns thanks to our yarns sold throughout the world. You will therefore understand that we can only recomand you to contact the store where you bought the yarn for any further help & assistance. You will find here our DROPS stores in USA. Thank you for your comprehension.
04.05.2020 - 12:30
Lise skrifaði:
Der skal kun tages 7 masker ud på str M for at få de 248 masker til ryg-og forstykke. IKKE 10 masker, som der står i opskriften, og man skal IKKE have 272 masker.
29.04.2020 - 22:11DROPS Design svaraði:
Hej Det står i oppskriften att du ska ta ut 7 m i strl M och du ska sen ha 248 m (strl M är den första siffran i det stycket, strl S är förklarat i stycket över). Mvh DROPS Design
30.04.2020 - 09:37
Murielle Pham skrifaði:
Bonjour, je crois qu,il y a une erreur... Après le motif, en taille M, il y a 241m On doit faire 10 augmentations a 24 cm...donc 251 m et vous notez 272.... Ai je loupé quelque chose?? Merci
07.04.2020 - 13:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Pham, en taille M, on doit augmenter 7 mailles (= dans ce paragraphe, la taille M est la 1ère taille), on aura donc bien 241 m + 7 = 248 m (et 272 m en taille L). Au paragraphe suivant, la taille M est de nouveau la 2ème: 40 m = devant droit, 50 m = manche etc... Bon tricot!
09.04.2020 - 15:46
Isabelle skrifaði:
Cela a été un régal à tricoter; c'est comme tricoter un nuage. Les explications sont claires. L'ouvrage monte vite. La laine ne bouge pas au blocage. Moralité: je recommencerais à tricoter de la laine air. En plus elle ne bouloche pas!
26.02.2020 - 10:36
Josee Simons skrifaði:
Hoeveel bollen voor maat 42, garen alpaca+zijde..25 gr per bol en 140 m lengte
17.02.2020 - 00:26DROPS Design svaraði:
Dag Josee,
Begrijp ik het goed dat je 2 draden van kwaliteit A wilt gebruiken? Wat je kunt doen is naar de totale looplengte kijken. Bereken de totale looplengte die je nodig zou hebben om het vest in Air te breien en deel deze door de looplengte van de gewenste garenkwaliteit om de hoeveelheid bollen te berekenen. Dit doe je dan weer keer 2, omdat je met een dubbele draad breit.
20.02.2020 - 21:09
Ainhoa Amorrosta skrifaði:
Parece todo muy detallado y me encantan vuestras lanas
20.01.2020 - 01:05
Tulip Ring Jacket#tulipringjacket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri og trompetermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 212-4 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.3). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 84 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 12,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 12. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur þegar fellt er af, er hægt fella af með grófari prjónum. Ef kanturinn er enn stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkjur. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2½-3 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-8½-8-8-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-92-96-100-104 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með Air. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur (= kantur að framan), * prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með A.2 yfir síðustu 5 lykkjur (= kantur að framan). Haldið svona áfram með stroff í 2½-3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem auknar eru út 6-10-2-5-8-11 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 90-98-94-101-108-115 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið og kantar að framan eru prjónaðir eins og áður). Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Setjið 1 prjónamerki á eftir kanti að framan í byrjun við miðju að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Nú er mynstur prjónað þannig: Prjónið A.1 yfir fyrstu 5 lykkjur, A.3 - veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 10-11-12-13-14-15 mynstureiningar með 8-8-7-7-7-7 lykkjur), A.2 yfir síðustu 5 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka eru 220-241-262-283-304-325 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 20 cm frá prjónamerki. Prjónið áfram mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður) þar sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir = 226 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan næstu umferð frá röngu eins og útskýrt er að neðan: Stærð M, L, XL, XXL og XXXL: Prjónið sléttprjón fram og til baka (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Þegar stykkið mælist 21-22-23-24-25 cm, aukið út 7-10-9-16-18 lykkjur jafnt yfir = 248-272-292-320-343 lykkjur. Haldið áfram þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki. Prjónið síðan næstu umferð frá röngu eins og útskýrt er að neðan. Allar stærðir: Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 36-40-42-46-51-56 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 46-50-56-60-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 62-68-76-80-90-99 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 46-50-56-60-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 36-40-42-46-51-56 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 150-164-176-192-212-231 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka (kantlykkjur að framan eru prjónaðar eins og áður). Þegar stykkið mælist 23-24-24-24-24-24 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem aukið er út um 18-20-20-20-24-25 lykkjur jafnt yfir (kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 168-184-196-212-236-256 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff þannig: A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt, A.2. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 46-50-56-60-64-66 lykkjur af þræði í annarri hlið á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 54-58-64-70-74-76 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-2-2-2 cm frá skiptingu, byrjar úrtaka undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 5-5-1½-1-1-1 cm millibili alls 2-3-6-9-7-5 sinnum = 50-52-52-52-60-66 lykkjur. Þegar ermin mælist 15-14-12-11-9-8 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 52-52-52-52-56-60 lykkjur (þ.e.a.s. í stærð S er aukið út um 2 lykkjur, í stærð M, L, XL eru ekki auknar út lykkjur eða fækkað og í stærð XXL og XXXL er fækkað um 4-6 lykkjur). Prjónið nú mynstur hringinn þannig: Prjónið * 0-0-0-0-1-2 lykkjur slétt, A.4 *, prjónið *-* alls 4 sinnum hringinn í umferð. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 68-68-68-68-72-76 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt þar sem auknar eru út 4 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum = 72-72-72-72-76-80 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist alls 35-34-32-31-29-28 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tulipringjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 212-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.