Hilde skrifaði:
Når merketråden til tommelen skal strikkes, så brukes den vinrøde før og etter. Skal den klippes av på hver side av merketråden eller bare brukes slik den er? Vil det ikke bli en lang "float"/tråd på innsiden når tommelen er ferdig?
16.12.2024 - 07:36DROPS Design svaraði:
Hej Hilde, se gerne vores video hvordan vi gør. Øverst i opskrift)en klikker du på Videoer :)
17.12.2024 - 13:58
Joan Brunt skrifaði:
Please will you check the thumb instructions for the gusset and decreasing? Thank yiu
29.07.2021 - 21:43DROPS Design svaraði:
Dear Joan, what is your question about the thumb?
30.07.2021 - 03:39
Thérèse Robinson skrifaði:
Please will you confirm the number of stitches to be picked up in the thumb gussets?
29.07.2021 - 12:47DROPS Design svaraði:
Dear Therese, depending on the size you are making, you should have 6-6-7-7-7 stitches on the thread /stitchholder, and pick up another 6-6-7-7-7 stitch behind these, so you are starting the thumb with 12-12-14-14-14 distributed on the DPN-s, Happy Stitching!
30.07.2021 - 03:37
Tina Danielsson skrifaði:
Hvis jeg er venstrehendt, begynner jeg fortsatt fra høyre eller kan jeg begynne fra venstre i diagrammet?
19.04.2021 - 08:41DROPS Design svaraði:
Hei Tina, Det går fint an å strikke diagrammet fra venstre til høyre. God fornøyelse!
20.04.2021 - 07:27
Simone Trollmo skrifaði:
Hej! Ska man sy fast vikkanten med garn eller med vanlig sytråd? Mvh, Simone
24.01.2021 - 13:30DROPS Design svaraði:
Hej Simone. Den sys fast med garn, men tycker du det blir bättre med sytråd kan du självklart göra det. Mvh DROPS Design
26.01.2021 - 14:02
Aria skrifaði:
Bonjour, Pour finir des diminution du haut des moufles, après les 5 premiers tours il reste 4mailles entre les fils marqueurs. Faut-il les tricoter 2 par 2 ( 2 ensemble à l'endroit / une glissée rabattue sur une maille à l'endroit) ? Merci d'avance
05.12.2020 - 19:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Aria, vous continuez vos diminutions comme expliqué sous DIMINUTIONS-1 jusqu'à ce qu'il reste 4 mailles sur les aiguilles (= les 2 mailles de chaque côté desquelles vous avez diminué). Bon tricot!
07.12.2020 - 08:01
Gitte Holde skrifaði:
Diagrammerne mangler her, men jeg kan da se dem under de andre opskrifter. Tænker dog ikke det er meningen.
25.11.2020 - 11:30DROPS Design svaraði:
Hej Gitte. Tack för info, nu har diagrammen lagts till. Mvh DROPS Design
26.11.2020 - 08:43
Candy Cane Lane Mittens#candycanelanemittens |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaðir vettlingar fyrir börn með norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð 1-12 ára.
DROPS Children 34-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. LEIÐBEININGAR-2: Hægt er að stilla af lengdina áður en prjónað er fyrir þumli með því að prjóna fleiri eða færri umferðir áður en merkiþráður er prjónaður inn til að staðsetja gatið fyrir þumal. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um efst á vettlingum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri við prjónamerki). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um þumla): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, neðan frá og upp. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 28-32-36-36-40 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum vínrauður. Prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir fald fyrir saum. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Núna er mælt frá uppábroti! Prjónið 6 umferðir sléttprjón með litnum vínrauður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.1 hringinn (= 7-8-9-9-10 mynstureiningar með 4 lykkjum). A.1 er nú endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 6-7-8-9-10 cm frá uppábroti (stillið af að næsta umferð sé umferð með einum lit með litnum vínrauður), prjónið inn merkiþráð fyrir opi fyrir þumalfingur þannig – sjá LEIÐBEININGAR-2: Prjónið 6-8-9-9-11 lykkjur sléttprjón með litnum vínrauður, prjónið 6-6-7-7-7 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumalfingur með þræði í öðrum lit en sem er í stykkinu, prjónið síðan þær 16-18-20-20-22 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum vínrauður. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 12-13-14-16-19 cm frá uppábroti (nú hafa verið prjónaðir 6-6-6-7-9 cm frá opi fyrir þumalfingur). Nú eru eftir ca 2-2-3-3-3 cm að loka máli, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðri lengd – ATH: Endið eftir heila rönd með litnum natur og prjónið með litnum vínrauður (án «doppa») að réttu máli. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 14-16-18-18-20 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6-7-8-8-9 sinnum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, dragið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 14-15-17-19-22 cm ofan frá og niður að uppábroti. ÞUMALFINGUR: Dragið út þráðinn sem prjónaður var yfir 6-6-7-7-7 lykkjur fyrir opi fyrir þumalfingur. Prjónið upp 6-6-7-7-7 lykkjur hvoru megin við op fyrir þumalfingur með litnum vínrauður = 12-12-14-14-14 lykkjur. Deilið þessum 12-12-14-14-14 lykkjum á sokkaprjóna 3,5. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. Þegar þumall mælist ca 3-3½-4-4½-5½ cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á þumlfingri. Nú er eftir ca 1 cm að loka máli á þumalfingri, mátið e.t.v. vettlinginn og prjónið að óskaðir lengd. Í næstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 2 sinnum = 4-4-6-6-6 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp 28-32-36-36-40 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með litnum vínrauður. Prjónið 6 umferðir sléttprjón fyrir fald fyrir saum. Prjónið 1 umferð brugðið (= uppábrot). Núna er mælt frá uppábroti! Prjónið 6 umferðir sléttprjón með litnum vínrauður. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Lesið LEIÐBEININGAR-1 og prjónið A.2 hringinn (= 7-8-9-9-10 mynstureiningar með 4 lykkjum). A.2 er nú endurtekið á hæðina. Þegar stykkið mælist ca 6-7-8-9-10 cm frá uppábroti (stillið af að næsta umferð sé umferð með einum lit með litnum vínrauður), prjónið inn merkiþráð fyrir opi fyrir þumalfingur þannig – sjá LEIÐBEININGAR-2: Prjónið 16-18-20-20-22 lykkjur sléttprjón með litnum vínrauður, prjónið 6-6-7-7-7 lykkjur sléttprjón fyrir op fyrir þumalfingur með þræði í öðrum lit en sem er í stykkinu, prjónið síðan þær 6-8-9-9-11 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni með litnum vínrauður. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til vettlingurinn mælist ca 12-13-14-16-19 cm frá uppábroti (nú hafa verið prjónaðir 6-6-6-7-9 cm frá opi fyrir þumalfingur, stillið lengdina af eftir vinstri vettlingi. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og 1 prjónamerki eftir 14-16-18-18-20 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn með litnum vínrauður. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 4 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 6-7-8-8-9 sinnum = 4 lykkjur eftir. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Vettlingurinn mælist ca 14-15-17-19-22 cm ofan frá og niður að oppábroti. ÞUMALL: Prjónið þumalfingur á sama hátt og á vinstri vettlingi. FRÁGANGUR: Brjótið inn faldinn fyrir saum að röngu og saumið niður með smáu spori. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #candycanelanemittens eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 16 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 34-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.