Anita skrifaði:
Super!!!!! Endlich ein tolles Brioche-Strickstück von Dops.
14.09.2019 - 09:20
Inger Marie Øygard skrifaði:
Hei! Hvor finner jeg oppskriften til dette skjørtet? Det ser veldig fint ut 😀
07.09.2019 - 09:44
Rianne Wiesje Kompier Krijnen skrifaði:
Wat een mooi en vrolijk winterrokje!
04.07.2019 - 07:14
Rita skrifaði:
Wunderschönes Muster, sollte es auch als Pullover geben.
02.07.2019 - 17:34
Birgitte Graven skrifaði:
Supersmart og ung. Hvorfor sætter I ikke tøjet sammen i sæt, når der tydeligvis er lavet sæt? Så vidt jeg husker er der en trøje ud over nederdelen og huen.
10.06.2019 - 00:19
Katja skrifaði:
Superschönes Muster
07.06.2019 - 19:37
Angélique skrifaði:
Mooie kleurcombinatie, leuk hip model.
07.06.2019 - 19:14
Muriel skrifaði:
Super en association avec le béret un bel ensemble
06.06.2019 - 11:29
Monika skrifaði:
Toller Rock, interessantes Muster
05.06.2019 - 23:01
Nanny skrifaði:
Heerlijk, zo'n winterrokje.
05.06.2019 - 18:31
Finally The Weekend#finallytheweekendskirt |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað pils í tveggja lita klukkuprjóni með blaðamynstri. Stykkið er prjónað úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S – XXXL.
DROPS 206-24 |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STROFF: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚRTAKA: Fækkið úr 2 lykkjur brugðið í 1 lykkju brugðið með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman. TVEGGJA LITA BLAÐAMYNSTUR Í KLUKKUPRJÓNI (prjónað í hring): Sjá mynsturteikningu A.2 til A.4. Til að fá tveggja lita áferðina, prjónið rendur með til skiptis 1 umferð í litnum dökk grár og 1 umferð í litnum dökk bleikur. A.2, A.3 og A.4 byrjar í umferð í litnum dökk grár eins og útskýrt er í uppskrift og í hvert skipti sem annað hvort er aukið út eða lykkjum fækkað í A.2, A.3 og A.4, er það gert í umferð í litnum dökk bleikur. LEIÐBEININGAR: Allur lykkjufjöldin sem gefinn er upp þegar klukkuprjón er prjónað er án uppsláttar þar sem uppslátturinn tilheyrir sléttu lykkjunni og er talið saman sem 1 lykkja. MÆLING: Þar sem flíkin víkkar við notkun er ágætt að strekkja aðeins á stykkinu á breiddina þegar lengdin er mæld, svo að pilsið verði ekki of stutt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á stuttan hringprjón, ofan frá og niður, skiptið yfir á lengri hringprjón eftir þörf. PILS: Fitjið upp 120-140-160 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með dökk grár. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan A.1 hringinn (= 24-28-32 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar stroffið mælist 3-4-4 cm, fækkið allar 2 lykkjur brugðið til 1 lykkja brugðið – sjá ÚRTAKA = 96-112-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Sjá TVEGGJA LITA BLAÐAMYNSTUR Í KLUKKUPRJÓNI og prjónið A.2 hringinn (= 6-7-8 mynstureiningar með 16 lykkjum). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og sjá LEIÐBEININGAR! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 144-168-224 lykkjur í umferð. Prjónið A.3 hringinn (= 6-7-8 mynstureiningar með 24-24-28 lykkjum). Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er A.4 prjónað hringinn (= 6-7-8 mynstureiningar með 24-24-28 lykkjum). Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka eru 192-224-288 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.x í A.4 hringinn þar til stykkið mælist ca 42-46-50 cm frá uppfitjunarkanti – sjá MÆLING, mátið e.t.v. pilsið og prjónið að óskaðri lengd. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir uppslátt og sléttu lykkju og með brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Byrjið í hlið eða mitt að aftan og þræðið mjóa teygju upp og niður í gegnum stroff í mitt, hnýtið hnút. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #finallytheweekendskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.