DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Spring Fever

Prjónuð síð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tveggja lita klukkuprjóni og köðlum. Stærð S – XXXL.

DROPS 206-28
DROPS Design: Mynstur ai-214
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL – XXXL

EFNI:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-300 g litur 28, rauður múrsteinn
200-250-250-300-300-300 g litur 26, beige

PRJÓNFESTA:
11 lykkjur á breidd og 32 umferðir á hæð með klukkuprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: lengd 40 cm fyrir kant í hálsmáli.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: lengd 40 cm og 60 cm eða 80 cm fyrir sléttprjón.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10912.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN (= prjónað í hring):
Þegar tveggja lita klukkuprjón er prjónað hringinn, prjónið fyrstu 1 umferð með litnum beige, síðan er prjónuð 1 umferð með litnum rauður múrsteinn. Skipt er um lit í hverri umferð í gegnum allt stykkið. Ef þú ert ekki viss hvaða lit á að prjóna með, þá getur þú alltaf athugað hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með, með því að sjá uppsláttinn.

LASKALÍNA:
Öll útaukning fyrir laskalínu er gerð í umferð með litnum beige. Það eru 8 prjónamerki og það eru auknar út 2 lykkjur við hvert prjónamerki (= 16 lykkjur fleiri alls í umferð). Útaukningin er gerð í 12.-12.-10.-10.-10.-8. hverri umferð alls 8-9-10-11-12-14 sinnum.

AUKIÐ ÚT UM 2 LYKKJUR.
Prjónið svona í lykkjur með prjónamerki: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman án þess að sleppa þeim af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman 1 sinni til viðbótar. Nú er hægt að sleppa uppslættinum og lykkjunni af vinstra prjóni (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru útauknar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur.

TILFÆRSLA Á PRJÓNAMERKJUM:
Það er mikilvægt að útaukning fyrir laskalínu sé gerð í réttri lykkju. Þess vegna á að færa prjónamerkin upp jafnframt því sem aukið er út. Eftir útaukningu hefur hver lykkja með prjónamerki aukist til 3 lykkjur og prjónamerkið á að færast til í eina af þessum 3 lykkjum. Færið prjónamerkin þannig:
1. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum.
2. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum.
3. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum.
4. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum.
5. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum.
6. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum.
7. prjónamerki – setjið prjónamerki í fyrstu af 3 lykkjunum.
8. prjónamerki – setjið prjónamerki í þriðju af 3 lykkjunum.

VINSTRI OG HÆGRI KAÐALL:
Það kemur kaðall í fyrsta skipti eftir 13. umferð í klukkuprjóni (þ.e.a.s. í 7. umferð með beige), síðan kemur kaðall áfram í 28. hverri umferð í klukkuprjóni (þ.e.a.s. í 14. umferð með beige). Kaðlar eru prjónaðir á milli 2. og 3. prjónamerkis, milli 4. og 5. prjónamerkis, á milli 6. og 7. prjónamerkis og milli 8. og 1. prjónamerkis.
Prjónið VINSTRI KAÐALL þannig:
Setjið fyrstu 6 lykkjur (fyrsta lykkja er í litnum rauður múrsteinn) + 3 uppslættir sem tilheyra (= 3 klukkuprjóns lykkjur í litnum beige) á kaðlaprjón framan við stykkið, * sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 6 lykkjur + 3 uppslættir sem tilheyra). Prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni þannig: ((1 uppsláttur um prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman )), prjónið frá ((-)) alls 3 sinnum. Endið með að slá 1 sinni uppá prjóninn og lyfta næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt.
Prjónið HÆGRI KAÐALL þannig:
Sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið fyrstu lykkju af prjóni, setjið næstu 6 lykkjur (fyrsta lykkja er í litnum beige) + 3 uppslættir sem tilheyra (= 3 klukkuprjóns lykkjur í litnum beige) á kaðlaprjón aftan við stykkið, * prjónið næstu lykkju og uppslátt slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (6 lykkjur + 3 uppslættir sem tilheyra).
Prjónið 6 lykkjur af kaðlaprjóni þannig: ((prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið)), prjónið frá ((-)) alls 3 sinnum (= 6 lykkjur + 3 uppslættir sem tilheyra).

ÚRTAAKA (á við um ermi):
Öll úrtaka er gerð í umferð með litnum beige.
Fækkið um 4 lykkjur þannig: Prjónið eins og áður þar til 2 lykkjur eru eftir á undan sléttri lykkju með prjónamerki, prjónið næstu 5 lykkjur saman þannig:
Lyftið 1 uppslætti, 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (= lykkja með prjónamerki) (= 3 lykkjur og 2 uppslættir) af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur og 1 uppsláttur) slétt saman, steypið 3 óprjónuðu lykkjunum og 2 uppsláttum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 4 lykkjur færri).

------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, prjónað er ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í tveggja lita klukkuprjóni, aukið er út fyrir laskalínu og kaðlar gerðir í skiptingunni á milli fram- og bakstykki og erma. Þegar búið er að skipta stykkinu upp við ermar og fram- og bakstykki, prjónið fram- og bakstykki í hring á hringprjón og ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 62-64-67-71-74-78 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með litnum beige. Prjónið 2 umferðir sléttprjón, en í síðustu umferð er aukið út jafnt yfir 14-12-13-9-10-6 lykkjur = 76-76-80-80-84-84 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Setjið 1 prjónamerki í stykkið hér, það á að nota þetta prjónamerki til að mæla frá síðar.

Í næstu umferð eru sett 8 prjónamerki í stykkið, JAFNFRAMT er prjónað TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
UMFERÐ 1 (= með litnum beige):
BAKSTYKKI: Prjónið 1 lykkjur slétt og setjið 1. prjónamerki í þessa lykkju, * 1 uppsláttur um prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju slétt *, prjónið frá *-* alls 2-2-3-3-4-4 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið.
Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. prjónamerki í þessa lykkju.
KAÐALL (= hér er vinstri kaðall prjónaður síðar): Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið = 13 lykkjur.
ERMI: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 3. prjónamerki í þessa lykkju.
Prjónið *-* 1 sinni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 4. prjónamerki í þessa lykkju.
KAÐALL (= hér er hægri kaðall prjónaður síðar): Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið = 13 lykkjur.
FRAMSTYKKI: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 5. prjónamerki í þessa lykkju.
Prjónið *-* alls 2-2-3-3-4-4 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 6. prjónamerki í þessa lykkju.
KAÐALL (= hér er vinstri kaðall prjónaður síðar):
Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjón eigi brugðið = 13 lykkjur.
ERMI: Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 7. prjónamerki í þessa lykkju.
Prjónið frá *-* 1 sinni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 8. prjónamerki í þessa lykkju.
KAÐALL (= hér er hægri kaðall prjónaður síðar):
Prjónið *-* 6 sinnum, sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið = 13 lykkjur.

UMFERÐ 2 (= með litnum rauður múrsteinn):
* sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju og uppsláttinn brugðið saman *, prjónið *-* umferðina hringinn.

UMFERÐ 3 (= með litnum beige): * Prjónið næstu lykkju og uppsláttinn slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið *-* umferðina hringinn.

UMFERÐ 4 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið á sama hátt og 2. umferð.

UMFERÐ 5 (= með litnum beige): Í þessari umferð er fyrsta útaukningin gerð fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Prjónið eins og umferð 3, en í öllum lykkjum með prjónamerki er aukið út, sjá aukið út 2 LYKKJUR í útskýringu að ofan. Það eru 8 prjónamerki og aukið er út alls um 16 lykkjur í umferð = 92-92-96-96-100-100 lykkjur í umferð.

UMFERÐ 6 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2, en í lykkjum með prjónamerki hefur 1 lykkja orðið að 3. Þessar lykkjur eru prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur þannig: sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið næstu lykkju brugðið (= uppsláttur frá fyrstu umferð), sláið 1 sinni uppá prjóninn og lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið.

UMFERÐ 7 (= með litnum beige): Prjónið eins og umferð 3.
UMFERÐ 8 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2.
UMFERÐ 9 (= með litnum beige): Prjónið eins og umferð 3.
UMFERÐ 10 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2.
UMFERÐ 11 (= með litnum beige): Prjónið eins og umferð 3.
UMFERÐ 12 (= með litnum rauður múrsteinn): Prjónið eins og umferð 2.

Sjá TILFÆRSLA Á PRJÓNAMERKJUM í útskýringu að ofan og færið núna prjónamerkin.

UMFERÐ 13 (= 7. umferð með litnum beige):
Þessi umferð er prjónuð eins og umferð 3, en í þessari umferð eru kaðlarnir gerðir í fyrsta skipti – sjá HÆGRI OG VINSTRI KAÐALL í útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 2. prjónamerki, prjónið VINSTRI KAÐALL yfir næstu 13 lykkjur. Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 4. prjónamerki, prjónið HÆGRI KAÐALL yfir næstu 13 lykkjur. Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 6. prjónamerki, prjónið VINSTRI KAÐALL yfir næstu 13 lykkjur. Prjónið eins og áður fram til og með lykkju með 8. prjónamerki, prjónið HÆGRI KAÐALL yfir síðustu 13 lykkjur.

Endurtakið síðan umferð 2 og 3, JAFNFRAMT er útaukning gerð fyrir laskalínu í 12.-12.-10.-10.-10.-10. hverri umferð (alveg eins og var gert í 6. umferð) og kaðallinn er gerður í 28. hverri umferð (alveg eins og það var gert í 13. umferð).

Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð eru 204-220-240-256-276-308 lykkjur í umferð. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist ca 31-33-34-36-38-40 cm frá prjónamerki við hálsmál – stillið af að næsta umferð sé ekki umferð þar sem kaðallinn fléttast. Skiptið nú stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið eins og áður frá lykkju með 1. prjónamerki og fram til og með lykkju með 3. prjónamerki, setjið næstu 37-41-45-49-53-61 lykkjur á þráð fyrir ermi. Fitjið upp 7-7-7-7-7-7 nýjar lykkjur í hlið (= undir ermi). Prjónið eins og áður frá lykkju með 4. prjónamerki og fram til og með lykkju með 7. prjónamerki. Setjið næstu 37-41-45-49-53-61 lykkjur á þráð fyrir ermi. Fitjið upp 7-7-7-7-7-7 nýjar lykkjur í hlið (= undir ermi). Prjónið eins og áður frá lykkju með 8. prjónamerki og fram til lykkju með 1. prjónamerki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Það eru 144-152-164-172-184-200 lykkjur í umferð. Í næstu umferð eru nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstrið. Haldið áfram að prjóna eins og áður og gerið kaðla þar til kaðlarnir hafa fléttast alls 7-7-7-7-7-7 sinnum frá byrjun á stykki. Héðan er haldið áfram með klukkuprjón yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist ca 36-37-39-40-41-41 cm frá skiptingu. Stillið af að næsta umferð sem er prjónuð sé með litnum beige. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur, fellið af með sléttum lykkjum þannig: * fellið af uppsláttinn sem tilheyrir til næstu lykkju, fellið af 2 næstu lykkjur hvora fyrir sig *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn. Klippið þræðina frá og festið enda.

ERMI:
Setjið 37-41-45-49-53-61 lykkjur af öðrum þræðinum á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 7. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 7-7-7-7-7-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið á fram- og bakstykki = 44-48-52-56-60-68 lykkjur. Í næstu umferð eru nýjar lykkjur prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur og það er sett 1 prjónamerki í miðju af nýjum lykkjum (= slétt lykkja í litnum beige, látið prjónamerkið fylgja með í miðju lykkjunni). Prjónið eins og áður þar til stykkið mælist ca 2-2-2-2-2-2 cm frá þar sem stykkið skiptist upp – stillið af að næsta umferð sé umferð með litnum beige. Sjá ÚRTAKA í útskýringu að ofan og fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi.
Endurtakið úrtöku í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með litnum beige) þar til fækkað hefur verið alls 4-5-6-6-7-9 sinnum = 28-28-28-32-32-32 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 34-32-32-30-29-27 cm frá skiptingu (passið uppá að mæla frá miðju á ermi en ekki meðfram úrtöku undir ermi, annars verða málin styttri á erminni þegar hún er tilbúin).
Stillið af þannig að næsta umferð sem á að prjóna sé með litnum beige. Til að koma í veg fyrir að kanturinn verði stífur, fellið af með sléttum lykkjum þannig: * fellið af uppsláttinn sem tilheyrir næstu lykkju, fellið af 2 næstu lykkjur hvora fyrir sig *, endurtakið *-* umferðina hringinn. Klippið frá og festið enda.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-28

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (13)

country flag Hinke wrote:

Waarom is dit patroon niet in het nederlands te krijgen? Zo mooie trui.

03.09.2022 - 19:53

DROPS Design answered:

Beste Hinke,

Het patroon is inmiddels voor je vertaald ☺ en beschikbaar in het Nederlands. Klik hier voor de Nederlandstalige versie. Veel breiplezier!

04.09.2022 - 12:17

country flag Elin wrote:

Bildet stemmer ikke med oppskriften. På bildet ser man tydelig at d er økt 9 ganger til raglan, i oppskriften står d 12 ganger. Hvis jeg øker 12 ganger blir det mye mere enn 33 cm fra hals til armhull. Jeg har den strikkefastheten som står i oppskriften. Hvordan løser jeg dette?

12.07.2020 - 15:17

country flag Mona wrote:

Denne oppskriften er merket med en liten urskive øverst til høyre på bildet av genseren. Hva betyr det?

19.11.2019 - 20:46

DROPS Design answered:

Hei Mona. De oppskriftene med en liten urskive betyr at dette er en av de nyeste oppskriftene som er blitt publisert. Om du bruker PC, skal det komme en liten tekst (NY) over ikonet når du drar musen over ikonet. Det samme gjelder de andre ikonene. mvh DROPS design

25.11.2019 - 13:49

country flag Birte wrote:

Hvornår lægger I opskriften op? Jeg vil frygtelig gerne i gang med at strikke :-)

12.11.2019 - 16:22

DROPS Design answered:

Hej Birte, den kommer om et par uger :)

14.11.2019 - 12:33

country flag Tove wrote:

Så fin! Vill sticka nu.

15.10.2019 - 17:26

country flag Feerik wrote:

Magnifique--un côté elfique qui donne envie de grandes balades !

01.10.2019 - 23:39

country flag Feerik wrote:

Magnifique-parfait pour les promenades automnales !!!

22.09.2019 - 20:13

country flag Margareth Keune wrote:

Maravilhoso!!!

15.07.2019 - 02:37

country flag Geneviève wrote:

Les points de tricots employés, rend ce modèle particulier et fort beau,

14.07.2019 - 14:31

country flag Ingrid wrote:

Absolutely beautiful!

04.07.2019 - 15:43