Tinna skrifaði:
När kommer beskrivningen?
17.10.2019 - 13:22
Anne skrifaði:
Når kommer oppskriften?
09.10.2019 - 18:10
Nicole skrifaði:
Echt een super leuke trui, hopelijk is hij makkelijk te breien,
08.10.2019 - 11:51
Karin Franz skrifaði:
Super schöner Kuschelpullover, den ich mir auch in großen Größen gut vorstellen kann.
06.09.2019 - 20:47
Kerstin skrifaði:
Wunderschön, ich seh mich schon vorm Kamin kuscheln.
20.08.2019 - 18:40
ASTRID skrifaði:
GREAT DESIGN
19.07.2019 - 10:20
Joanna skrifaði:
Przepiękny sweter. Nie moge się doczekać wzoru
11.07.2019 - 00:15
Martha skrifaði:
Den möchte ich stricken, ein richtiger Kuschelpulli für den Winter.
06.07.2019 - 16:55
Ingrid skrifaði:
A favorite of mine. And I'm not a schoolgirl but very much grown- up, aged 66 ;-)
04.07.2019 - 15:18
Ellis skrifaði:
Nice for schoolgirls
09.06.2019 - 21:34
Winter Cardinal#wintercardinalsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð síð peysa úr DROPS Nepal og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað með köðlum og háum kraga. Stærð XS - XXXL.
DROPS 205-47 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Öll úrtaka er gerð frá röngu áður en kaðlarnir byrja. Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 16 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 3) = 5,3. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 4. og 5. hverja lykkju brugðið saman. ÚRTAKA-2 (á við um mitt undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 34 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 4,25. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Framstykki og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. Það eru kaðlar bæði á framstykki og bakstykki. Stykkið er saumað saman á öxlum. Prjónaðar eru upp lykkjur meðfram handveg og ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður þar til ermakúpan hefur verið gerð til loka, síðan eru ermarnar prjónaðar í hring til loka. Ermar eru prjónaðar ofan frá og niður einungis til að geta stillt lengdina af að óskuðu máli. Að lokum eru erma- og hliðarsaumar saumaðir áður en prjónaður er hár kragi. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 114-124-124-134-144-144-154 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið *-* yfir næstu 10-15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið A.1 (= 29-29-29-29-33-33-33 lykkjur), prjónið A.2 (= 32-32-32-32-34-34-34 lykkjur), prjónið A.3 (= 29-29-29-29-33-33-33 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið *-* yfir næstu 10-15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en síðasta umferð í A.3-A.1 er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 1-3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, prjónið síðustu umferð í A.3, A.2 og A.1, prjónið 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 1-3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Stykkið mælist nú ca 6 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 97-103-107-113-121-127-135 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 6. Nú byrja kaðlarnir, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 10-13-15-18-17-20-24 lykkjur í sléttprjóni, prjónið A.4 (= 24-24-24-24-28-28-28 lykkjur), prjónið A.5 (= 27-27-27-27-29-29-29 lykkjur), prjónið A.6 (= 24-24-24-24-28-28-28 lykkjur), prjónið 10-13-15-18-17-20-24 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm, fellið af 5-5-5-7-8-8-9 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 87-93-97-99-105-111-117 lykkjur eftir. Prjónið síðan með 1 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 64-67-70-72-75-77-80 cm. Í næstu umferð frá réttu, fækkið um 8 lykkjur yfir 2 kaðla mitt að framan (prjónið lykkjurnar í hverjum kaðli slétt saman 2 og 2) = 79-85-89-91-97-103-109 lykkjur. Setjið síðan miðju 15-15-15-15-17-17-17 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af fyrir hálsmáli og lykkjur eru settar á þráð fyrir öxl eins og útskýrt er að neðan. Haldið áfram með mynstur og fellið af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkju 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 67-70-73-76-79-82-85 cm, fækkið um 4 lykkjur yfir kaðal á öxl (prjónið lykkjurnar í kaðli slétt saman 2 og 2 frá réttu). Setjið síðan lykkjur á þráð fyrir öxl þannig: Byrjið við handveg og setjið lykkjur á þráð í hverri umferð frá handveg þannig (til að þurfa ekki að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn): Setjið 8-9-10-10-11-12-13 lykkjur á þráð 2 sinnum og 8-9-9-10-10-11-12 lykkjur á þráð 1 sinni. Þegar allar lykkjurnar hafa verið settar á þráð fyrir öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli, mælist framstykkið ca 71-74-77-80-83-86-89 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. BAKSTYKKI: Fitjið upp 114-124-124-134-144-144-154 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 5 með 1 þræði Nepal + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 1 lykkja slétt, * 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið *-* yfir næstu 10-15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið A.1 (= 29-29-29-29-33-33-33 lykkjur), prjónið A.2 (= 32-32-32-32-34-34-34 lykkjur), prjónið A.3 (= 29-29-29-29-33-33-33 lykkjur), * 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, prjónið *-* yfir næstu 10-15-15-20-20-20-25 lykkjur, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff, en síðasta umferð í A.3-A.1 er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt 1-3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur – sjá ÚRTAKA-1, prjónið síðustu umferð í A.3, A.2 og A.1, prjónið 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt 1-3-1-3-4-1-2 lykkjur jafnt yfir þessar 11-16-16-21-21-21-26 lykkjur og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Stykkið mælist nú ca 6 cm frá uppfitjunarkanti og það eru 97-103-107-113-121-127-135 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 6. Nú byrja kaðlar, þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið 10-13-15-18-17-20-24 lykkjur sléttprjón, prjónið A.4 (= 24-24-24-24-28-28-28 lykkjur), prjónið A.5 (= 27-27-27-27-29-29-29 lykkjur), prjónið A.6 (= 24-24-24-24-28-28-28 lykkjur), prjónið 10-13-15-18-17-20-24 lykkjur sléttprjón og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 52-54-56-58-60-62-64 cm, fellið af 5-5-5-7-8-8-9 lykkjur í byrjun á 2 næstu umferðum fyrir handveg = 87-93-97-99-105-111-117 lykkjur eftir. Prjónið með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 67-70-73-76-79-82-85 cm. Í næstu umferð frá réttu, prjónið lykkjur í hverjum og einum af 4 köðlunum slétt saman 2 og 2 (= 16 lykkjur færri) = 71-77-81-83-89-95-101 lykkjur eftir. Fellið áfram af fyrir hálsmáli og setjið lykkjur á þráð fyrir öxl í hvorri hlið eins og útskýrt er að neðan. Fellið af miðju 21-21-21-21-23-23-23 lykkjurnar fyrir hálsmáli og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Haldið áfram með mynstur án kaðla, fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi. JAFNFRAMT eru lykkjur settar á þráð fyrir öxl alveg eins og útskýrt er í framstykki. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir öxl er fellt af fyrir hálsmáli, mælist bakstykkið ca 71-74-77-80-83-86-89 cm frá hæsta punkti á öxl og niður. Prjónið hina öxlina á sama hátt. ÖXL: Setjið 24-27-29-30-32-35-38 lykkjur af þræði á annarri öxlinni á hringprjón 6. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir þessar lykkjur, en til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni á milli þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið þráðinni í bilinu á milli 2 lykkja upp og setjið snúinn á vinstri prjón áður en hann er prjónaður saman með næstu lykkju á vinstri prjóni. Fellið síðan laust af allar lykkjur með sléttum lykkjum frá réttu. Prjónið á sama hátt meðfram hinum þremur axlastykkjunum. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. ERMI: Prjónið upp 42-44-48-50-54-56-58 lykkjur meðfram handveg innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni á hringprjón 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) – ATH: Ekki prjóna upp lykkjur meðfram botni í handvegi. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 3-3-3-4-5-5-6 cm (= ermakúpa og eins langt og botninn á handveg). Prjónið síðan ermi í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, það á að nota það síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá þar sem prjónamerkið var sett, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með 3-3-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 5-5-6-7-8-8-9 sinnum = 32-34-36-36-38-40-40 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 43-42-42-41-39-38-36 cm frá prjónamerki (nú á að vera búið að prjóna ermalengdina til loka, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Skiptið yfir á sokkaprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 4-8-6-6-4-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 36-42-42-42-42-48-48 lykkjur. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) í 5 cm. Prjónið 1 umferð slétt, fellið síðan af með brugðnum lykkjum. Prjónið hina ermina á sama hátt. Brjótið uppá stroffið neðst á báðum ermum og saumið e.t.v. niður með nokkrum smáum sporum. MEIRI FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið botninn á handveg. HÁR KRAGI: Prjónið upp ca 66 til 84 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) á stuttan hringprjón 5 með 1 þræði Nepal + 1 þræði KId-Silk (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 6). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið) í ca 11-12-12-13-13-14-14 cm, eða að óskaðri lengd. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintercardinalsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-47
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.