Holmenkollen |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa með opnu garðaprjóni, fölsku klukkuprjóni og háum kraga úr DROPS Andes. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-48 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 (= falskt klukkuprjón) og A.2. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MÆLING: Öll mál á lengdina eru gerð þegar stykkinu er haldið uppi, annars kemur peysan til með að verða of síð miðað við mál í mynsturteikningu þegar flíkin er mátuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum, neðan frá og upp og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, neðan frá og upp. ATH! Þegar lykkjum fækkar/fjölgar í fölsku klukkuprjóni, er uppslátturinn alltaf talinn + lykkja sem lyft var yfir sem 1 lykkja. BAKSTYKKI: Fitjið upp 72-78-81-90-96-105 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 10 með Andes. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-53-55-61-65-71 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm – SJÁ MÆLING, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (haldið áfram með 1 kantlykkju í hvorri hlið). Prjónið síðan eftir A.2. Prjónið 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar af A.2 hæðina. Nú er prjónuð 1 umferð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) og mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 43-47-49-55-59-65 lykkjur. Haldið áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 44-46-46-48-50-50 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Síðan er prjónað eftir A.2. Þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Fellið af miðju 13-13-15-15-17-17 lykkjur og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 lykkju við háls = 14-16-16-19-20-23 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 72-78-81-90-96-105 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 10 með Andes. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjón, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 49-53-55-61-65-71 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (haldið áfram með 1 kantlykkju í hvorri hlið). Prjónið síðan eftir A.2. Prjónið 3-3-3-4-4-4 mynstureiningar af A.2 hæðina. Nú er prjónuð 1 umferð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) og mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm, fellið af 3 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg = 43-47-49-55-59-65 lykkjur. Haldið áfram með A.1. Þegar stykkið mælist 44-46-46-48-50-50 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Síðan er prjónað eftir A.2. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm, fellið af fyrir hálsmáli þannig: Setjið miðju 9-9-11-11-13-13 lykkjur á þráð og prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum hvoru megin við háls í annarri hverri umferð þannig: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni = 14-16-16-19-20-23 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón. Fitjið upp 39-42-42-45-45-48 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 10 með Andes. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Þ.e.a.s. mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 10 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (haldið áfram með 1 kantlykkju í hvorri hlið). Prjónið síðan eftir A.2. Haldið áfram með þetta mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm byrjar útaukning í hlið á ermi. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, aukið út með 9-8-8-7½-7½-7½ cm millibili alls 5 sinnum = 37-39-39-41-41-43 lykkjur. Lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar prjónaðar hafa verið 2 mynstureiningar af A.2, prjónið 1 umferð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan A.1 (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu) og mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu (eins og áður). Þegar stykkið mælist 41-40-40-38-38-37 cm, prjónið næstu umferð þannig – frá röngu: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur. Prjónið síðan eftir A.2. Þegar stykkið mælist 49-48-48-46-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið vinstri axlasaum (þegar flíkin liggur fyrir framan þig). KRAGI: Byrjið efst á hægri öxl við hálsmál á framstykki, prjónið upp (meðtaldar lykkjur á þræði) ca 65-75 lykkjur meðfram framstykki og bakstykki. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón og saumað saman í hlið í lokin. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju garðaprjón. Prjónið síðan frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri): Prjónið 1 kantlykkju garðaprjón, A.1 þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 kantlykkju garðaprjón. Þ.e.a.s. mynstrið byrjar og endar með 1 lykkju slétt í fölsku klukkuprjóni innan við 1 kantlykkju garðaprjón í hvorri hlið á stykki, séð frá réttu. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar kraginn mælist 20 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Saumið kragann saman í ystu lykkjubogana á garðaprjóni í hlið, svo að kanturinn verði ekki of þykkur. Saumið axlasauma. FRÁGANGUR: Saumið ermar í og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ystu lykkjubogana í garðaprjóni. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (8)
Nicola Welack wrote:
Ich habe 82M angeschlagen. Für den Halsausschnitt kette ich 16M ab. Nun soll ich am Halsausschnitt 1M abketten, so dass ich noch 16M pro Schulter übrig habe. Soll aber nach 2cm den Rest abketten (64cm Halsausschnitt, 66cm abketten). Wie soll ich so auf 16M pro Schulter kommen? Dafür bräuchte ich ca.10cm... Zudem sehen die Schultern auf dem Foto viel breiter aus... Wie ist die Beschreibung hier zu verstehen? Herzliche Grüße! Nicola Welack
12.12.2022 - 20:04DROPS Design answered:
Liebe Frau Welack, in L beginnt man mit 81 Maschen, bei der 1. Reihe wird es schon bis 55 Maschen abgennommen, dann werden 3 M beidseitig für die Armlöcher abgekettet = 55-6=49 M. Dann werden die mittleren 15 M abgekettet = 17 M für jeden Schulter - 1 Abnahme = 16 M pro Schulter. Viel Spaß beim stricken!
13.12.2022 - 08:02Serenella wrote:
Buongiorno, potete spiegarmi meglio come passare dalle 72 maglie avviate, senza effettuare diminuzioni, a 49 maglie, come sembra essere indicato nelle istruzioni per il dietro, nelle prime quattro righe? Analogamente, per il davanti. Grazie mille
24.09.2022 - 16:45DROPS Design answered:
Buongiorno Serenella, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo: deve ripeetere * 1 maglia diritto, 2 maglie insieme a rovescio * sul ferro. Buon lavoro!
26.09.2022 - 17:14Gabriele Böttcher wrote:
Hallo, mir fehlen die Maße. Es ist aus den angegebenen Daten nicht zu erkennen wieviel Reihen oder Zentimeter die einzelnen Musterabschnitte haben. Die Wolle habe ich schon
08.01.2022 - 22:05DROPS Design answered:
Liebe Frau Böttcher, diese Angaben finden Sie in der Anleitung, z.B. A.2 stricken Sie nach Bündchen und wird 3 oder 4 Mal (siehe Größe) in der Höhe wierdeholt, dann stricken Sie A.1 bis die Arbeit 42...47 cm misst, dann stricken Sie A.2, usw. Viel Spaß beim stricken!
10.01.2022 - 08:19Gagnon Antonine wrote:
Bonjour je fais le gilet 205-48 je fais maintenant les manches et je ne sais pas comment faire les augmentations avec les fausses côtes anglaises
19.11.2021 - 20:19DROPS Design answered:
Bonjour Mme Gagnon, choisissez votre technique préférée pour augmenter et augmentez 1 maille de chaque côté à 1 maille du bord (ex. jeté, relevez 1 m etc...), tricotez ensuite les mailles en suivant A.1: si la maille suivant l'augmentation est la 1ère m de A.1, tricotez cette nouvelle maille comme la 2ème m de A.1, si la maille précédente est la 1ère m de A.1, tricotez l'augmentation comme la 2ème maille de A.1 et ainsi de suite pour que le motif s'agrandisse de chaque côté. Bon tricot!
22.11.2021 - 07:22Sally wrote:
Er opskriften til at finde???
14.09.2019 - 17:43Iris wrote:
Hallo, ich vermisse die Anleitung dazu????
08.09.2019 - 01:10Ingrid wrote:
Fantastic
04.07.2019 - 14:59Ellis wrote:
To wide, dropped shoulders again, to long sleeves!! not my choice
09.06.2019 - 20:37