Henriette skrifaði:
Hei. Sliter litt med å skjønne hva som er A.2...
06.01.2021 - 13:37DROPS Design svaraði:
Hei Henriette, A.2 er de første maskene i diagrammet ( 1 kast og 1 rett med natur på første raden). A.2 har, med andre ord, økningene, mens A.3 er det samme hele veien. Rad 2 i A.2 er 1 rett med natur og 1 rett med mørk grå, på rad 3 er det 1 kast,1 rett med natur, 1 rett med mørk grå). God fornøyelse!
07.01.2021 - 07:51
Yvonne Vest skrifaði:
I opskriften står der. Når sidste udtagning er færdig, er der i L 336 m og arbejdet måler ca 23 cm fra halskanten, hvor er det? er det helt fra starten? Fortsæt mønster som før, uden udtagninger til arbejdet måler 23 cm , det er altså samme mål som før. Derudover er jeg for længst ud over de 23 cm og har lavet strikke prøve, desuden er 23 cm meget kort til en mande str L Mvh
02.01.2021 - 07:53DROPS Design svaraði:
Hej Yvonne, du finder alle mål til den den størrelse du har valgt, i måleskitsen nederst i opskriften. Det kan være at et nummer større passer dig bedre?
07.01.2021 - 15:38
Mariia skrifaði:
Beklager! Nå forstår jeg - det er bare 2 extra A3 hver gang:)
14.12.2020 - 12:45
Mariia skrifaði:
Hei, jeg har et spørsmål. Hvordan man "Continue this pattern onwards; i.e. the pattern repeats itself as shown in A.2/A.4". Starter jeg med den A3 for nytt eller hva de betyr? Mange takk:)
11.12.2020 - 22:24DROPS Design svaraði:
Mariia. Så flott at du fant det ut selv :) God Fornøyelse videre med genseren.
16.12.2020 - 13:41
Carolin skrifaði:
Hallo liebes Drops Team, nachdem ich A2-A3-A4-A5 einmal in der Höhe gestrickt habe, verstehe ich nicht wie ich danach weiter in der Höhe stricken soll. Wo genau nehme ich Maschen zu und wie kommt man bei 26 Zunahmen (Größe M) auf 304 M auf der Nadel? Ich bin aktuell leider etwas aufgeschmissen :(
14.11.2020 - 14:52DROPS Design svaraði:
Liebe Carolin, Diagramme stricken Sie wie zuvor, aber jetzt gibt es genügend Maschen zwischen A.2 und A.4 um 2 Rapporte mehr von A.3 zu stricken, dh: A.2 (= über die 3 erste M. von vorrigen A.2) A.3 6 x wiederholen (1. A.3 wird über die 8 letzten M von vorrigen A.2 und letztes A.3 wird über die ersten 8 M von vorrigen A.4 gestrickt), A.4 (3 M über die 3 letzten M von vorrigen A.4) (= Rückenteil), A.5 wie zuvor stricken und so weiterstricken, Sie nehmen 1 Maschen in jedem A.2/A.4 wie zuvor zu. Viel spaß beim stricken!
16.11.2020 - 08:07
Britta skrifaði:
Er det muligt at få nogle mål på Reykjavik herreblusen? Jeg er i tvivl om jeg skal strikke S eller M.
06.11.2020 - 21:39DROPS Design svaraði:
Hej Britta, ja selvfølgelig, du finder målene på sweateren i måleskitsen nederst i opskriften. God fornøjelse!
09.11.2020 - 11:25
Randi Brodersen skrifaði:
Jeg strikker str XL har jeg ret i at ærmer er 20 masker og for og bagstykke er 32 masker plus de 4x2 masker der er raglang =112 masker
22.10.2020 - 22:53DROPS Design svaraði:
Hei Randi. Du må må også huske raglan økningene, slik at du ved første omgang på bærestykket har økt med 8 masker = 120 masker. God Fornøyelse!
26.10.2020 - 08:51
Alvhild Flatjord skrifaði:
Skal strikke Reykjavik herregensar. Kan det være feil i starten på bærestykke. Eg får ikkje mønsteret til å stemme..
03.09.2020 - 17:50DROPS Design svaraði:
Hej Alvhild, For at vi skal kunne hjælpe dig, behøver vi vide mere om hvad du ikke kan få til at stemme. Skriv til os hvilken størrelse du strikker, hvor du er i opskriften, og hvor mange masker du har, så skal vi se på det. Husk at markere som et spørgsmål. :)
04.11.2020 - 11:24
Knithexe skrifaði:
Hallo, die Zunahme unter dem Achsel bei der Größe XL sollte nicht 10 sein? Bei 8 Maschen passt das Muster nicht. Viele Grüße, Knithexe
19.06.2020 - 19:40DROPS Design svaraði:
Liebe Knithexe, in Größe XL haben Sie 224 Maschen, damit können Sie 28 Mal die 8 Maschen A.6 wiederholen. Viel Spaß beim stricken!
22.06.2020 - 07:14
Ella skrifaði:
Hej! Jag tänkte börja sticka den här tröjan går det att byta ut garnet drops lima mot nepal? Eller finns det andra garn att byta ut det mot?
09.05.2020 - 14:56DROPS Design svaraði:
Hej, Nepal är ett tjockare garn än Lima så vi rekommenderar inte att du använder det som garnalternativ här. Välj istället ett garn som hör till samma Garngrupp och har samma stickfasthet som Lima (Garngrupp B), t.ex. Karisma eller Puna.
13.05.2020 - 17:41
Reykjavik#reykjaviksweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með norrænu íslensku mynstri með laskalínu úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 208-3 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynstur A.1 er prjónað í stroffi. Mynstur A.2 til A.6 er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 8) = 11. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með ½ númeri grófari prjónum eða að fella af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur og sláið e.t.v. uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman með litnum natur, (prjónamerki situr hér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt með natur, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli með uppábroti, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-104-108-112 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með litnum dökk grár. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm, prjónið síðan A.1 í stroffi. Prjónið 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 8-4-0-8-20-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 96-96-96-112-128-128 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umferðar. BERUSTYKKI: Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 32-32-32-32-40-40 lykkjur (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = bakstykki, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 8 lykkjur) og A.4 (= 1 lykkja) = ermi, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 32-32-32-32-40-40 lykkjur (= 4-4-4-4-5-5 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = framstykki, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína, prjónið A.2 (= 1 lykkja), A.3 yfir næstu 8-8-8-16-16-16 lykkjur (= 1-1-1-2-2-2 mynstureiningar með 8 lykkjum) og A.4 (= 1 lykkja) = ermi, prjónið A.5 (= 2 lykkjur) = laskalína. Nú er fyrstu útaukningu fyrir laskalínu lokið og það eru 104-104-104-120-136-136 lykkjur á prjóni (það eru 36-36-36-36-44-44 lykkjur á bakstykki og á framstykki, 12-12-12-20-20-20 lykkjur á hvorri ermi og 2 lykkur í hverri af 4 laskalínum). Haldið áfram með þetta mynstur upp úr. Þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 og A.4 (= alls 8 lykkjur fleiri í annarri hverri umferð). Sjá LEIÐBEININGAR og ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 176-176-176-192-208-208 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur á saman hátt upp úr, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.2/A.4. Mynsturteikning A.3 er prjónuð 2 sinnum fleiri á breiddina fyrir hvert skipti sem 16 umferðirnar eru endurteknar á hæðina. Haldið svona áfram með útaukningu þar til aukið hefur verið út alls 22-26-30-32-32-34 sinnum á hæðina hvoru megin við A.2/A.4. Þegar síðasta útaukningin hefur verið gerð eru 272-304-336-368-384-400 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 17-20-23-25-25-26 cm frá kanti í hálsmáli. Haldið áfram með mynstur eins og áður, en án útaukninga þar til stykkið mælist 19-21-23-25-27-29 cm frá kanti í hálsi. Næsta umferð er prjónuð þannig, byrjið 1-1-1-3-3-5 lykkjum á undan byrjun á umferð: Prjónið 80-88-96-104-112-120 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 56-64-72-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 80-88-96-104-112-120 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 56-64-72-80-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-8-16-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 176-192-208-224-256-272 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í aðra hliðina mitt í 8-8-8-8-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu, prjónamerkið merkir byrjun á umferð. Prjónið A.6 hringinn (= 22-24-26-28-32-34 mynstureiningar með 8 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í sléttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið sé endurtekið eins og áður á breiddina og á hæðina. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 36 cm frá skiptingu – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt með natur þar sem aukið er út um 36-36-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir = 212-228-248-268-304-324 lykkjur. Prjónið A.1 í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur með litnum dökk grár – sjá AFFELLING. ERMI: Setjið 56-64-72-80-80-80 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-8-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 64-72-80-88-96-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-8-16-16 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerkið. Prjónið A.6 hringinn (= 8-9-10-11-12-12 mynstureiningar með 8 lykkjum) – byrjið á sléttri lykkju og í sléttri umferð í mynsturteikningu, þannig að mynstrið sé endurtekið eins og áður bæði á breiddina og á hæðina, en fyrsta og síðasta lykkjan í umferð er alltaf prjónuð í litnum natur (þetta er gert til að fá fallega úrtöku undir ermi). Þegar stykkið mælist 7-5-4-3-2-2,5 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 7-5-4-3-2-2,5 cm millibili alls 6-8-10-12-16-14 sinnum = 52-56-60-64-64-68 lykkjur eftir í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 45-43-42-40-38-38 cm frá skiptingu (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og lengra berustykkis) – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur. Prjónið A.1 í stroffi (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, fellið af með litnum dökk grár – sjá AFFELLING. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Brjótið uppá hálsmálið að röngu. Saumið uppfitjunarkantinn niður með litnum dökk grár – saumið með smáu spori innan á peysunni (passið uppá að saumurinn sjáist ekki á framhlið og að saumurinn verði ekki stífur). |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #reykjaviksweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 208-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.