Ellis skrifaði:
Same as z 858, why 2 the same??
09.06.2019 - 20:43
Christina Helander skrifaði:
Tycker mycket om modellen!
08.06.2019 - 13:42
Helen skrifaði:
Nydelig. Fin fasong.
08.06.2019 - 12:55
Caroline skrifaði:
Snoezig en hip.
05.06.2019 - 17:34
Caroline skrifaði:
Snoezig en hip.
05.06.2019 - 17:33
Weekend Vibe#weekendvibesweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, klukkuprjóns lykkjum á berustykki og blöðruermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-39 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 162 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 12) = 13,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir 13. og 14. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er prjónuð tilskiptis 12. og 13. hver lykkja og 13. og 14. hver lykkja slétt saman. ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerkið situr mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR (á við um lengd á ermum): Hægt er að stilla af lengd á ermum að óskaðri lengd, en passið uppá að lengdin á að vera aðeins lengri en venjulega svo að ermin poki aðeins neðst niðri. AFFELLING: Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur þegar fellt er af, er hægt að nota grófari prjón eða sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er síðan felldur af eins og venjuleg lykkja). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist til fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað úr 2 þráðum Melody. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 42-45-48-51-51-54 lykkjur á stuttan hringprjón 7 með 2 þráðum Melody. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 70-75-80-85-85-90 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur (uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat). Setjið 1 prjónamerki í umferð. Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan, berustykkið er mælt frá prjónamerki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 12. Prjónið A.1 hringinn (= 14-15-16-17-17-18 mynstureiningar með 5 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-8-9-9-10-10 cm frá prjónamerki við hálsmál, prjónið A.2 hringinn = 14-15-16-17-17-18 mynstureiningar með 5 lykkjum). Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 126-135-144-153-153-162 lykkjur í umferð. Prjónið síðan A.3 hringinn (= 14-15-16-17-17-18 mynstureiningar með 9 lykkjum). Haldið áfram með A.3 þar til stykkið mælist ca 18-20-22-22-24-24 cm frá prjónamerki við hálsmál. Í næstu umferð er prjónað slétt JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út eins og útskýrt er að neðan – sjá ÚTAUKNING/ÚRTAKA: S: Fækkið um 4 lykkjur, M: Fækkið um 1 lykkju, L: Aukið út um 4 lykkjur, XL: Aukið út um 3 lykkjur, XXL: Aukið út um 7 lykkjur, XXXL: Aukið út um 12 lykkjur = 122-134-148-156-160-174 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 20-22-24-25-27-29 cm frá prjónamerki við hálsmál, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Þ.e.a.s. næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 19-21-23-25-26-28 lykkjur sléttprjón (= ½ bakstykki), setjið næstu 22-24-28-28-28-30 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 39-43-46-50-52-57 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 22-24-28-28-28-30 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-4-6-6 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 20-22-23-25-26-29 lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni (= ½ bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 86-94-100-108-116-126 lykkjur. Byrjið mitt í 4-4-4-4-6-6 lykkjum undir ermi í annarri hlið á stykki og prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 28 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd). Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 2-1-1-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 84-93-99-105-114-123 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – sjá AFFELLING! Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 22-24-28-28-28-30 lykkjur af öðrum þræðinum í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 12 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 4-4-4-4-6-6 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 26-28-32-32-34-36 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-4-6-6 lykkjur undir ermi og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Það á að nota það aðeins síðar þegar auka á út mitt undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingu, aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 4½-5-7-4-4½-5 cm millibili alls 8-7-5-8-7-6 sinnum = 42-42-42-48-48-48 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-40-39-37-36-34 cm frá skiptingu (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli, mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd – sjá LEIÐBEININGAR). ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykki. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 21-21-21-24-24-24 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – munið eftir AFFELLING! Ermin mælist ca 47-45-44-42-41-39 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #weekendvibesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.