Loles skrifaði:
Og jeg tror at jeg fant at feilen er på oppskriften? \"Legg opp 52-52-56-68 m på settpinner\"... jeg strikke den største og ser at kanskje det skule være 58 masker på pinne? Uffda, så mye jobb med mønster :/ bettyr at jeg må starte på begynnelsen.
18.11.2022 - 21:26DROPS Design svaraði:
Hei Loles. Se vårt svar på ditt forrige spørsmål (ingen feil i oppskriften). mvh DROPS Design
21.11.2022 - 10:51
Loles skrifaði:
Hei, jeg strikker etter oppskriften men størrelsen er gigant (fra begynnelsen, men mye mer når jeg øker),hva gjør jeg feil da? Takk.
18.11.2022 - 21:05DROPS Design svaraði:
Hei Loles. Har du sjekket at strikkefastheten din stemmer med det som er oppgitt i oppskriften? I den største størrelsen legges det opp 68 masker ( ikke 58 masker), så strikkes det vrangbord i 4 cm. Vrangborden strikkes med 2 rett / 2 vrang og vil trekke arbeidet sammen. Når vrangborden er ferdig strikket, byttes det til pinne 3,5 og det felles 8 masker = 60 masker på pinnen, Når du da ser på den oppgitte strikkefastheten er 60 cm ca 27 cm. Og i str. 41/43 må man ha den omkretsen på en sokk. mvh DROPS Design
21.11.2022 - 10:50
Laura Mork skrifaði:
Jeg vil gjerne stricker socken på størrelse 44/46 , hva skal jeg endre da?
11.01.2021 - 15:31DROPS Design svaraði:
Hei Laura, Det er fotlengden du skal endre på. Fortsette å strikke til riktig lengde før du begynner å felle til tåen. God fornøyelse!
13.01.2021 - 07:54
Tess skrifaði:
"Sticka de 2 första maskorna efter 26-26-28-32 maskorna uppepå foten räta tillsammans och de 2 sista maskorna före de 26-26-28-32 maskorna uppepå foten vridet räta tillsammans" Jag får det till att maskorna innan markören ska stickas vridet räta tillsammans och att de två maskorna efter markören ska stickas tillsammans, stämmer det att mönstret ska vara så? Stickade mina sockar på det sättet men tycker det ser lite roligt ut...
29.11.2020 - 23:26DROPS Design svaraði:
Det stämmer att maskorna före markören stickas vridet räta tillsammans och att maskorna efter markören stickas räta tillsammans.
04.12.2020 - 14:21
Margit Hovind skrifaði:
Hei. Jeg ser at «buene» på toppen av sokken (der det rosa stopper), ikke er med i oppskriften.
22.04.2020 - 20:57
Midnight Snow#midnightsnowsocks |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 32-43.
DROPS 203-33 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu og öll mynsturteikningin er prjónuð í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 52 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 4) = 13. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna 12. og 13. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi lykkjum jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 60 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 15. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 15. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9-9-9-11 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9-9-9-11 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-8-10 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 8-8-10-10 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, prjónað er í hring á sokkaprjóna niður að hæl. Hællinn er prjónaður fram og til baka áður en prjónað er aftur í hring þar til sokkurinn er tilbúinn. SOKKUR: Fitjið upp 52-52-56-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með litnum kirsuber DROPS Lima. Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroff í 3-3-3-4 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA í útskýringu að ofan = 48-48-48-60 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan mynsturteikningu A.1 alls 8-8-8-10 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er mynsturteikning A.2 prjónuð þannig: Prjónið A.2A yfir 4-4-4-0 lykkjur, A.2B yfir 40-40-40-60 lykkjur og A.2C yfir 4-4-4-0 lykkjur. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er mynsturteikning A.3 prjónuð (veldu mynsturteikningu sem passar við stærðina) alls 6-6-6-10 sinnum hringinn í umferð. Þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð 1 sinni á hæðina er afgangurinn af stykkinu prjónaður með litnum svartur og í fyrstu umferð er aukið út um 0-0-0-4 lykkjur jafnt yfir í umferð – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING í útskýringu að ofan = 48-48-48-64 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-21-22 cm. Haldið eftir fyrstu 12-12-13-15 lykkjum á prjóni, setjið næstu 24-24-22-34 lykkjur á þráð (= mitt ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 12-12-13-15 lykkjum á prjóni = 24-24-26-30 lykkjur fyrir hæl. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 4½-5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki. Nú er prjónuð HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-10-12-10 lykkjur hvoru megin við hæl og 24-24-22-34 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 52-52-56-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 26-26-28-32 lykkjur mitt ofan á fæti. Prjónið sléttprjón hringinn og fækkið lykkjum í hvorri hlið þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjur eftir 26-26-28-32 lykkjum ofan á fæti slétt saman og síðustu 2 lykkjur á undan 26-26-28-32 lykkjum ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogana í stað fremri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4 sinnum = 44-44-48-56 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 16-18-20-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-4-4-5 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 22-22-24-28 lykkjur bæði undir fæti og ofan á fæti. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 3-3-3-4 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-6-7-7 sinnum = 8-8-8-12 lykkjur á prjóni. Prjónið allar lykkjur saman 2 og 2 = 4-4-4-6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið á þræði og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightsnowsocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.