DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tippy Toe

Prjónaðir sokkar úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með stroffi, sléttprjóni og klassískum hæl. Stærð 35-43.

DROPS 203-36
DROPS Design: Mynstur ne-303
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
35/37 – 38/40 – 41/43
Lengd fótar: 22-24-27 cm
Hæð á sokk: 15-15-15 cm.

EFNI:
DROPS NEPAL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
100-150-150 g litur 0618, kamel
50-50-50 g litur 8909, kórall

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2112.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja, setjið þráðinn á vinstri prjón og prjónið snúið slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna niður yfir stroff, hællinn er prjónaður fram og til baka áður en hann er prjónaður saman mitt undir. Prjónið síðan fótinn í hring á sokkaprjóna.

STROFF / LEGGUR:
Fitjið upp 39-41-45 lykkjur með litnum kamel á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, prjónið sléttprjón og aukið út um 0-2-2 lykkjur í fyrstu umferð = 40-44-48 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 15 cm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 20-22-24 lykkjur í umferð (= ofan á fæti) og setjið þessar lykkjur á þráð. Prjónið sléttar lykkjur og aukið jafnframt út 4-4-4 lykkjur jafnt yfir þær lykkjur sem eftir eru í umferð – SJÁ ÚTAUKNING! = 24-26-28 lykkjur (= hællykkjur). Skiptið yfir í litinn kórall, snúið stykkinu og prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.

HÆLL:
Prjónið síðan fram og til baka yfir hællykkjur þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið þar til 1 lykkja er eftir og prjónið 1 lykkju garðaprjón. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur með 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið þar til hællinn mælist 5-5½-6 cm. Setjið eitt prjónamerki mitt í umferð (það er notað síðar til að mæla frá). Í næstu umferð frá réttu er prjónað sléttprjón og fækkað um 4-4-4 lykkjur jafnt yfir = 20-22-24 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu og prjónið 1 umferð slétt frá réttu.
Prjónið nú fram og til baka frá röngu til að prjóna hællykkjurnar saman.

HÆLLYKKJUR PRJÓNAÐAR SAMAN:
Allar umferðir eru prjónaðar frá röngu. Snúið og prjónið fyrstu 10-11-12 lykkjur brugðið frá röngu. Passið uppá að þráðurinn sé frá bakhlið á stykki (= liggi að réttu á stykki) og prjónið þannig:

VINSTRI PRJÓNN: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, lyftir síðan til baka lykkjunum sem prjónaðar voru saman yfir á vinstri prjón og herðið á þræði. Ekki snúa stykkinu.

HÆGRI PRJÓNN: Stingið inn vinstri prjóni í 2 næstu lykkjur á hægri prjón (prjónið inn frá vinstri til hægri og passið uppá að prjóninn liggi aftan við hægri prjón), sækið þráðinn og leggið hann utan um vinstri prjón, dragið síðan þráðinn í gegnum þessar 2 lykkjur (frá hægri til vinstri) og sleppið síðan 2 lykkjunum af hægri prjóni. Lyftið síðan til baka lykkjunum sem prjónaðar voru saman yfir á hægri prjón og herðið á þræði. Ekki snúa stykkinu.

Endurtakið VINSTRI og HÆGRI PRJÓNN svona þar til 2 lykkjur eru eftir. Nú hafa hællykkjurnar verið prjónaðar saman. Setjið 2 lykkjur sem eftir eru á hægri prjón og snúið stykkinu að réttu.

FÓTUR:
Notið litinn kamel og prjónið 9-10-11 lykkjur meðfram fyrri hlið á hæl (innan við 1 lykkju garðaprjón), setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur eins og áður, prjónið upp 9-10-11 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl (innan við 1 lykkju garðaprjón) = 40-44-48 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist 19-20-23 cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-4-4 cm að loka máli). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fæti (þannig að það verða 20-22-24 lykkjur bæði ofan á og undir fæti). Skiptið yfir í kórall, prjónið sléttprjón og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman, prjónið 2 lykkjur (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja) og prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið alveg eins við hitt prjónamerkið.
Fækkið lykkjum í hverri umferð þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið síðan 2 og 2 lykkjur slétt saman í næstu umferð = 4 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar nokkrum sinnum og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.02.2020
Leiðrétting: STROFF: Fitjið upp 39-41-45 lykkjur með kamel á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið stroff með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið í 3 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, prjónið sléttprjón og aukið út um 0-2-2 lykkjur í fyrstu umferð = 40-44-48 lykkjur.
Yfirfarið á vefsvæði: 21.02.2020
Leiðrétting: FÓTUR: Notið kamel og prjónið 9-10-11 lykkjur meðfram fyrri hlið á hæl (innan við 1 lykkju garðaprjón), setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur eins og áður, prjónið upp 9-10-11 lykkjur meðfram hinni hliðinni á hæl (innan við 1 lykkju garðaprjón) = 40-44-48 lykkjur.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 203-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Mona wrote:

Læg mærke til hæl-konstruktionen - efter min mening ikke særlig pæn. Så nu trevler jeg lidt op og laver en traditionel hæl.

21.02.2024 - 21:48

country flag Maylen wrote:

Hvor i omgangen skal man bytte til korall før tåfelling? Midt under foten eller ved første merketråd?

19.12.2023 - 12:51

DROPS Design answered:

Hej Maylen, det er en god ide at starte omgangen under foden, så ser du ikke det lille hak der kan blive når man skifter tråd :)

19.12.2023 - 14:32

country flag Solya wrote:

Hello, Úgy látom a magyar fordításban sajnos nem minden pontos. Amit eddig észrevettem, hogy a kezdőszemek száma más: az angol verzióban 40-42-46 szemmel kell kezdeni, míg a magyarban ez 39-42-45 (és így a bordás minta 1S, 1F-ja sem jön ki). Illetve később a sarok leírásában az áll: "szaporítsunk 4-4-4 szemet = 20-22-24 szemünk lesz" - de előtte eddig 26 szemünk volt, úgyhogy pont, hogy fogyasztani kell, nem? Köszönöm. :)

17.04.2023 - 08:29

country flag Sissel wrote:

Hei - sokker med brushed alpaca silk - bruker oppskrift med nepalgarn - skal gå ifølge tabellen - skal jeg bruke dobbelt garn av alpaca/sil garnet - det gjelder denne oppskriften på sokker med nepalgarn

03.04.2022 - 12:56

DROPS Design answered:

Hei Sissel, Begge garn er i samme garngruppe så da kan Nepal erstatte Brushed Alpaca Silk, Da følger du oppskriften som gitt, men det er lurt å strikke en prøvelapp før du begynner, for å sjekke strikkefastheten din. God fornøyelse!

04.04.2022 - 07:03

country flag Ferial wrote:

"Force" a raison quoi faire avec les 2 m?,...les laisser sur l aiguille toute seules et continuer comme ca en jersey?...1 aiguille a 2m...1 a 11 m (relevé)...1 a les m en attentes et 1 a 11 mailles relevé ?en continuant en jersey sur 4 aiguilles,?...sinon sur quelles aiguilles mettre les 2 m ?....et combien de mailles par aiguille sinon..?...merci..et la video s arrete exactement la ou on as besoin d explications.

23.01.2022 - 00:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ferial, remettez ces 2 dernières mailles sur l'aiguille droite et tournez, relevez 11 m (3ème taille), tricotez les 24 m du dessus du pied et relevez 11 m = 2+11+24+11=48 mailles. Tricotez maintenant en rond, en jersey. Bon tricot!

24.01.2022 - 10:32

country flag Lena Falk wrote:

Hej. Jag har en fråga om hälen: är det resårstickning samt 1 m rätstickning i var sida? Lite otydlig beskrivning.

06.09.2021 - 17:16

DROPS Design answered:

Hej Lena. Ja det stämmer. Mvh DROPS Design

07.09.2021 - 09:43

country flag Force wrote:

I think I don't understand. There are 2 stitches from heel, I pick up 22 stitches in total and I have 22 stitches on thread = 46 stitches not 44.

19.02.2020 - 15:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs Force, pattern will be here edited, you will have to pick up only 10 sts in 2nd size (=9-10-11 sts) on each side of heel so that the total number of stitches will be 44 stitches together with the stitches from thread + the 2 remaining sts from heel. Happy knitting!

21.02.2020 - 15:18

country flag Force wrote:

Hi again, I would like to follow up on my question you answered with video, the problem is the video ends exactly in situation in which i am at this moment and i don't know how to continue. What do I do with the two stitches left after the heel is done (right at tvé end of the video)? Thank you

19.02.2020 - 10:25

DROPS Design answered:

Dear Force, the 2 remaining stitches are slipped on the right needle, turn piece so that you will continue from RS, then follow pattern under FOOT: pick up 11 sts along first side of heel, knit stitches from thread and pick up 11 sts along last side of heel and continue now in the round over the 44 stitches. Happy knitting!

19.02.2020 - 11:53

country flag Force wrote:

Hi I do not quite understand what to do with the two remaining stitches after WORKING TOGETHER THE HEEL-STITCHES. I am doing the 38/40 size. You say:"Place the 2 stitches on the right needle and turn the piece to the right side. " Then I am supposed to pick up 11 stitches, then knit the threaded stitches and then pick up another 11 = 44 but what do I do with the two remaining from the heel? Thank you

18.02.2020 - 17:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Force, this video shows how to work such a heel - to time code 08.41 you see how to work the first part of heel, than you work half of the stitches (11 sts in your size) and work now the decreases from WS as shown from 10:10. Happy knitting!

19.02.2020 - 08:50

country flag Maria Holm wrote:

Når det er oddetall i vrangborden, hvordan fungerer det? Blir det to like etter hverandre på et punkt? 1 r og 1 v går vel i togangen, men 39 masker er ikke i togangen.

16.01.2020 - 23:21

DROPS Design answered:

Hej Maria, jo det stemmer, vi retter og slår 1 maske mere op - tak for info :)

04.02.2020 - 08:39