Monika Rock skrifaði:
Alles in Allem sehr gut beschrieben.
13.12.2020 - 05:07
Jill Kingscott skrifaði:
How many balls of wool for each colorare needed to make this sweater in a large size?
21.11.2020 - 23:03DROPS Design svaraði:
Dear Jill, for size L, you'd need: -color 11: 4 balls - color 03: 6 balls - color 02: 5 balls - color 01 : 1 ball (All of them of DROPS Brushed Alpaca Silk, where 1 ball is 25gr) Happy knitting!
21.11.2020 - 23:11
Lena skrifaði:
Hallo, könnte ich als Garnalternative Drops Big Merino verwenden? Wenn ja, wissen Sie wie viele Garn ich benötige für Größe L? Herzlichen Dank im Voraus.
13.08.2020 - 16:52
Myriam DEVAUCHELLE skrifaði:
Merci beaucoup, vos explications sont toujours claires et très utiles
12.07.2020 - 12:07
Myriam DEVAUCHELLE skrifaði:
Au titre de "l'empiècement", vous indiquez: - tricoter un rang endroit sur l'endroit - le rang retour "à l'endroit" sur l'envers - continuer en jersey si je comprends bien on tricote donc trois rangs à l'endroit, est ce bien cela? merci d'avance
09.07.2020 - 19:09DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Devauchelle, vous tricotez d'abord 2 rangs jersey: 1 sur l'endroit en augmentant + 1 sur l'envers (à l'endroit = on a une côte mousse). On met des marqueurs sans tricoter et au rang suivant (= le 3ème rang après le col), on continue avec l'aiguille 8 en commençant à augmenter pour le raglan. Bon tricot!
10.07.2020 - 07:55
Myriam DEVAUCHELLE skrifaði:
Merci de votre réponse, c'est très clair.
31.03.2020 - 10:51
Myriam DEVAUCHELLE skrifaði:
Bonjour, au titre de l'empiècement, vous indiquez de poser 4 marqueurs et de faire 13 augmentations, ce que j'ai fait et j'obtiens bien pour la taille M , 173 mailles. vous indiquez ensuite d'augmenter encore 2 fois mais seulement sur les devaints et le dos, cela signifie t'il que les augmentations doivente se faire au niveau du 1° et du 4° marqueurs, ou au niveau du 2° et du 3°? merci de votre réponse à venir.
30.03.2020 - 20:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Devauchelle, pour augmenter sur les devants et le dos seulement, augmentez avant le 1er marqueur (devant), après le 2ème marqueur (= début du dos), avant le 3ème marqueur (fin du dos) et après le 4ème marqueur (début du devant) = 4 augmentations. (= vous n'augmentez pas après le 1er/avant le 2ème = 1ère manche ni après le 3ème/avant le 4ème = 2ème manche). Bon tricot!
31.03.2020 - 09:20
Annette skrifaði:
Hej. Kan man bruge Drops Air til denne opskrift i stedet for? Hvis ja .....er det så 1 eller flere tråde? Vh Annette
29.03.2020 - 20:03DROPS Design svaraði:
Hej Annette, Ja du kan bruge DROPS Air istedet for Brushed, men da jakken er strikket i 3 tråde, tror jeg du skal bruge 2 tråde Air. Tjek din strikkefasthed så du får 10,5 masker i bredden på 10 cm. God fornøjelse!
14.04.2020 - 15:57
Myriam DEVAUCHELLE skrifaði:
Merci beaucoup. J'ai fini le col et je passe à l'empiècement. A bientôt certainement, c'est la première fois que je travaille de haut en bas
10.03.2020 - 10:40
Myriam DEVAUCHELLE skrifaði:
Dans vos explications, il est précisé pour le col que lorsque celles ci mesurent 4 centimètres il faut "placer un marqueur dans" Où faut il donc les placer? je fais la taille M merci de votre aide
10.03.2020 - 09:18DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Devauchelle, et merci pour votre retour! Ce mot a été supprimé: vous placez simplement un marqueur sur votre rang/votre ouvrage, ce marqueur va ensuite servir à mesurer l'ouvrage (= sans les 4 cm du col). Mettez-le simplement après les mailles des bordures des devants par exemple. Bon tricot!
10.03.2020 - 10:38
Forest Shadows#forestshadowsjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr 3 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 207-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 54 lykkjur) mínus kanta að framan í garðaprjóni (= 8 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 11) = 4,1. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. RENDUR-1: Allar rendur eru prjónaðar með 3 þráðum. RÖND 1: 7-7-8-8-8-9 cm með 2 þráðum skógargrænn + 1 þræði grár. RÖND 2: 14-14-16-16-16-18 cm með 2 þráðum grár + 1 þræði skógargrænn. RÖND 3: 7-7-8-8-8-9 cm með 1 þræði skógargrænn + 1 þræði grár + 1 þræði ljós grár. RÖND 4: 7-7-8-8-8-9 cm með 2 þráðum grár + 1 þræði ljós grár. RÖND 5: 7-7-8-8-8-9 cm með 1 þræði grár + 2 þráðum ljós grár. RÖND 6: Prjónið með 3 þráðum ljós grár í stroffi. RÖND 7: Prjónið stroff með 2 þráðum ljós grár + 1 þræði natur. RENDUR-2 (á við um ermar): Allar rendur eru prjónaðar með 3 þráðum. Haldið nú áfram með RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan, þar til 3. röndin hefur verið prjónuð til loka. Ermin mælist nú ca 8-6-8-6-4-6 cm frá skiptingu. Prjónið nú rendur þannig: RÖND 4: 13-13-12-12-12-11 cm með 2 þráðum grár + 1 þræði ljós grár. RÖND 5: 13-13-12-12-12-11 cm með 1 þræði grár + 2 þráðum ljós grár. RÖND 6: Prjónið með 3 þráðum ljós grár til loka. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðinn svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-5-6 næstu hnappagötum með ca 9½-9½-10-10-10-10 cm millibili. ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 54-58-58-62-66-66 lykkjur á hringprjón 6 með 3 þráðum í litnum skógargrænn. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan þannig: Prjónið 4 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 4 cm, setjið 1 prjónamerki í stykkið. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 11-11-11-11-15-19 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 65-69-69-73-81-85 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt til baka frá röngu (kantlykkjur að framan eru prjónaðar slétt). Skiptið yfir á hringprjón 8. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerki eftir 14-15-15-16-18-19 lykkjur, hoppið yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 21-23-23-25-29-31 lykkjur (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 8 lykkjur (= ermi), setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 14-15-15-16-18-19 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta prjónamerki. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið og prjónið RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 12-13-15-16-16-17 sinnum = 161-173-189-201-209-221 lykkjur. Haldið síðan áfram með útaukninu í annarri hverri umferð á framstykki og á bakstykki (lykkjur eru ekki auknar út á ermum) 2-2-2-2-3-4 sinnum til viðbótar = 169-181-197-209-221-237 lykkjur. Prjónið síðan án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-31 cm. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið fyrstu 28-30-32-34-37-40 lykkjur (= hægra framstykki), setjið næstu 32-34-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 49-53-57-61-67-73 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 32-34-38-40-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið þær 28-30-32-34-37-40 lykkjur sem eftir eru (= vinstra framstykki). Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 117-125-133-145-157-169 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með RENDUR-1, sléttprjón og 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31 cm frá skiptingu, aukið út um 17-21-21-21-25-25 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 134-146-154-166-182-194 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroff þannig: 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, 2 lykkjur slétt, 4 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 32-34-38-40-40-42 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 8 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 38-40-44-48-48-50 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki mitt í nýjar lykkjur (= 3-3-3-4-4-4 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón og RENDUR-2, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, fækkið um 2 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 4½-3½-3-2-2-2 cm millibili alls 7-8-9-11-10-11 sinnum = 24-24-26-26-28-28 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-36-35-33-31-30 cm aukið út um 4-4-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir = 28-28-32-32-36-36 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 6. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) hringinn í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-39-37-35-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #forestshadowsjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 207-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.