MATHIEU Sylvie skrifaði:
Modèle très original tout en dégradé dont je souhaite avoir les explications prochainement
25.07.2019 - 11:41
Andrea skrifaði:
Ooooooh, wie schön ist der denn!! Machen will!!!
18.07.2019 - 10:19
Kinga skrifaði:
Kolorystyka idealnie trafiona w mój gust, no i ten dekolt, baaardzo ciekawy.
11.07.2019 - 22:54
Caroline skrifaði:
Prachtig in alle eenvoud. Mooi kleurverloop
29.06.2019 - 14:14
Emalie skrifaði:
Me encanta el cuello, un estilo muy moderno.
23.06.2019 - 12:10
Margaretha skrifaði:
Simple sweater with lovely neckline. Colours are beautiful.
07.06.2019 - 17:11
Elin skrifaði:
Love the neckline and shape of this jumper, beautiful colours.
07.06.2019 - 09:48
Pia Raukamo skrifaði:
Ihanan minimalistinen. Tällaista olen etsinyt.
06.06.2019 - 10:12
Cloudscape#cloudscapesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað í sléttprjóni með rönguna út og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem fækka á/fjölga eigi út lykkjum (t.d. 70 lykkjur) mínus kantlykkjur (t.d. 2 lykkjur) og deilið þeim 68 lykkjum sem eftir eru með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 6) = 11,3. Í þessu dæmi er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur). Ef auka á út þá er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 11. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um hliðar á ermi): Öll úrtaka er gerð frá röngu! Fækkið lykkjum svona á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI (stykkið er prjónað neðan frá og upp): Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með rönguna út (prjónið brugðið frá réttu og slétt frá röngu) og prjónið með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk eins og útskýrt er að neðan (= 3 þræðir). A = Alpaca KS = Kid-Silk. 5-6-7-7-7-7 cm með 1 þræði sæblár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS. 10-11-11-12-12-12 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS. 8-8-8-9-9-9 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS. 4-4-4-4-4-5 cm með 1 þræði bleikfjólublár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS. 5-5-5-5-6-6 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS. 4-4-4-4-4-5 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS. 9-9-9-9-9-9 cm með 1 þræði ljós lavender A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS. Prjónið síðan með 1 þræði ljós kamel A + 1 þræði grár KS + 1 þræði ljós lavender KS til loka. RENDUR ERMAR (stykkið er prjónað ofan frá og niður): Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með rönguna út (prjónið brugðið frá réttu og slétt frá röngu) og prjónið með 1 þræði Alpaca og 2 þráðum Kid-Silk eins og útskýrt er að neðan (= 3 þræðir). A = Alpaca KS = Kid-Silk. 9-9-8-8-7-7 cm með 1 þræði ljós lavender A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS (= efst á ermi). 4-4-4-4-4-3 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði öskugrár KS + 1 þræði grár KS. 5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði milligrár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS. 4-4-4-4-4-3 cm með 1 þræði bleikfjólublár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS. 8-7-7-7-7-7 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði grár KS. 9-9-9-8-8-8 cm með 1 þræði dökk brúnn A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS. Prjónið síðan með 1 þræði sæblár A + 1 þræði svartur KS + 1 þræði öskugrár KS til loka. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón í hlutum og saumað saman í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 70-78-82-90-98-106 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 6 með 1 þræði sæblár Alpaca + 1 þræði svartur Kid-Silk + 1 þræði öskugrár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Prjónið síðan stroff þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið allar lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 6-8-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 64-70-76-82-90-98 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA og passið uppá að fyrsta röndin verði 9-10-11-11-11-11 cm að stroffinu meðtöldu. Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Prjónamerkin merkja hvar handvegurinn byrjar. Haldið áfram með rendur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm fellið af fyrir öxl, þ.e.a.s. í næstu umferð er prjónað frá réttu þannig: Fellið af 14-17-18-21-24-28 lykkjur fyrir öxl (passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur), prjónið sléttprjón með rönguna út yfir næstu 36-36-40-40-42-42 lykkjur, setjið síðan þessar 36-36-40-40-42-42 lykkjur á þráð, fellið af þær 14-17-18-21-24-28 lykkjur sem eftir eru fyrir öxl. Geymið stykkið og prjónið bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Fitjið upp jafn margar lykkjur og á framstykki og prjónið á sama hátt og framstykki. Þ.e.a.s. framstykki og bakstykki eru alveg eins. ERMI: Ermarnar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón, ofan frá og niður. Fitjið upp 52-54-56-60-62-64 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjón 7 með 1 þræði ljós lavender Alpaca + 1 þræði öskugrár Kid-Silk + 1 þræði grár Kid-Silk (= 3 þræðir). Prjónið RENDUR ERMI með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. Þegar ermin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 11-12-12-13-14-14 sinnum í hvorri hlið = 30-30-32-34-34-36 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 45-44-43-41-39-37 cm (eða að óskaðri lengd, nú eru eftir ca 4 cm að loka máli – ATH: Það er styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið 1 umferð slétt frá réttu, þar sem aukið er út um 4-4-2-4-4-2 lykkjur jafnt yfir = 34-34-34-38-38-38 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Haldið áfram með lit frá síðustu rönd og prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið allar lykkjur slétt. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 4 cm, en endið eftir umferð frá röngu. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum frá réttu. Ermin mælist ca 49-48-47-45-43-41 cm ofan frá og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkantinn. Saumið ermar í á milli prjónamerkja fyrir handveg – saumið innan við 1 kantlykkju á framstykki/bakstykki. Saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt – saumið innan við 1 kantlykkju. KRAGI: Setjið 36-36-40-40-42-42 af þræði á framstykki og 36-36-40-40-42-42 lykkjur af þræði á bakstykki saman á stuttan hringprjón 7 = 72-72-80-80-84-84 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn með rönguna út með 1 þræði ljós kamel A + 1 þræði grár KS + 1 þræði ljós lavender KS. Þegar kraginn mælist ca 17-17-19-19-21-21 cm, prjónið 1 umferð slétt, 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cloudscapesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.