Gee Horton skrifaði:
Can you recommend a non wool substitute yarn for this pattern at all please? I am fine with alpaca but allergic to wool/lanolin
07.10.2019 - 12:53DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Horton, you can try our yarn converter to find the matching alternatives with our Alpaca yarns - your DROPS store will also help you to find the best matching alternatives, even per telephone or per Email. Happy knitting!
07.10.2019 - 13:25
Judith skrifaði:
Lovely pattern but why not all instructions together followed byhelpful advice/diagrams
04.10.2019 - 21:54
Lorraine skrifaði:
I’m knitting top don in round sweater many colours how do I know which color to increase in and how do I increase
01.10.2019 - 15:41DROPS Design svaraði:
Dear Lorraine, the increases for the round yoke are included in the diagram A.1 - make a yarn over, see last symbol diagram key. Make this yarn over with the colour of the background ot make it less visible, work it with the colour shown on next round as in diagram. Happy knitting!
01.10.2019 - 17:21
Susanne skrifaði:
Kann ich dieses Modell auch in Drops Lima arbeiten? Wie rechne ich das um?
18.08.2019 - 11:23DROPS Design svaraði:
Liebe Susanne, dieses Modell wird mit Nepal (= Garngruppe C) gestrickt, aber Lima gehört der Garngruppe B. Die Garnalternativen finden Sie durch unseren Garnumrechner finden; oder hier finden Sie alle Modellen, die mit Lima gestrickt werden können. Viel Spaß beim stricken!
19.08.2019 - 10:23
Katharina Amport skrifaði:
Meeresblau sind in L 50g, orange 100g angegeben, aber: Meeresblau sind die Sterne in Kombination mit natur über 10 Reihen und als Punkte im königsblau. Orange ist nur die Zackenreihe nahe am Halsausschnitt. Das scheint mir unlogisch.
01.08.2019 - 15:44DROPS Design svaraði:
Orange hat noch eine weitere Zackenreihe, auf Brusthöhe in etwa. Dargestellt in Diagramm A.2. Sie werden in Größe L für Orange auch nicht die ganzen 100 g brauchen, aber eben mehr als nur 50 g, daher sind dann 100 g angegeben.
02.08.2019 - 09:18
Katharina Amport skrifaði:
Wie schaut es mit den Materialmengen aus? Sollten nicht auch die noch geändert werden: Mehr Meeresblau und weniger Orange?
01.08.2019 - 08:14DROPS Design svaraði:
Die Materialmengen stimmt. Es wurden lediglich die Symbole für Meeresblau und Violett im Diagramm vertauscht, Orange war ja von vornherein richtig. Schauen Sie genau hin, die Symbole für Orange und Meeresblau sind sich ähnlich... Orange hat einen etwas dickeren Kreis, Meeresblau eine dünnere Raute.
01.08.2019 - 08:44
Katharina Amport skrifaði:
Die Sterne sind sollten doch in Meeresblau sein, sie sind aber mit dem Zeichen von Violett eingetragen
31.07.2019 - 08:25DROPS Design svaraði:
Ja, da haben Sie Recht, violett und meeresblau sind tatsächlich vertauscht. Das wird in Kürze korrigiert.
31.07.2019 - 09:17
Amport skrifaði:
Kann es sein, dass Sie in der Farbenlegende die Zeichen für Orange und Meeresblau verwechselt haben?
30.07.2019 - 10:22DROPS Design svaraði:
Sie müssen das Diagramm auf den Kopf stellen, damit Sie die farbliche Reihenfolge richtig sehen. Der Pullover wird von oben nach unten gestrickt, das Diagramm aber von unten nach oben gelesen. Die Farben passen wie im Diagramm dargestellt. Viel Spaß beim Stricken! :-)
30.07.2019 - 10:48
Winter Escape#winterescapesweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 205-4 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðunum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. Mikilvægt er að halda réttri prjónfestu á hæðina, ef prjónað er of fast þá kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of lítill. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 82 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 20,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir 20. og 21. hverri lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur. Einnig er hægt að sleppa upphækkuninni, þá verður hálsmálið alveg eins bæði að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykkið er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSI: Fitjið upp 68-72-84-88-92-100 lykkjur á hringprjón 4 með litnum gulur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2-3-1-2-3-0 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 70-75-85-90-95-100 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða fara beint áfram í berustykki ef ekki er óskað eftir upphækkun. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Byrjið frá réttu frá miðju að aftan og prjónið með gulur: Prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið herðið á þræði og prjónið 55-55-60-65-65-70 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 66-66-72-78-78-84 lykkjur brugðið, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. BERUSTYKKI: Sjá LEIÐBEININGAR! Prjónið A.1 yfir allar lykkjur (= 14-15-17-18-19-20 mynstureiningar með 5 lykkjum). Haldið áfram með mynstur með útaukningu þar til eftir er 1 umferð í A.1. Nú eru 252-270-306-324-342-360 lykkjur í umferð. Prjónið síðustu umferð í A.1, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður til 246-274-304-322-344-362 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan næstu umferð þannig, byrjið nú með A.2 yfir allar lykkjur í A.1: Prjónið 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og fyrsta umferð í A.2 sýnir (= hálft bakstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 74-80-90-96-106-114 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.2 (= framstykki), setjið næstu 48-56-62-64-66-68 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið 38-41-45-49-53-56 lykkjur eins og útskýrt er í fyrstu umferð í A.2 (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-192-210-228-246 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp. Haldið áfram með A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað áfram í sléttprjóni með litnum gulur. Þegar stykkið mælist 15 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Aukið svona út með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 5 sinnum = 182-194-212-230-248-266 lykkjur – SJÁ ÚTAUKNING-2. Þegar stykkið mælist 34-36-36-38-38-40 cm frá skiptingu, prjónið eina umferð þar sem aukið er út um 38-42-44-50-52-58 lykkjur jafnt yfir – SJÁ ÚTAUKNING-1 = 220-236-256-280-300-324 lykkjur. Skiptið yfir í hringprjón 4. Prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið stroffið svona í 4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 48-56-62-64-66-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 ykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-62-68-72-74-78 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 54-60-66-72-78-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki undir ermi, fækkið lykkjum með 5-3-2½-2-2-2 cm millibili alls 7-10-12-14-15-15 sinnum = 40-40-42-44-48-48 lykkjur – SJÁ ÚRTAKA. Þær lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í A.2 þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í grunnlit. Þegar ermin mælist ca 35-36-34-35-33-34 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt með gulur þar sem aukið er út um 8-8-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir = 48-48-48-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterescapesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 205-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.