Maria Kassalia skrifaði:
Was heißt 10 maschen unter denn arm glatt rechts stricken muß ich die 10 maschen zunehmen ich habe nach denn 82 stillegente maschen weitere 10 maschen rechts geschtrickt aber das kommt am ende nicht hin. vielen dank
26.09.2019 - 23:20DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kassalia, Das Rumpftteil wird so aufgeteilt: stricken Sie die ersten 51 Maschen glatt rechts, dann legen Sie die nächsten 82 Maschen still und schlagen Sie 10 neuen Maschen (= unter dem Arm), dann stricken Sie die nächsten 102 Maschen gallt rechts, legen Sie die nächsten 82 M still und schlagen Sie 10 neuen Maschen an (= unter dem Arm) und stricken Sie die letzten 51 Maschen glatt rechts. Siehe auch dieses Video ab 6:52. Viel Spaß beim stricken!
27.09.2019 - 08:21
Katrin skrifaði:
Hei har alkurat begynt å strikke men det er noe som ikke stemmer . På bildet ser det ut som om det bare er 2 riller før A1 begynner men når jeg følger oppskriften får jeg 3 riller før jeg begynner med A1 er det en feil i oppskriften for den kanten jeg får er bredere
24.09.2019 - 19:06DROPS Design svaraði:
Hej Katrin, du har ret, du strikker kun 1 rille, det er rettet i opskriften - tak for info :)
26.09.2019 - 08:20
Maria Kassalia skrifaði:
Hallo ich versuche das kleid zu stricken bei der 2 und 3 zunahme ist es richtig A1 zu wiederholen oder A3.
05.09.2019 - 20:54DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Kassalia, die 3Zunahmenrunden werden in A.1 gestrickt und zwar in jeder der 3 Runden mit einem Pfeil; nach der 2. Zunahmen, haben Sie jetzt genügend Maschen um A.1 25-34 x (siehe Grösse) in der Breite zu stricken, nach dem 3. Pfeil/Zunahmen haben Sie genügend Maschen um A.1 26-36 x in der Breite zu stricken. Nach A.1 stricken Sie A.2. Viel Spaß beim stricken!
06.09.2019 - 07:52
Yvonne skrifaði:
Volgens mij staat er in de 21nld van patroon A2 een fout hier hou ik op het laatst 7 steken over ipv 5 steken.
18.08.2019 - 15:58DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne,
Het aantal steken op de naald zou gelijk moeten blijven nadat je naald 21 uit telpatroon A.2 hebt gebreid. (De omslagen en minderingen compenseren elkaar.)
01.09.2019 - 13:57
Line skrifaði:
Inspiration tout à fait divine
30.07.2019 - 01:53
Yvonne skrifaði:
Heel mooi jurk. Hopelijk komt de beschrijving snel zou hem graag willen maken
09.07.2019 - 14:43
Beata skrifaði:
Piękna sukienka!
08.07.2019 - 17:29
Stefania skrifaði:
Non vedo l'ora di fare questo abito ai ferri!
18.06.2019 - 13:25
Claire skrifaði:
Amo este vestido
17.06.2019 - 20:57
Kerstin Strand skrifaði:
En varm o skön klänning till vintern
16.06.2019 - 14:10
Date Night#datenightdress |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-8 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Upphækkunin er prjónuð í garðaprjóni. Setjið 1 merki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá merki, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 49-56-56-63-63-70 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-64-64-72-72-80 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að merki. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 4,18. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkið er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-108-112-118 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með DROP Sky. Prjónið 2 umferðir GARRÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 22-24-26-24-26-26 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 = 114-120-126-132-138-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4. Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra að aftan – sjá UPPHÆKKUN. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan. Prjónið A.1 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjur (= alls 19-20-21-22-23-24 sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í hverri umferð með stjörnu (= útauknings umferð er aukið út þannig: ÚTAUKNING 1: Aukið út 24-24-24-24-30-30 lykkjur jafnt yfir = 138-144-150-156-168-174 lykkjur. A.1 er endurtekið 23-24-25-26-28-29 sinnum á breiddina. ÚTAUKNING 2: Aukið út 12-18-24-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 150-162-174-180-192-204 lykkjur. A.1 er endurtekið 25-27-29-30-32-34 sinnum á breiddina. ÚTAUKNING 3: Aukið út 6-6-6-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 156-168-180-192-204-216 lykkjur. A.1 er endurtekið 26-28-30-32-34-36 sinnum á breiddina. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 8 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið A.2 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 13-14-15-16-17-18 sinnum á breiddina). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 273-308-330-368-391-414 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 7-4-8-0-1-12 lykkjur jafnt yfir = 280-312-338-368-392-426 lykkjur. Stykkið mælist ca 21-22-22-24-24-24 cm. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 38-42-45-51-56-62 lykkjur, setjið næstu 64-72-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið sléttprjón yfir næstu 76-84-91-102-112-125 lykkjur, setjið næstu 64-72-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 38-42-46-51-56-63 lykkjur sléttprjón. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 168-184-202-224-248-274 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið 1 merki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið merkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2 cm millibili alls 25 sinnum = 268-284-302-324-348-374 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 55-55-56-56-56-57 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 2-4-4-0-0-4 lykkjur jafnt yfir = 270-288-306-324-348-378 lykkjur. Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjón 3,5. Prjónið garðaprjón í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 86-88-90-92-94-96 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-72-78-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi = 72-80-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 13-16-19-19-20-21 sinnum = 46-48-50-54-56-58 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-41-40-39-37-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón hringinn í 2 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Ermin mælist alls ca 44-43-42-41-39-38 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #datenightdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.