Jackie skrifaði:
I am making date night. Do you work the diagrams top down or bottom up?
10.12.2024 - 17:36DROPS Design svaraði:
Hi Jackie, All diagrams are worked bottom up and from right to left. Happy knitting!
11.12.2024 - 06:27
Stella Tidman skrifaði:
I love this and would like to make it for myself but with cap sleeves. Which Size should I knit for uk size 16? How much would making it cap sleeve affect yarn quantity? Many thanks
19.11.2024 - 11:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Tidman, to find out the appropriate size, just measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the one in the chart - read more here. To find out how much yarn you might require with shorter sleeve, you can try to get help from a similar garment, same shape/measurements with the requested sleeve length. But remember also that your DROPS Store can also help you, even per mail or telephone. Happy knitting!
19.11.2024 - 14:05
Maria Cini skrifaði:
I \'d like to knit this pattern for an 8 year old girl. If I knit the small size in 4ply yarn will it be good in size? Thanks.
11.10.2024 - 10:54
Maria Cini skrifaði:
I \'d like to knit this pattern for an 8 year old girl. If I knit the small size in 4ply yarn will it be good in size?
11.10.2024 - 10:45DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Cini, you will find a child version for this dress here, it might help you. Happy knitting!
11.10.2024 - 16:02
Stephanie skrifaði:
Ich würde zu gern wissen allgemein was Xxxl für ne Größe entspricht hätte irgendwie Sorge man fängt an und am Ende rippelt man nur auf
20.09.2024 - 20:45DROPS Design svaraði:
Liebe Stephanie, messen Sie eine ähnliche Kleidung, die Sie gerne haben und tragen und vergleichen Sie mit der Maßskizze, so finden Sie die passende Größe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
23.09.2024 - 07:44
Stephanie skrifaði:
Ich würde gerne wissen welche Größe xxxl sein soll 42 oder 48 oder gar 50 oder 54 vielleicht ? Ich kann mit Xxxl nicht so viel anfangen als Angabe bin aber eben eine korpulente Frau
25.02.2024 - 07:21DROPS Design svaraði:
Liebe Stephanie, messen Sie eine ähnliche Kleidung, die sie gerne haben, und vergleichen Sie mit der Maßskizze, so finden Sie die beste passenden Größe - hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!
26.02.2024 - 10:28
Eva-Maria Dewes skrifaði:
Ich stricke gerade dieses Kleid. Normalerweise passt es immer, wenn ich die angegebene Nadelstärke verwende. Hierbei komme ich einfach nicht auf das Maß. Mit Nadel 4 fehlen mir nach A2 mehrere cm.... ich muss auf 5er Nadeln ausweichen, um die Maschenprobe annähernd hinzubekommen. Kann das sein? Und wo wird gemessen. Hinten am Nacken (wo die optionale Erhöhung gestrickt wurde( oder vorne am Hals Ausschnitt? Lieben Dank für Ihre Hilfe und herzliche Grüße, Eva-Maria Dewes
21.11.2023 - 16:35
Judy Poleg skrifaði:
Hi, I would like to knit this beautiful dress for my granddaughter who lives far from me, so I would have to rely on her measurements. However, please advise which size I should knit for a 13-14 year old. (She is actually only 9, but extremely tall for her age. ) Many thanks in advance. Judy Poleg
22.10.2023 - 12:18DROPS Design svaraði:
Hi Judy, it would be best to get the measurements and compare them to our drawing. However, if this is not possible, women's size S will be suitable. Take care and happy knitting!
22.10.2023 - 13:07
Judy Poleg skrifaði:
Hi, I would like to knit this beautiful dress for my granddaughter, who is 9 years old, but extremely tall. She lives in the US, so I would have to work according to her measurements. I think I should aim for a size to fit a 13-14 year old, so please advise which size to knit. Many thanks in advance. Judy Poleg
06.10.2023 - 17:25
Marjo Vliegen skrifaði:
Ik brei deze jurk. Maar al bij het begin klopt het telpatroon niet. Ik lees het van boven naar beneden. Maar ik krijg het omgekeerde patroon. Moet ik van beneden naar boven lezen.
09.09.2023 - 17:47
Date Night#datenightdress |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll með hringlaga berustykki úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-8 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. UPPHÆKKUN (á við um aftan í hnakka): Upphækkunin er prjónuð í garðaprjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 7-8-8-9-9-10 lykkjur framhjá prjónamerki, snúið, herðið á þræði og prjónið 14-16-16-18-18-20 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 21-24-24-27-27-30 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 28-32-32-36-36-40 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 35-40-40-45-45-50 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 42-48-48-54-54-60 lykkjur slétt til baka. Snúið, herðið á þræði og prjónið 49-56-56-63-63-70 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið 56-64-64-72-72-80 lykkjur slétt til baka, snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að prjónamerki. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 22) = 4,18. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir svo að ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA-1 (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Síðan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram hringinn á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-108-112-118 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Sky. Prjónið 2 umferðir GARRÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 22-24-26-24-26-26 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 114-120-126-132-138-144 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið. Skiptið yfir á hringprjón 4. Til að flíkin passi betur er hægt að prjóna upphækkun í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra að aftan – sjá UPPHÆKKUN. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan. Prjónið A.1 (= 6 lykkjur) yfir allar lykkjur (= alls 19-20-21-22-23-24 sinnum á breidd). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í hverri umferð með stjörnu (= útauknings umferð er aukið út þannig: ÚTAUKNING 1: Aukið út 24-24-24-24-30-30 lykkjur jafnt yfir = 138-144-150-156-168-174 lykkjur. A.1 er endurtekið 23-24-25-26-28-29 sinnum á breiddina. ÚTAUKNING 2: Aukið út 12-18-24-24-24-30 lykkjur jafnt yfir = 150-162-174-180-192-204 lykkjur. A.1 er endurtekið 25-27-29-30-32-34 sinnum á breiddina. ÚTAUKNING 3: Aukið út 6-6-6-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 156-168-180-192-204-216 lykkjur. A.1 er endurtekið 26-28-30-32-34-36 sinnum á breiddina. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 8 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið A.2 (= 12 lykkjur) yfir allar lykkjur (= 13-14-15-16-17-18 sinnum á breiddina). Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 273-308-330-368-391-414 lykkjur í umferð. Í næstu umferð er aukið út um 7-4-8-0-1-12 lykkjur jafnt yfir = 280-312-338-368-392-426 lykkjur. Stykkið mælist ca 21-22-22-24-24-24 cm. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 21-23-24-26-28-29 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið fyrir ermar og fram- og bakstykki þannig: Prjónið sléttprjón yfir fyrstu 38-42-45-51-56-62 lykkjur, setjið næstu 64-72-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið sléttprjón yfir næstu 76-84-91-102-112-125 lykkjur, setjið næstu 64-72-78-82-84-88 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi, prjónið 38-42-46-51-56-63 lykkjur sléttprjón. Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 168-184-202-224-248-274 lykkjur fyrir fram- og bakstykki. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út í hliðum. Þegar stykkið mælist 3 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-2. Aukið svona út með 2 cm millibili alls 25 sinnum = 268-284-302-324-348-374 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 55-55-56-56-56-57 cm. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 2-4-4-0-0-4 lykkjur jafnt yfir = 270-288-306-324-348-378 lykkjur. Prjónið A.3 (= 6 lykkjur) hringinn í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á hringprjón 3,5. Prjónið garðaprjón í 2 cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Stykkið mælist ca 86-88-90-92-94-96 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 64-72-78-82-84-88 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum undir ermi = 72-80-88-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli 8-8-10-10-12-12 lykkja undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1½ cm millibili alls 13-16-19-19-20-21 sinnum = 46-48-50-54-56-58 lykkjur. Þegar ermin mælist 42-41-40-39-37-36 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið garðaprjón hringinn í 2 cm. Fellið síðan af með sléttum lykkjum. Ermin mælist alls ca 44-43-42-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #datenightdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 206-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.