Cora |
|
|
|
Prjónuð dúkka með 2 þráðum DROPS BabyMerino eða 1 þræði DROPS Big Merino og DROPS Cotton Merino. Prjónaðar stuttbuxur og snúnings sokka með 1 þræði DROPS BabyMerino.
DROPS Children 35-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR: Til að litur á hári verði eins jafn og mögulegt er eru fyrstu 10-12 umferðirnar prjónaðar á toppnum á höfði með lit á hári – eða prjónað að óskaðri lengd. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri). ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að taka upp 1 lykkju frá umferð að neðan sem nýlega hefur verið prjónuð þannig: Stingið inn oddinum á vinstri prjóni í lykkju frá röngu og setjið lykkjuna á vinstri prjón, prjónið lykkjuna snúna slétt (í aftari lykkjubogann) (= 1 lykkja fleiri). ÚTAUKNING-1: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með prjónamerki, aukið út um 1 lykkju, prjónið 3 lykkjur slétt (miðju lykkjan = lykkja með prjónamerki í), aukið út um 1 lykkju (= 2 lykkjur fleiri). ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið svona út við bæði prjónamerkin (= alls 4 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- DÚKKA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Dúkkan er prjónuð í hring í sléttprjóni, ofan frá og niður. Dúkkan er fyllt með vatti jafnóðum og stykkin eru tilbúin. Byrjað er mitt ofan á höfði, aukið er út fyrir höfði og lykkjum fækkað fyrir háls, síðan er aukið út fyrir búk og hendur. Lykkjur fyrir hendur eru settar á þræði og búkurinn er síðan prjónaður í hring. Síðan skiptist stykkið upp fyrir opi fyrir fætur sem eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. Að lokum eru lykkjur af þráðum settar til baka á prjóninn og hendur eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. HÖFUÐ: Fitjið upp 8 lykkjur á 3 sokkaprjóna 3,5 með 2 þráðum með litnum vanillugulur Cotton Merino – sjá LEIÐBEININGAR. Prjónið síðan 1 umferð slétt. Aukið síðan út þannig (prjónið með 4 sokkaprjónum þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur): Umferðin byrjar við miðju að aftan. UMFERÐ 1: Prjónið * 1 lykkju slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 16 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. UMFERÐ 3: Prjónið * 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 24 lykkjur. UMFERÐ 4: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. UMFERÐ 5: Prjónið * 3 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 32 lykkjur. UMFERÐ 6: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. UMFERÐ 7: Prjónið * 4 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 40 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 8: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. UMFERÐ 9: Prjónið * 5 lykkjur slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* yfir allar lykkjur = 48 lykkjur. UMFERÐ 10: Prjónið slétt, uppslátturinn frá fyrri umferð er prjónaður snúinn, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 6 cm, JAFNFRAMT: Skiptið yfir í litinn ljós beige eftir fyrstu 10 til 12 umferðir. Prjónið síðan áfram þannig: UMFERÐ 1: Aukið nú út um 10 lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið 1 lykkju, 1 uppsláttur, prjónið * 5 lykkjur, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 8 sinnum, prjónið 4 lykkjur, 1 uppsláttur, prjónið síðustu 3 lykkjur = 58 lykkjur. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt. Aukið nú út fyrir kinnum í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 2: Prjónið 22 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju – sjá ÚTAUKNING, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, prjónið 12 lykkjur slétt (= andlit), aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju og endið með 22 lykkjur slétt = 62 lykkjur. UMFERÐ 3: Prjónið slétt. UMFERÐ 4: Prjónið 22 lykkjur slétt, * aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju *, prjónið 12 lykkjur slétt, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 22 lykkjur slétt = 70 lykkjur. UMFERÐ 5: Prjónið slétt. UMFERÐ 6: Prjónið 22 lykkjur slétt, * aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 5 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju *, prjónið 12 lykkjur slétt, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar og endið með 22 lykkjur slétt = 78 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 12 cm. Fækkið nú lykkjum fyrir háls þannig: UMFERÐ 1: Prjónið * 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri),4 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju slétt = 64 lykkjur. UMFERÐ 2: Setjið 16 prjónamerki í stykkið þannig: * Prjónið 4 lykkjur slétt, setjið 1 prjónamerki *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Fækkið síðan um 1 lykkju eftir 1., 3., 5., 7., 9., 11., 13., og 15. Prjónamerki (= 8 lykkjur færri) – sjá ÚRTAKA! Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju á eftir 2., 4., 6., 8., 10., 12.,14., og 16. prjónamerki (= 8 lykkjur færri). Haldið svona áfram með úrtöku, þ.e.a.s. fækkið lykkjum til skiptis við annað hvert prjónamerki, alls 5 sinnum = 15 lykkjur. Prjónið 2 umferðir slétt. Höfuðið er nú tilbúið. BÚKUR: = 24 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki hér: Prjónið 3 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, 4 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju (= vinstri hendi), 6 lykkjur slétt (= framstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju, 4 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 prjónamerki í þessa lykkju (= hægri hendi) og endið með 3 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Í næstu umferð er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við lykkjur með prjónamerki þannig: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hverja lykkju með prjónamerki – sjá ÚTAUKNING-1 (= 2 lykkjur fleiri við hvert prjónamerki = alls 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið svona út í hverri umferð alls 6 sinnum, síðan í annarri hverri umferð alls 3 sinnum = 96 lykkjur. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og hendur þannig: Prjónið 12 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið næstu 24 lykkjur á þráð fyrir hendi og fitjið upp 2 lykkjur undir hendi, prjónið 24 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 24 lykkjur á þráð undir hendi og prjónið upp 2 lykkjur undir ermi, prjónið síðustu 12 lykkjur slétt (= hálft bakstykki) = 52 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 nýrra lykkja undir hvorri hendi (= 26 lykkjur í hvorri hlið). Í næstu umferð er aukið út um 2 lykkjur undir hvorri hendi – sjá ÚTAUKNING-2! Aukið svona út alls 2 sinnum = 60 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur þar til stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp undir hvorri hendi, nú er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út með 1 cm millibili alls 4 sinnum = 76 lykkjur. Þegar búkurinn mælist 12 cm, skiptist stykkið fyrir 2 fætur. Fellið af 2 lykkjur fyrir klof, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 34 lykkjur, fellið af næstu 4 lykkjur fyrir klof, prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 34 lykkjur, fellið af síðustu 2 lykkjur fyrir klof = 34 lykkjur fyrir hvorn fót. Klippið frá og festið enda. HÆGRI FÓTUR: = 34 lykkjur. Byrjið umferð innan á fæti og prjónið í hring. Þegar fóturinn mælist 4 cm frá þar sem stykkið skiptist frá búk, fækkið lykkjum innan á fæti (þ.e.a.s. í byrjun og í lok umferðar) þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, takið næstu lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 1 lykkja slétt (= 2 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona með 2 cm millibili alls 3 sinnum = 28 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur þar til stykkið mælist ca 11 cm frá það sem það skiptist frá búk. Aukið nú út um lykkjur fyrir fót þannig: Prjónið 19 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki hér, * 1 uppsláttur, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, setjið 1 prjónamerki hér (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 5 lykkjur slétt = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn. Prjónið næstu umferð þannig: prjónið 19 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * 1 uppsláttur, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 12 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 5 lykkjur slétt = 36 lykkjur. Prjónið síðan án útaukningar þar til fóturinn mælist 14 cm. Nú á að fækka lykkjum framan á fæti þannig: Prjónið 19 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 5 lykkjum slétt = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 19 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 4 lykkjur á milli prjónamerkja) og prjónið 5 lykkjur slétt = 28 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og takið frá prjónamerkin. Prjónið 18 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið út umferðina = 25 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í 20. lykkju frá umferð = mitt framan á fæti. Nú á að fækka lykkjum hvoru megin við þessa lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina = 23 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Endurtakið úrtöku hvoru megin við lykkju með prjónamerki í 1 sinni til viðbótar = 21 lykkja Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 11 lykkjur. Prjónið 1umferð slétt. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið enda vel. VINSTRI FÓTUR: Prjónið á sama hátt og hægri fótur þar til stykkið mælist 11 cm (= 28 lykkjur), nú er aukið út fyrir fót þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt og setjið 1 prjónamerki hér, * 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum. Setjið 1 prjónamerki á prjóninn hér (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) og endið með 19 lykkjur slétt = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt, uppslátturinn er prjónaður snúinn. Prjónið næstu umferð þannig: prjónið 5 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * 2 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, prjónið frá *-* alls 4 sinnum (nú eru 12 lykkjur á milli prjónamerkja) = 36 lykkjur. Prjónið síðan án útaukningar þar til fóturinn mælist 14 cm. Nú á að fækka lykkjum framan á fæti þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), * prjónið 1 lykkju slétt, 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (nú eru 8 lykkjur á milli prjónamerkja) = 32 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið 5 lykkjur slétt (fram að prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum og prjónið sléttar lykkjur út umferðina (nú eru 4 lykkjur á milli prjónamerkja) = 28 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt og takið frá prjónamerkin. Prjónið 4 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum og prjónið út umferðina = 25 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið 1 prjónamerki í 6. lykkju frá umferð = mitt framan á fæti. Nú á að fækka lykkjum hvoru megin við þessa lykkju þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið út umferðina = 23 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Endurtakið úrtöku hvoru megin við lykkju með prjónamerki í 1 sinni til viðbótar = 21 lykkja. Prjónið 1 umferð slétt. Í næstu umferð eru prjónaðar 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 11 lykkjur. Prjónið 1umferð slétt. Prjónið 2 og 2 lykkjur slétt saman þar til 1 lykkja er eftir sem prjónuð er slétt = 6 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjuna og herðið að. Festið enda vel. HÆGRI HENDI: Setjið til baka 24 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 3,5 og takið upp 1 lykkju í hverja og eina af 2 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir hendi = 26 lykkjur. Byrjið umferð mitt undir hendi. Prjónið slétt, hringinn yfir allar lykkjur. Þegar hendin mælist 8 cm, aukið út í næstu umferð þannig: Prjónið 18 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, * 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 4 lykkjur fleiri alls) og endið með 5 lykkjur slétt = 30 lykkjur. Þegar ermin mælist 12 cm, setjið 5 prjónamerki með 6 lykkja millibili. Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju eftir hverju prjónamerki (= 5 lykkjur færri). Fækkið lykkjum svona í hverri umferð alls 5 sinnum = 5 lykkjur. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum lykkjur og herðið á þræði. Festið enda vel. VINSTRI HENDI: Prjónið á sama hátt og hægri hendi, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. þegar stykkið mælist 8 cm, prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 5 lykkjur slétt, 1 uppsláttur, * 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur *, prjónið frá *-* alls 3 sinnum (= 4 lykkjur fleiri alls) og endið með 18 lykkjur slétt. FRÁGANGUR: Saumið saman lykkjur sem felldar voru af fyrir klof á framhlið og á bakhlið á búk. Saumið saman lykkjur frá uppfitjunarkanti þannig að ekki myndist gat efst uppi á höfði. ANDLIT: Saumið út augu með litnum blár og nokkur augnhár með litnum brúnum. Saumið smá nef með litnum ljós beige og munn með litnum ljós bleikfjólublár. HÁR: Hárið er fest í kringum efsta hluta af höfði, byrjið með að festa enda í umferð þar sem þér finnst að hárið eigi að byrja á efri hlið á andliti. Klippið lengdir af litnum ljós gulur ca 55 cm. Leggið þræðina saman tvöfalda, þræðið inn lykkjunni í gegnum 1 lykkju. Dragið síðan þræðina í gegnum lykkjuna og herðið varlega að. Þegar búið er að festa fyrstu umferðina í kringum höfuðið, festið fleiri umferðir með hári þar búið er að þekja höfuðið. Skiptið síðan hárinu í 2 hluta, 1 hvoru megin á höfðinu. Hvor hluti er nú fléttaður og þræði er hnýtt í enda í lokin. Að lokum er hægt að klippa endana til þannig að þeir verði jafn langir. ------------------------------------------------------- STUTTBUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Buxurnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna og saumaðar saman í lokin í klofi til að mynda skálmar. Allt stykkið er prjónað úr 1 þræði. STUTTBUXUR: Fitjið upp 80 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum rauður. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þegar stykkið mælist ca 11 cm. Leggið stykkið flatt, þannig að það vera 40 lykkjur hvoru megin á stykki – stillið af þannig að það verða 2 lykkjur slétt fyrir miðju. Saumið síðan saman 10 miðju lykkjur á framhlið með 10 miðju lykkjur á bakhlið fyrir klof. Klippið frá og festið enda. ------------------------------------------------------- SNÚNINGS SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Prjónað er stroff sem færist til í 3. hverri umferð. SNÚNINGS SOKKAR: Fitjið upp 36 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum rauður. Prjónið stroff hringinn með 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 1 cm. Í næstu umferð færist stroffið um 1 lykkju til vinstri þannig: Yfir 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið er prjónað 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, haldið áfram út umferðina. * Prjónið 2 umferðir með sléttu yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Í næstu umferð færist stroffið aftur, með 1 lykkju til vinstri *. Endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 9 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 18 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær 18 lykkjur sem eftir eru 2 sinnum, dragið saman og festið enda vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (18)
Kitty Neijssel wrote:
Deze leuke pop heb ik gebreid. Ik heb, zoals aangegeven 350 gram (7 bolletjes) Big Merino besteld en ik houd 4 bolletjes over! (mijn breiwerk klopt met het patroon) Ik heb toen de garenvervanger geraadpleegd en daaruit blijkt dat 350 gr. Big Merino 1-dr. te vervangen is door 300 gr. Baby Merino 2-dr. Daar zou je dan dus 2 poppen van kunnen breien...., 150 gr. Baby Merino 2 dr. is te vervangen door 176 gr. Big Merino 1 dr. Dus de benodigde hoeveelheid garen is niet juist. Of zie ik het verkeerd?
20.09.2020 - 16:13DROPS Design answered:
Dag Kitty,<>/p>
Bedankt voor je opmerking. 350 gram is denk ik inderdaad te veel. Ik zal het doorgeven aan de ontwerpafdeling ter controle.
24.09.2020 - 12:45Gerti Lindl wrote:
Ich bin mir etwas unsicher was das Messen beim Körper angeht, es steht da; Bei einer Länge des Körpers von 12 cm die Arbeit für die beiden Beine ... vorher stand mal ab Teilung, jetzt nehm ich an ich mess wieder ab der Teilung oder? Oder vom Hals weg?
31.08.2020 - 23:02DROPS Design answered:
Liebe Frau Lindl, die 12 cm werden nach der Teilung (nach den neuen angeschlagenen Maschen unter den Arm) gemessen. Viel Spaß beim stricken!
01.09.2020 - 13:34Baetens Belinda wrote:
Ik weet niet goed hoe ik moet beginnen met het haar. De rest is top!
24.04.2020 - 14:33DROPS Design answered:
Dag Beatens Belinda,
Het haar bevestig je net als franje. Dus je neemt een losse gele draad en die vouw je dubbel. Je rijgt het aan de kant van de vouw door een steek bij het hoofd en dan haal je de 2 uiteinden door de lus.
25.04.2020 - 20:21Mette Jensen wrote:
Kan det passe at der kun skal bruge 150 gr baby merino - men hvis jeg bruge big merino skal jeg bruge 350 gr ?
16.12.2019 - 10:14DROPS Design answered:
Hej Mette, vi skal se på garnforbruget i opskriften :)
17.12.2019 - 11:40Carina Bergman wrote:
Förstår inte fördelningen? VARV 1: Nu ökas det 10 maskor jämnt fördelat så här: Sticka 1 maska, 1 omslag, sticka * 5 maskor, 1 omslag *, sticka från *-* totalt 8 ggr, sticka 4 maskor, 1 omslag, sticka de sista 3 maskorna = 58 maskor. Omslagen stickas vridna på nästa varv, det ska inte bli hål.
17.09.2019 - 19:43DROPS Design answered:
Hej. Du stickar såhär: 1 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 5 m, 1 omslag, 4 m, 1 omslag, 3 m = 58 m. Lycka till!
19.09.2019 - 09:15Anna wrote:
When starting the doll from the top: is the whole head-hair piece intended to be knitted with 2 strands? Or just first 8 stitches?
25.07.2019 - 17:04DROPS Design answered:
Hi Anna, the whole head-hair piece is worked with 2 strands DROPS BabyMerino. Happy knitting!
25.07.2019 - 17:37Anna wrote:
Hi can you please explain what does "clock icon", "diamond icon" mean=represent? You can see them next to "needles icon"or "crochet hook icon" while searching free patterns on the search page, before you actually click on the pattern. thanks for your reply. I have not find the explanation elsewhere. Anna
25.07.2019 - 09:58DROPS Design answered:
Dobrý den, Anno, symbol hodin označuje nové návody, přidané v posledních dnech či týdnech (symbol mizí cca po měsíci od zveřejnění návodu v daném jazyce), diamant je skvost a stejné jsou i návody, které označuje :-) Buď jde o prezentaci nové barvy příze, model z přízí v aktuální slevě nebo o model s technikou či vzorem, který je velmi žádaný, rafinovaný a/nebo "trendy". Příjemné tvoření! Hana
25.07.2019 - 14:27Tjeerdje Peters wrote:
Armsgaten aan het hoofd? Meerder nu voor de armsgaten aan elke kant als volgt: staat deze instructie wel op de goede plaats?
13.07.2019 - 22:04DROPS Design answered:
Dag Tjeerdje,
Ja, dat klopt. Je meerdert eigenlijk niet voor de armsgaten, maar voor de armen :)
15.07.2019 - 13:36