Lake Autumn |
|
|
|
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í tveggja lita klukkuprjóni og röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 206-2 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 124 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 4) = 31. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 31. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN: RENDUR: ATH: (1) er liturinn sem verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á réttunni á stykkinu og (2) er liturinn sem liggur aftan við stykkið og verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á röngunni á stykkinu. Ef þú ert ekki viss um hvaða lit á að prjóna með í næstu umferð, þá getur þú alltaf séð hvaða lit fyrri umferð var prjónuð með á því sjá litinn á uppslættinum. UMFERÐ 1: Prjónið með lit (1).* 1 lykkja slétt, 1 uppsláttur, takið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið með lit (2). * 1 uppsláttur, takið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna brugðið saman *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 3: Prjónið með lit (1). * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, 1 uppsláttur, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-*. Endurtakið umferð 2 og 3. RENDUR-1: ATH: (1) er liturinn sem verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á réttunni á stykkinu og (2) er liturinn sem liggur aftan við stykkið og verður sýnilegur sem klukkuprjóns lykkja á röngunni á stykkinu. RÖND 1: 4-4-4-5-5-5 cm með (1) gallabuxnablár og (2) svartur. RÖND 2: 4-4-4-5-5-5 cm með (1) gallabuxnablár og (2) hesilhneta. RÖND 3: 2½ cm með (1) gallabuxnablár og (2) hvítur. RÖND 4: 2½ cm með (1) múrsteinn og (2) hvítur. RÖND 5: 1½ cm með (1) hvítur og (2) múrsteinn. RÖND 6: 2½ cm með (1) svartur og (2) múrsteinn. RÖND 7: 1½ cm með (1) hesilhneta og (2) múrsteinn. RÖND 8: 4-4-4-5-5-5 cm með (1) hesilhneta og (2) gallabuxnablár. RÖND 9: 2 ½ cm með (1) hesilhneta og (2) múrsteinn. RÖND 10: 2 ½ cm með (1) hvítur og (2) múrsteinn. RÖND 11: 1 ½ cm með (1) múrsteinn og (2) hvítur. RÖND 12: 2 ½ cm með (1) múrsteinn og (2) svartur. RÖND 13: 2 ½ cm með (1) múrsteinn og (2) hesilhneta. RÖND 14: 1 ½ cm með (1) gallabuxnablár og (2) hesilhneta. RÖND 15: 4-5-5-6-6-7 cm með (1) gallabuxnablár og (2) hvítur. RÖND 16: Sticka með (1) hvítur og (2) gallabuxnablár til loka (= ca 11-12-14-12-14-15 cm). RENDUR-2 (á við um ermar): Haldið áfram með rendur í RENDUR-1 (þannig að rendur á ermum og fram- og bakstykki verði alveg eins) þar til 14.röndin hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Prjónið síðan rendur á ermi þannig: RÖND 15: Prjónið með (1) gallabuxnablár og (2) hvítur þar til ermin mælist 32-31-29-27-26-24 cm frá þar sem berustykkið skiptist fyrir ermar og fram- og bakstykki (nú eru eftir 8 cm á ermi áður en prjóna á 4 cm stroff). RÖND 16: 4 cm með (1) gallabuxnablár og (2) hesilhneta. RÖND 17: 4 cm með (1) gallabuxnablár og (2) svartur. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð í 3. umferð í klukkuprjóns mynstri! ATH: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, verður laska útaukningin of stutt/löng á hæðina. Útaukning fyrir laskalínu er útskýrð í bæði fjölda umferða og cm. Ef prjónfestan passar ekki á hæðina, prjónið útaukningu fyrir laskalínu í cm. Aukið út þannig: Prjónið fram að lykkju (+ uppsáttur) á eftir prjónamerki og aukið út 4 lykkjur (= 2 lykkjur hvoru megin við lykkju á eftir prjónamerki) þannig: * Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að steypa lykkjunni og uppslættinum sem var prjónað af prjóninum, sláið 1 sinni uppá hægri prjón *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar = 5 lykkjur (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið í lykkjurnar eftir hverju og einu af prjónamerkjum sem eftir eru í umferð (= 16 lykkjur fleiri í umferð). Í næstu umferð eru útauknu lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjóns mynstur – það er enginn uppsláttur í klukkuprjóni í útaukningu, þannig að í næstu umferð í klukkuprjóns mynstri er lykkjan prjónuð sem prjóna á saman við uppsláttinn, án uppsláttar. ÚRTAKA-1 (á við um ermar): Úrtakan er gerð í umferð 3 í klukkuprjóns mynstri. Prjónið miðju 3 lykkjurnar (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) slétt saman = 2 lykkjur færri. ÚRTAKA-2 (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð 3 í klukkuprjóns mynstri. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki (lykkjan á eftir prjónamerki er miðju lykkjan undir ermi = ein lykkja með sléttri lykkju + uppsláttur sem tilheyrir lykkjunni), steypið yfir næstu 3 lykkjurnar (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjum) á hægri prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjurnar (+ uppslátturinn sem tilheyrir lykkjunni) slétt saman, steypið síðan 3 lykkjunum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru slétt saman (= 4 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI. Fitjið upp 104-108-112-120-124-128 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með svartur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 0-0-0-0-4-12 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 104-108-112-120-128-140 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN og RENDUR-1 – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 2 umferðir með tveggja lita klukkuprjóni, setjið 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna (öll prjónamerkin eru sett í á undan sléttri lykkju + uppsláttar sem tilheyrir lykkjunni): Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= ca mitt að aftan), hoppið yfir næstu 18-18-20-22-24-26 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 36-38-40-44-48-54 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, hoppið yfir næstu 16 lykkjur, setjið eitt prjónamerki hér, nú eru 18-20-20-22-24-28 lykkjur á milli síðasta prjónamerkis og byrjun á umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er eitt prjónamerki í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma. Prjónamerkin fylgja með í stykkinu og eiga að fylgja miðju á útauknu lykkjum í hverri laskalínu. Haldið áfram hringinn með tveggja lita klukkuprjóni og röndum, JAFNFRAMT í næstu umferð (= umferð 3 í klukkuprjóns mynstri) byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Aukið svona út í 8. hverri umferð (ca öðrum hverjum cm – sjá LEIÐBEININGAR) alls 10-11-12-13-14-15 sinnum = 264-284-304-328-352-380 lykkjur. Þegar öll útaukning hefur verið gerð mælist stykkið ca 20-21-23-25-27-29 cm. Prjónið þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá prjónamerki – endið eftir 2. umferð í tveggja lita klukkuprjóni. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 39-41-45-49-53-57 lykkjurnar (= ca hálft bakstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 lykkjurnar á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-7-11-11-11-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 77-83-89-97-105-115 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 55-59-63-67-71-75 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 7-7-11-11-11-15 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 38-42-44-48-52-58 lykkjur í umferð (= ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 168-180-200-216-232-260 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram í tveggja lita klukkuprjóni og rendur. Þegar stykkið mælist 30 cm, er fram- og bakstykki lokið. Fellið af með sléttum lykkjum og gallabuxnablár – uppslátturinn er felldur af eins og eigin lykkja. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið til baka 55-59-63-67-71-75 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af nýjum 7-7-11-11-11-15 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 62-66-74-78-82-90 lykkjur. Haldið síðan áfram hringinn með tveggja lita klukkuprjóni og prjónið RENDUR-2. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er sett prjónamerki á undan miðju lykkju mitt undir ermi, þ.e.a.s. á undan sléttri lykkju. Í næsta skipti sem 3. umferð í klukkuprjóni er prjónuð, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA-1 = 60-64-72-76-80-88 lykkjur. Eftir úrtöku eiga prjónamerkin að vera áfram staðsett á undan miðju lykkju undir ermi, þ.e.a.s. á undan sléttri lykkju. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 4 lykkjur undir ermi – sjá ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 9-8-5-4-4-3 cm millibili alls 4-4-6-6-7-8 sinnum = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Þegar ermin mælist 40-39-37-35-34-32 cm – stillið af að næsta umferð sé 3. umferð í klukkuprjóns mynstri, skiptið yfir á sokkaprjón 3 og svartur. Næsta umferð er prjónuð þannig: * prjónið uppsláttinn og óprjónuðu lykkjuna slétt saman, * 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 44-48-48-52-52-56 lykkjur. Prjónið nú stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-41-39-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (45)
Mary wrote:
Looks very good fitting. classic but stylish.
21.06.2019 - 17:31Anne-Marie Lunde wrote:
En fin fasong med raglanfelling😄
10.06.2019 - 09:16Sonia wrote:
Maravilloso
08.06.2019 - 17:46SANDRINE HERON wrote:
Superbe un futur projet mon coup de coeur
07.06.2019 - 06:48SANDRINE HERON wrote:
Mon coup de cœur.... Je le tricoteai c'est sur......
07.06.2019 - 06:46Patricia Fiedler wrote:
Dieser Pullover ist mein persönliches Highlight! Traumhafte Herbstfarben, dazu dieses geniale Muster-perfektes Design!
06.06.2019 - 20:45Ellis wrote:
Nice, possible to adjust to any colourcombi but 3rd sweater on large needles
06.06.2019 - 17:44Kirsi Mäkelä wrote:
Hienot värit, sopii hyvin farkkujen kanssa
06.06.2019 - 16:31Jany Riedijk Van Bree wrote:
Echt een leuke trui, ga ik zeker breien
06.06.2019 - 15:21Anne K wrote:
Great colour combination
06.06.2019 - 09:58