Elaine skrifaði:
I am making size L. I do not understand this section, "Continue A.1 and stockinette stitch while increasing every other round 15-17-18=19-20-22 times in total." Does this mean I start working on A.2 after finishing row 19 or do I work Chart A.1 until there are 43 stitches and then start Chart A.2? Also, what are the "last increases in stockinette stitch on each side of A.2"?
25.01.2021 - 02:35DROPS Design svaraði:
Dear Elaine, you have already worked the first increase for raglan (yarn overs explained on previous section). You now continue working with established pattern (diagrams and stocking stitch) increasing for raglan 18 more times on every other round. see RAGLAN. when A.1 is done in height, work A.2 over A.1 and work now the new stitches in stocking stitch (the last increases on raglan will be worked in stocking stitch, not in lace pattern). Happy knitting!
25.01.2021 - 11:39
Catherine skrifaði:
Please confirm diagram A2 for XL-XXL on line 8, one pattern "k2 tog yo k1 yo sks" is missing. Thank you for your help.
06.03.2020 - 05:49DROPS Design svaraði:
Dear Catherine, it looks like yes, our design team will check and edit diagram. Thanks for your feedback. Happy knitting!
06.03.2020 - 09:18
Cris skrifaði:
Adorei o modelo vou tentar fazer
27.02.2020 - 14:36
Anne-Britt skrifaði:
Jeg strikker str XL. Etter å ha strikket første omg med A1 har jeg 21 m på forstykket. Det fremkommer ikke noe sted, men er det kanskje sånn at første og siste maske på hvert stykke ikke telles siden de er en del sv raglan-fellingen? I såfall kommer jeg ut med 19, som stemmer med mønsteret 🙄
14.11.2019 - 21:50DROPS Design svaraði:
Hei Anne-Britt. Når du har strikket 1. omgang av A.1, samtidig som det det er økt til raglan, skal du ha 19 masker på forstykket + 2 kast. Du har 17 masker midt på (A.1), 1 kast i hver side av disse 17 maskene og 1 maske i hver side mot hver merketråd, = 19+2 kast på forstykket mellom merketrådene. God Fornøyelse!
18.11.2019 - 14:28
Pia skrifaði:
Der er angivet forskellige størrelser for diagrammerne og for strikketøjet. Strikketøjets str. Går fra xs - XXL. Diagrammernes str. Går fra s- xxxl.
29.05.2019 - 10:43DROPS Design svaraði:
Hei Pia. Takk for beskjed, vi skal få rettet dette snarest. Inndelingen i diagrammene blir XS-S-M-L og XL-XXL. God fornøyelse
29.05.2019 - 14:33
Gunn skrifaði:
Hei! Strikker denne i xxl. Delingen mellom bol/erme er uklar for meg. Skal ikke arbeidet deles ved merkemaskene? Hvordan kan det gå opp at jeg skal starte med 11 masker til ermene, øke 22 ganger og deretter sette av bare 45 masker til ermene? På samme måte som bakstykket starter med 19 masker og etter økningene blir 63 masker. Likevel skal det settes av 68 masker til bole.
19.05.2019 - 11:58DROPS Design svaraði:
Hei Gunn. Arbeidet deles ikke ved merkene: de ytterste 5 maskene fra hvert erme blir en del av bolen ved inndelingene. Dette er meningen. God fornøyelse
20.05.2019 - 13:13
Nathalie skrifaði:
Est ce que le pareon existe pour le tricoter avec des aiguille droites ?
06.05.2019 - 13:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Nathalie, ce modèle se tricote entièrement en rond, mais vous trouverez ici quelques informations sur l'adaptation d'un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!
06.05.2019 - 15:26
Andrea skrifaði:
Wieso gibt es hier kein xxxl? Für mich ist der zu klein.
05.05.2019 - 13:57DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, dieses Modell ist nur bis XXL, leider können wir nicht jeder Anleitung nach jeder Anfage anpassen. Gerne können Sie sich von der Maßskizze inspirieren, um das Modell anzupassen. Gerne wird Ihnen Ihr DROPS Laden - auch telefonisch oder per E-Mail- damit weiterh helfen. Viel Spaß beim stricken!
06.05.2019 - 11:41
CARON skrifaði:
Pouvez-vous publier les explications de ce modèle ? Un grand merci.
26.02.2019 - 13:59
Diana skrifaði:
SO nice and niami :) Waiting for pattern.
24.02.2019 - 15:16
Miss Lemon#misslemonsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð XS - XXL.
DROPS 200-28 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 50 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 6) = 8,3. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum þá er í þessu dæmi prjónuð ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur slétt í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 lykkjur fleiri í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn og í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = það eiga að myndast göt. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur (í sléttprjóni á ermi, í sléttprjóni á bakstykki og í mynstri/sléttprjóni á framstykki). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, prjónið 3 lykkjur slétt saman = 1 lykkja (færið prjónamerkið til fyrir þessa lykkju á eftir hverri úrtöku). ------------------------------------------------------ BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI Fitjið upp 50-50-52-56-58-60 lykkjur á hringprjón 7. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið í 3 cm, síðan er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-6-8-4-6-0 lykkjur jafnt yfir – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING/ÚRTAKA = 56-56-60-60-64-60 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 8. BERUSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið án þess að prjóna þær – setjið prjónamerkin þannig: Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= í skiptinguna á milli ermi og bakstykkis), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki eftir 9-9-11-11-13-11 nýjar lykkjur (= ermi), setjið 1 prjónamerki eftir 19 nýjar lykkjur (= framstykki), nú eru eftir 9-9-11-11-13-11 lykkjur að fyrsta prjónamerki (= ermi). Næsta umferð er prjónuð þannig: Umferðin byrjar við fyrsta prjónamerki á bakstykki. Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 17 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 (= 17 lykkjur framstykki – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 7-7-9-9-11-9 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt. Þetta var fyrsta útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með A.1 og sléttprjón jafnframt því sem aukið er út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 15-17-18-19-20-22 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning eins og útskýrt er að ofan). Eftir A.1 er prjónað A.2 yfir sömu lykkjur eins og fyrir A.1 og síðustu útaukningar eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni hvoru megin við A.2. Mynsturteikning A.2 er endurtekin á hæðina til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka á stykkið að mælast ca 21-24-26-27-29-31 frá prjónamerki frá byrjun á berustykki. Prjónið e.t.v. áfram með mynstri án útaukninga að réttu máli. Eftir berustykki er næsta umferð prjónuð þannig: Prjónið 50-54-57-60-63-68 lykkjur sléttprjón (= á bakstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið 4-6-8-10-8-11 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.2 (= 43-43-43-43-51-51 lykkjur) og prjónið 4-6-8-10-8-11 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 37-41-43-43-45-45 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 1-1-2-3-4-5 lykkjur (= á bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 110-118-126-138-150-166 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorri hlið. Byrjið umferð við prjónamerki og látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu. Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri A.2. Þegar stykkið mælist 25-24-24-25-25-25 cm frá skiptingu (ca 49-51-53-55-57-59 cm frá öxl) prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-18-20-22-24 lykkjur jafnt yfir = 126-136-144-158-172-190 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er fellt af með prjónum nr 8. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 37-41-43-43-45-45 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón/sokkaprjón 8, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 4-4-4-6-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 41-45-47-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 4-4-4-6-8-10 lykkjur og byrjuð umferð hér. Prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 2 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2½-2½.-2-2 cm millibili alls 7-8-9-9-11-11 sinnum = 27-29-29-31-31-33 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 36-33-32-31-30-28 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 5 lykkjur jafnt yfir = 32-34-34-36-36-38 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 5 cm. Ermin mælist ca 41-38-37-36-35-33 cm frá skiptingu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur, er hægt að fella af með prjónum nr 8. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #misslemonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 200-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.