Wylocke Monique skrifaði:
Prachtige pull die ik heel graag wil breien. nu nog de beschrijving en we kunnen starten
11.02.2019 - 11:59
Doris skrifaði:
Das ist ja ein toller pullover!!! wann kommt die anleitung dazu raus? ich freue mich schon sehr diesen pulli zu stricken :-)
01.02.2019 - 21:44
Conny skrifaði:
EIn toller fFrühlingspullover - ANleitung wird schon sehnsüchtig erwartet.
27.01.2019 - 17:40
Martina Pourova skrifaði:
Love this one! I check the list everyday if the pattern is available 😁 After I'm done with knitting it, I'll share the photo. What about you ladies? Let's do it all of us 😊
27.01.2019 - 14:14
Barbara skrifaði:
Love the colours and design. Will definitely make this once the pattern is available. Hope it will be soon.
26.01.2019 - 23:10
Iréne Lidström skrifaði:
Snygg avslappnad stil o underbar färgkombination Den ska jag stucka så ssnart mönstret blir utlagt.
12.01.2019 - 11:13
Susanne skrifaði:
Seeehr hübsch! Da würde ich am liebsten schon gleich anfangen zu stricken ;-))
11.01.2019 - 15:44
Monika skrifaði:
Der Pullover ist perfekt. Den würde ich sehr gerne Stricken.
04.01.2019 - 16:18
Elsje Fokkelman skrifaði:
Sencillamente magnífico, también por poder llevarlo como rebeca o como (aspecto) jersey
16.12.2018 - 08:21
Sonora Sunrise Sweater#sonorasunrisesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.
DROPS 201-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 92 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 12) = 7,7. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 8. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. RENDUR: 14-14-14½-14½-15-15 cm með púðurbleikur. 9-9½-10-10½-11-11 cm með bleikfjólublár. 2-2-2-2-2-2 cm með sinnep. 9-9½-10-10½-11-11 cm með ferskja. 9-9½-10-10½-11-11 cm með ljós fjólublár. Síðan er prjónað með gallabuxnablár til loka. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið er út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn( = 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Auknar eru út alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni og röndum og kanti með stroffi. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-116 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum púðurbleikur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 12-16-20-20-16-16 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 104-112-120-124-124-132 lykkjur. Prjónið næstu umferð jafnframt því sem sett eru 4 prjónamerki þannig: Prjónið 18-20-22-23-23-25 lykkjur slétt (= hálft bakstykki), setjið fyrsta prjónamerki hér, prjónið 16 lykkjur slétt (= ermi), setjið annað prjónamerki hér, prjónið 36-40-44-46-46-50 lykkjur slétt (= framstykki), setjið þriðja prjónamerki hér, prjónið 16 lykkjur slétt (= ermi), setjið fjórða prjónamerki hér og prjónið þær 18-20-22-23-23-25 lykkjur sem eftir eru slétt (= hálft bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 19-21-22-24-26-28 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 256-280-296-316-332-356 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Ef þessu máli hefur ekki verið náð, prjónið áfram án útaukninga að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 39-42-45-49-52-57 lykkjur eins og áður (= hálft bakstykki), setjið næstu 50-56-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 78-84-90-98-104-114 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-56-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 39-42-45-49-52-57 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= hálft bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-184-200-216-232-252 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og röndum. Þegar stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 32-36-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 204-220-240-256-276-300 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðiði) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-56-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-64-68-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og haldið áfram með rendur eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 31-30-29-27-26-24 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-12-14-14-12 lykkjur jafnt yfir = 68-76-80-84-88-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 5,5. Ermin mælist ca 35-34-33-31-30-28 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sonorasunrisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.