DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sonora Sunrise

Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum. Stærð S - XXXL.

DROPS 201-34
DROPS Design: Mynstur w-755
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS PARIS frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-250-300-300-350 g litur 30, gallabuxnablár
150-150-200-200-200-250 g litur 32, ljós fjólublár
150-150-200-200-200-250 g litur 27, ferskja
100-100-100-150-150-150 g litur 58, púðurbleikur
100-150-150-150-150-150 g litur 59, bleikfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur 41, sinnep

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5,5.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5,5: lengd 40 cm og 80 cm fyrir sléttprjón.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4,5: lengd 80 cm fyrir stroff.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 6-6-6-6-7-7 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 246.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3936.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------<br />
UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð): Fellið af frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6 næstu hnappagötum með ca 9-9-9½-9½-8½-8½ cm millibili.

ÚTAUKNING (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 9,4.
Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 9. og 10. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

RENDUR:
14-14-14½-14½-15-15 cm með litnum púðurbleikur.
9-9½-10-10½-11-11 cm með litnum bleikfjólublár.
2-2-2-2-2-2 cm með litnum sinnep.
9-9½-10-10½-11-11 cm með litnum ferskja.
9-9½-10-10½-11-11 cm með litnum ljós fjólublár.
Síðan er prjónað með litnum gallabuxnablár til loka.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið er út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig: Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn( = 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður brugðinn svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Auknar eru út alls 8 lykkjur í hverri útauknings umferð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Allt stykkið er prjónað í sléttprjóni og röndum og kanti með stroffi.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 104-108-112-116-120-124 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með litnum púðurbleikur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Prjónið síðan frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 4 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan, sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 10-14-18-18-14-18 nýjar lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 114-122-130-134-134-142 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig (það er gert án þess að prjóna lykkjurnar):
Fyrsta prjónamerkið er sett í stykkið eftir fyrstu 23-25-27-28-28-30 lykkjur (= framstykki), annað prjónamerkið er sett eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), þriðja prjónamerkið er sett eftir næstu 36-40-44-46-46-50 lykkjurnar (= bakstykki) og fjórða prjónamerkið er sett eftir næstu 16 lykkjur (= ermi), nú eru 23-25-27-28-28-30 lykkjur eftir síðasta prjónamerki (= framstykki).
Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni, í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu er aukið út fyrir LASKALÍNA í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð frá réttu) þar til aukið hefur verið út alls 19-21-22-24-26-28 sinnum hvoru megin við 4 prjónamerkin. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu eru 266-290-306-326-342-366 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-25-26-28-30-32 cm frá uppfitjunarkanti mitt að framan. Ef þessu máli hefur ekki verið náð, prjónið áfram án útaukninga að réttu máli. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 44-47-50-54-57-62 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 50-56-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 78-84-90-98-104-114 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 50-56-58-60-62-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 44-47-50-54-57-62 lykkjur sem eftir eru eins og áður (= framstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar til loka fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 182-194-210-226-242-262 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og rendur með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 30-30-31-31-31-31 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 34-38-42-42-46-50 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 216-232-252-268-288-312 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur brugðnar og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með hringprjón 5,5. Peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 50-56-58-60-62-64 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5,5, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 58-64-68-70-74-76 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-12 lykkjur undir ermi og byrjið umferð hér. Prjónið sléttprjón og haldið áfram með rendur eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 31-30-29-27-26-24 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-12-12-14-14-12 lykkjur jafnt yfir = 68-76-80-84-88-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með sokkaprjón 5,5. Ermin mælist ca 35-34-33-31-30-28 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 201-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Sonia wrote:

Non mi è chiaro come fare ad aggiungere le 10 maglie per la parte sotto della manica. Le 10 maglie vanno aumentate sul ferro circolare del corpo e poi riprese dai ferri circolari della manica? Il punto della spiegazione è avviare 8-8-10-10-12-12 nuove maglie sul ferro (= a lato sotto la manica).... Potete darmi un aiuto più chiaro? Grazie

20.02.2024 - 09:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Sonia, le nuove maglie vanno avviate a nuovo per il sottomanica. Buon lavoro!

21.02.2024 - 08:45

country flag Sieglinde wrote:

Modell in Größe 38 mit Paris gearbeitet. Hat Spaß gemacht mit dem tollen Garn und den wunderschönen Farben. Wichtig war der Tipp, zum Vernaehen der Faeden das Garn zu teilen. Es hatte mich kurz in mittelschwere Verzweiflung gestuerzt, dass man die dicken Faeden sah und sie auch wieder rauskamen!Jetzt habe ich eine wunderschöne neue Lieblingsjacke, die allerdings ein bißchen größer geworden ist, als abgebildet, aber das finde ich persönlich sehr angenehm.

02.07.2021 - 20:01

country flag Jonna wrote:

Om man vill sticka den enfärgad, vet ni hur mycket garn det går åt då?

16.03.2021 - 18:04

DROPS Design answered:

Hej Jonna. Vi har dessvärre ingen uppgift på det, men här kan du se andra koftor i samma garn, så om du ser på garnåtgången på dem bör du kunna få en rätt bra uppfattning. Mvh DROPS Design

17.03.2021 - 09:34

country flag Marga Van Dijk wrote:

Ik heb even een vraagje als je de 12 steken voor de mouw op hebt gezet moet je die dan meebrengen met het achterpand of worden deze steken niet mee gebreid

20.07.2020 - 23:09

DROPS Design answered:

Dag Marga,

Bij het verdelen van het werk voor het lijf en de mouwen zet je 12 nieuwe steken op, zeg maar onder de oksel, aan beide kanten en deze brei je inderdaad ook in patroon.

02.08.2020 - 21:04

country flag Lin Janson wrote:

Jeg har begynt å strikke minste størrelsen i Drops Paris. Jeg bruker riktige strikkepinner, og fastheten er riktig, men etter å ha strikket 14cm av bærestykket har jeg bare .5 av siste garnnøstet i den fargen, og det kan jo ikke være nok for ermene.....?

01.11.2019 - 16:52

DROPS Design answered:

Hej Lin, men hvis du har strikket de første 14 cm af bærestykket ifølge opskriften, så har du også strikket det øverste af ærmerne med :)

05.11.2019 - 09:19

country flag Laura wrote:

Ho appena finito questo modello e sono molto contenta del risultato. Le spiegazioni sono chiarissime, i colori molto belli e il cotone morbido. Sono molto contenta, grazie di cuore

12.09.2019 - 09:28

country flag Laura wrote:

Buongiorno, vorrei sapere come fare a nascondere il cambio di colore tra le strisce: nel video proposto sono strisce che si susseguono, ma nel modello alla fine di una striscia di colore, lo stesso colore non viene più ripreso più avanti quindi non serve portare su il filo. Come nascondo le codine che si trovano proprio sul bordo del golfino?

28.08.2019 - 13:48

DROPS Design answered:

Buongiorno Laura. Può seguire le indicazioni del video che alleghiamo, avendo cura di passare il filo attraverso maglie dello stesso colore. Buon lavoro!

28.08.2019 - 14:17

country flag Geraldine Austin wrote:

Thank you for reply, my stitch count is correct then. However the original pattern is not. E.g. Your count and mine is 42+54=74+54+42=266. The pattern above shows 44+50+78+50+44=266 Size M should be 46+58+82+58+46=290. Pattern above shows 47+56+84+56+47=290 I have managed to to knit this as I am used to top down design but it needs to be changed. I spent some time checking the stitch counts to see the mistake whereas a might not.

12.08.2019 - 12:32

DROPS Design answered:

Dear Mrs Austin, depending on the size, the stitches worked for front/back and sleeve may be different, in size S you will work 2 sts from sleeve for body and in size M you will work 1 st from sleeve for body. Happy knitting!

12.08.2019 - 12:59

country flag Geraldine Austin wrote:

Problem with stitch count 23 for front +21 increase =44. Sleeve 16 + 42 increase =58. Back 36 +42= 78. This is the stitch count for 19 increases, but it takes 21 to get this no of stitches. Also first size has only 50 for sleeve, not possible as 16 + 19 increases 38 st =54. Totally confused.

10.08.2019 - 19:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Austin, in size S you increase 19 times (but 21 times in size M) so that you will have: 23+19 = 42 sts for each front piece - 16 + 38 = 54 sts for each sleeve and 36+38 = 74 sts for back piece = 266 sts in total. Happy knitting

12.08.2019 - 07:51

country flag Marianna wrote:

Hvilken størrelse er modellen?

04.08.2019 - 13:07

DROPS Design answered:

Hei Marianna. Er du usikker på hvilken størrelse du skal velge? Da hjelper det kanskje å vite at modellen på bildet er ca 170 cm høy og bruker størrelse S eller M. Om du lager en genser, jakke, kjole eller lignende, kan du finne en målskisse av det ferdige plagget (i cm) nederst i oppskriften. God Fornøyelse!

09.09.2019 - 14:06