Sweet Nothing Jumper#sweetnothingjumper |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með röndum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 199-18 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 95 lykkjur) mínus kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (= 4 lykkjur) og deilið lykkjunum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 20) = 4,5. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Rendur eru prjónaðar þannig: Rönd-1: Prjónið 18-19-19-20-21-21 cm með litnum ljós gallabuxnablár. Rönd-2: Prjónið 18-18-19-20-20-21 cm með litnum gallabuxnablár. Rönd-3: Prjónið með litnum ljós sægrænn til loka (= 17-18-19-19-20-21 cm). RENDUR Á ERMI: Haldið áfram með litnum gallabuxnablár þar til röndin mælist alls 23 cm í öllum stærðum, prjónið síðan með litnum ljós sægrænn til loka. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir prjónamerki á ermum þannig: Prjónið fram að fyrsta prjónamerki á ermi, (prjónamerki situr hér), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið fram að 1 lykkju á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, (= prjónamerki situr hér). Endurtakið á hinni erminni (= 4 lykkjur fleiri í umferð. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón ofan frá og niður. Fram- og bakstykki er prjónað í hring niður að klauf í hliðum, síðan er framstykki og bakstykki prjónað fram og til baka til loka hvort fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum ljós gallabuxnablár. Prjónið 1 umferð brugðið og 2 umferðir slétt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan og mynstur þannig: Prjónið * A.1 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur), A.2 (= 1 lykkja), A.3 – veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (= 16-16-16-20-20-20 lykkjur), setjið 1 prjónamerki hér (= bakstykki/framstykki), 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 11-13-15-9-11-13 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, setjið eitt prjónamerki hér (= ermi) *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar í umferð. Nú hefur verið aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á ermum og aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við miðju lykkju á framstykki og bakstykki (miðjulykkja = A.2) = 100-104-108-112-116-120 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram hringinn með mynstur og aukið út fyrir laskalínu á ermum í annarri hverri umferð 21-25-26-31-31-30 sinnum til viðbótar (alls 22-26-27-32-32-31 sinnum), JAFNFRAMT þegar mynsturteikningin hefur verið prjónuð til loka á hæðina eru 2 síðustu umferðirnar endurteknar á hæðina 20-23-27-28-33-36 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. aukið út um 1 lykkju hvoru megin við A.2 þar til það eru 49-55-63-65-75-81 lykkjur sléttprjón á milli A.1 og A.3 á bakstykki og framstykki) = 284-316-340-368-392-404 lykkjur. Haldið síðan áfram með áferð yfir 18-18-18-22-22-22 lykkjur í A.1 og A.3 og sléttprjón yfir þær lykkjur sem eftir eru þar til stykkið mælist 22-24-26-28-30-32 cm mælt frá uppfitjunarkanti og niður mitt að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir fyrstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-18 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-91-99-109-119-125 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 57-67-71-75-77-77 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-18 lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 190-202-222-242-266-286 lykkjur. Setjið prjónamerki mitt í nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermum (= 5-5-6-6-7-9 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið mynstur eins og áður yfir 18-18-18-22-22-22 lykkjur í A.1 og A.3, prjónið sléttprjón yfir miðju 4 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 2 lykkjur garðaprjón hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) og þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 16 cm er prjónað fram að prjónamerki í annarri hlið á stykki. Síðan er prjónað fram og til baka yfir helming af lykkjum í umferð fyrir fram- og bakstykki, þannig að það myndist klauf í hliðum. BAKSTYKKI: = 95-101-111-121-133-143 lykkjur. Prjónið mynstur A.1/A.3, sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 27 cm er aukið út um 20-20-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING (jafnt yfir) = 115-121-133-145-159-171 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) með 2 kantlykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stroffið mælist 4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Skiptið e.t.v. yfir í grófari prjóna ef affellingarkanturinn verður stífur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og bakstykki. ERMI: Setjið 57-67-71-75-77-77 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermum = 67-77-83-87-91-95 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í nýjar lykkjur undir ermi (= 5-5-6-6-7-9 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Prjónið sléttprjón hringinn og RENDUR ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í mismunandi stærðum þannig: Stærð S: Fækkið lykkjum með 2 cm millibili 7 sinnum og með 3 cm millibili 6 sinnum. Stærð M: Fækkið lykkjum með 2 cm millibili 10 sinnum og 3 cm millibili 4 sinnum. Stærð L: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 5 sinnum og með 2 cm millibili 12 sinnum. Stærð XL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 9 sinnum og með 2 cm millibili 9 sinnum. Stærð XXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 12 sinnum og með 2 cm millibili 7 sinnum. Stærð XXXL: Fækkið lykkjum með 1 cm millibili 16 sinnum og með 2 cm millibili 4 sinnum. Þegar allar úrtökur hafa verið gerðar til loka eru 41-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 39-38-36-35-33-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna víðara hálsmáls og lengra berustykkis). Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 9-9-9-11-11-11 lykkjur jafnt yfir = 50-56-58-62-64-66 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn erði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 6. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 43-42-40-39-37-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetnothingjumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 199-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.