Anita Hoffgaard skrifaði:
Der er fejl i mønstret farvekoder. Der mangler farve forklaring.
12.10.2018 - 10:40DROPS Design svaraði:
Hei Anita. fargekodene stemmer: 79 sitron, 01 naturhvit, 72 lys perlegrå - dette stemmer med både garnmengde og mønster. Hvor spesifikt er det du mener det er en feil? God fornøyelse.
18.10.2018 - 15:28
Lemon Pie Cardigan#lemonpiecardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-11 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚTAUKNING (jafnt yfir): Öll útaukning er gerð frá réttu! Til þess að reikna út hvernig fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 108 lykkjur), mínus kanta að framan (t.d. 10 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 31) = 3,2 Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Ekki er aukið út yfir kanta að framan. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í miðju lykkju í umferð. Byrjið frá réttu með litnum ljós perlugrár og prjónið 15-16-17-18-19-20 lykkjur slétt framhjá lykkju með merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 31-33-35-37-39-41 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 46-49-52-55-58-61 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 61-65-69-73-77-81 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 76-81-86-91-96-101 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið út umferðina (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.1, A.3, A.4, A.5 og A.6). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR-1 (á við um kanta að framan): Í umferðum þar sem mynsturborði er með 2 litum er einnig prjónað með grunnlit yfir 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. Mikilvægt er að prjónfestan haldist einnig á hæðina, annars kemur berustykkið til með að verða of stutt og handvegur of þröngur! ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með prjónamerki í, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= lykkja með prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar stykkið er mátað). 1 hnappagat = Prjónið frá réttu þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar kantur í hálsmáli mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 8-8½-9-8-8½-8½ cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan, ofan frá og niður. Eftir kant í hálsmáli er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig að berustykkið verði aðeins hærra á bakstykki. Hægt er að sleppa þessari upphækkun og þá verður hálsmál alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu í uppskrift. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 108-112-116-120-124-132 lykkjur meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju) á hringprjón 3,5 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umferð brugðið (= ranga). Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 31-33-35-37-37-39 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 139-145-151-157-161-171 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið (kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni). Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka - sjá útskýringu að ofan, eða farið beint áfram í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Lesið LEIÐBEININGAR-1 og LEIÐBEININGAR-2! Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1A (= 2 lykkjur) þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið A.1B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.1 hefur verið prjónað til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 2-2-2-2-4-8 umferðir sléttprjón með litnum sítróna og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 34-36-38-48-52-58 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 173-181-189-205-213-229 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.2A þar til 8 lykkjur eru eftir á prjóni (= 20-21-22-24-25-27 mynstureiningar með A.2A með 8 lykkjum), prjónið A.2B (= 3 lykkjur) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör er aukið út jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan: Í umferð með ör-1 er aukið út um 34-42-50-50-58-58 lykkjur jafnt yfir = 207-223-239-255-271-287 lykkjur (nú er pláss fyrir 24-26-28-30-32-34 mynstureiningar A.2A með 8 lykkjum). Í umferð með ör-2 er aukið út um 32-40-48-48-56-56 lykkjur jafnt yfir = 239-263-287-303-327-343 lykkjur (nú er pláss fyrir 28-31-34-36-39-41 mynstureiningar A.2A með 8 lykkjum og A.2B er nú 5 lykkjur). Í umferð með ör-3 er aukið út um 24-36-36-44-44-52 lykkjur jafnt yfir = 263-299-323-347-371-395 lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er prjónað frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan með garðaprjóni, prjónið A.3A þar til 6 lykkjur eru eftir á prjóni (= 21-24-26-28-30-32 mynstureiningar með A.3A með 12 lykkjum), prjónið A.3B (= 1 lykkja) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð með ör-4 er aukið út um 20-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 283-315-339-367-391-415 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til síðasta umferð í A.3 er eftir. Prjónið síðustu umferðina frá réttu þannig: Prjónið 47-51-54-59-64-69 lykkjur eins og útskýrt er í síðustu umferð í A.3 (= framstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 85-93-99-109-119-129 lykkjur eins og síðasta umferð í A.3 sýnir (= bakstykki), setjið næstu 52-60-66-70-72-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-14 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið þær 47-51-54-59-64-69 lykkjur sem eftir eru eins og síðasta umferð í A.3 sýnir (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-211-227-247-271-295 lykkjur. Í stærð S og M er fyrst prjónað A.4 og A.5 eins og útskýrt er að neðan og í L er prjónað A.5 eins og útskýrt er að neðan. Í öðrum stærðum (XL, XXL og XXXL) er A.4 og A.5 nú þegar prjónað (í A.3), farið því beint áfram í ALLAR STÆRÐIR í þremur stærstu stærðunum. Fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu þannig (mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu): STÆRÐ S og M: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.4B (= 1 lykkja), prjónið A.4A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 46-50 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka er prjónað A.5 alveg eins JAFNFRAMT í umferð með ör-5 í A.5 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir í báðum stærðum = 211-227 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram eins og útskýrt er undir ALLAR STÆRÐIR! STÆRÐ L: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.5B (= 1 lykkja), prjónið A.5A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 54 mynstureiningar með 4 lykkjum) og endið með 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT í umferð með ör-5 er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir = 243 lykkjur. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram eins og útskýrt er í ALLAR STÆRÐIR! ALLAR STÆRÐIR: Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.6B (= 1 lykkja), prjónið A.6A þar til 5 lykkjur eru eftir á prjóni (= 50-54-58-59-65-71 mynstureining með A.6A með 4 lykkjum). Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör-5 í A.6A er aukið út um 16 lykkjur jafnt yfir (á einungis við stærð XL, XXL og XXXL og á einungis við í fyrsta skipti sem A.6 er prjónað á hæðina í þessum stærðum) = 211-227-243-263-287-311 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.6 þar til stykkið mælist ca 31 cm frá skiptingu í öllum stærðum, en stillið af þannig að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með litnum sítróna þar sem aukið er út um 53-57-61-65-69-77 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 264-284-304-328-356-388 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff frá réttu þannig (með litnum sítróna): 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 3 cm. Fellið síðan laust af með garðaprjón yfir garðaprjón, sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 52-60-66-70-72-74 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 60-68-76-80-84-88 lykkjur í umferð. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-10-10-12-14 lykkjur undir ermi, þ.e.a.s. setjið prjónamerki í fyrstu lykkju eftir miðju, teljið 29-33-37-39-41-43 lykkjur, setjið 1 prjónamerki í næstu lykkju (= miðjulykkja). Nú eru 29-33-37-39-41-43 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta prjónamerki. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónamerki undir ermi á að nota síðar þegar lykkjum er fækkað og prjónamerki mitt ofan á ermi á að nota til að telja hvar mynstrið byrjar. LESIÐ AFGANG AF KAFLA UM ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið síðustu umferð í A.3A þannig að A.3 endi á sama stað eins og á fram- og bakstykki. STÆRÐ S og M: Prjónið A.4A hringinn (= 15-17 mynstureiningar með 4 lykkjum), teljið út frá miðju – miðjulykkjan í A.4A á að passa við lykkju með prjónamerki í mitt ofan á ermi. Þegar A.4A hefur verið prjónað til loka er prjónað A.5A hringinn. Eftir A.5A er prjónað A.6A hringinn. A.6A er endurtekið alveg niður að stroffi. STÆRÐ L: Prjónið A.5A hringinn (= 19 mynstureiningar með 4 lykkjum), en teljið út frá miðju – miðjulykkjan í A.5A á að passa við lykkju með prjónamerki mitt ofan á ermi. Eftir A.5A er haldið áfram með A.6A alveg niður að stroffi. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Prjónið A.6A hringinn (= 20-21-22 mynstureiningar með 4 lykkjum), en teljið út frá miðju – miðjulykkja í A.6A á að passa við lykkju með prjónamerki mitt ofan á ermi. Haldið áfram með A.6A alveg niður að stroffi. ÚRTAKA: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2-2-2-2-3-3 cm fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 6-4-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 7-10-13-14-15-16 sinnum = 46-48-50-52-54-56 lykkjur. Þegar ermin mælist ca 40-39-37-35-34-32 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) prjónið 1 umferð slétt með sítróna þar sem aukið er út um 2-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir = 48-48-52-52-56-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur (ef affellingarkanturinn verður stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 8. hverri lykkju jafnframt því sem fellt er af – uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist ca 45-44-42-40-39-37 cm frá skiptingu og niður. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lemonpiecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 195-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.