Canari |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með laskalínu úr DROPS Karisma. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 195-16 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 88 lykkjur) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10) = 8,8. Í þessu dæmi er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 9. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. ÚTAUKNING-2 (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt í þessum lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir brugðið svo ekki myndast göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermi): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli, berustykki og fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón/sokkaprjóna, ofan frá og niður. Passið uppá að allur lykkjufjöldi sem gefinn er upp í berustykki og fram- og bakstykki er talinn út frá að A.3 = 16 lykkjur, en A.3 víxlar á milli 16 og 17 lykkjur. Ef þú hefur prjónað nákvæmlega 1.-2.-5. eða 6. umferð í A.3 þegar lykkjufjöldinn er gefinn upp þá ertu með 4 lykkjur fleiri í umferð. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-88-92-96-104-104 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með Karisma. Prjónið A.1. Eftir A.1 er prjónuð 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 10-10-6-22-14-14 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING-1 = 98-98-98-118-118-118 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið A.2 (= 5-5-5-15-15-15 lykkjur), A.3 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.3 (= 16 lykkjur), A.2 (= 5-5-5-15-15-15 lykkjur), A.3 (= 16 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 12 lykkjur sléttprjón (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.3 (= 16 lykkjur). Nú eru 106-106-106-126-126-126 lykkjur í umferð. Haldið áfram með þetta mynstur. Þ.e.a.s. á fram- og bakstykki er aukið út í hvorri hlið eins og útskýrt er í A.2. Á ermum er aukið út í hvorri hlið með því að slá uppá prjóninn hvoru megin við lykkjur í sléttprjóni. Aukið svona út í annarri hverri umferð. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn í mynsturteikningu prjónaður brugðið (svo að það myndist gat) útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur eins og útskýrt er í A.2 og uppslátturinn á ermum er prjónaður snúinn brugðið (það eiga ekki að myndast göt) og nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjóna 1 sinni á hæðina eru 250-250-250-270-270-270 lykkjur í umferð. Haldið áfram með mynstur alveg eins, þ.e.a.s. mynstrið endurtekur sig eins og útskýrt er í A.2 og í hvert skipti sem prjónaðar hafa verið 10 umferðir á hæðina er pláss fyrir 1 mynstureiningu fleiri með gatamynstri á fram- og bakstykki. Þegar aukið hefur verið út alls 24-29-34-34-39-44 sinnum hvoru megin við A.3 eru 290-330-370-390-430-470 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 19-22-26-26-30-33 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið 69-79-89-99-109-119 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 60-70-80-80-90-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 85-95-105-115-125-135 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 60-70-80-80-90-100 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 16 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Klippið frá. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 182-202-222-246-266-290 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu, þau eru notuð aðeins síðar þegar auka á út. Byrjið umferð við eitt af prjónamerkjunum og prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 3-3-3-4-4-5 lykkjur sléttprjón, haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið A.4A (= 9 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 30-40-50-60-70-80 lykkjur (= 3-4-5-6-7-8 mynstureiningar með 10 lykkjum), prjónið A.4C (= 14 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið 6-6-6-8-8-10 lykkjur sléttprjón (prjónamerki situr mitt á milli þessa 6-6-6-8-8-10 lykkja), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur, prjónið A.4A (= 9 lykkjur), prjónið A.4B yfir næstu 30-40-50-60-70-80 lykkjur (= 3-4-5-6-7-8 mynstureiningar með 10 lykkjur), prjónið A.4C (= 14 lykkjur), haldið áfram með A.3 yfir næstu 16 lykkjur og endið með 3-3-3-4-4-5 lykkjur sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – sjá ÚTAUKNING-2 = 4 lykkjur fleiri. Aukið út svona með 6-6-5-6-5-5 cm millibili alls 5 sinnum = 202-222-242-266-286-310 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist ca 35-34-32-34-32-31 cm frá skiptingu (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), eða að óskaðri lengd, en stillið af þannig að endað sé eftir heilt gatamynstur á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið til baka yfir á hringprjón 4. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 60-70-80-80-90-100 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-76-86-88-98-110 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 6-6-6-8-8-10 lykkjur undir ermi og látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Prjónamerkið er notað aðeins síðar þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 2-1-1-1-1-1 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 1-2-3-3-4-7 sinnum = 64-72-80-82-90-96 lykkjur. Fækkið síðan lykkjum með 3½-2½-2-2-1½-1 cm millibili alls 12-15-18-18-21-23 sinnum = 40-42-44-46-48-50 lykkjur eftir á prjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 46-44-40-40-37-35 cm frá skiptingu, eða að óskaðri lengd (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis). Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5. Prjónið 4 umferðir garðaprjón. Skiptið til baka yfir á sokkaprjón 4. Fellið af með sléttum lykkjum, en passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Ermin mælist ca 47-45-41-41-38-36 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (30)
Mange tak for hurtig svar, nu forstår jeg. Med venlig hilsen Birthe
08.05.2019 - 09:49Hvorfor får jeg 110 m og ikke 106 m på første omgang i bærestykket. Med venlig hilsen Birthe
07.05.2019 - 15:17DROPS Design answered:
Hej Birthe, har du læst teksten under KORT OVERSIGT - Jeg tror det kan være derfor: Vær opmærksom på at alle maskeantal som er opgivet på bærestykke og ryg & forstykke er beregnet ud fra at A.3 = 16 masker, men A.3 skifter mellem 16 og 17 masker. Hvis du lige har strikket 1.-2.-5. eller 6.pind i A.3 når et maskeantal opgives har du 4 masker mere på pinden.
08.05.2019 - 09:25Skal det være samme mønster bak som framme? Hadde vært en fordel med et tydelig bilde tatt bakfra.
12.03.2019 - 19:46DROPS Design answered:
Hej Åse, ja det stemmer, du strikker samme mønster på for og bagstykket. God fornøjelse!
13.03.2019 - 14:13Strever veldig med denne modellen. Når det står at det er en feil i denne oppskriften ( to faktisk) kan jeg da stole på at dere har rettet feilene, eller må jeg selv gjøre det? Hvorfor? Jeg skjønner heller ikke hva blanke ruter betyr. Vanligvis betyr det rettstrikk, men her står det at det skal være to sammen. Hvorfor er det ikke skråstrek da?
09.03.2019 - 13:33DROPS Design answered:
Hei Aase. De rettelsene som ligger nederst på oppskriften er allerede korrigert i teksten, så det er bare til info om at det har vært oppdateringer. En tom rute betyr rett, mens "2 rett sammen" er en skrå strek over 2 ruter - vi har nå dobbelsjekket at alle symbolene er synlige. Kanskje ser du dem om du bytter enhet? (mobil, pc, nettbrett). God fornøyelse
18.03.2019 - 10:42The pattern says to begin with A1, but there doesn’t seem to be a pattern 1. CS. Youmplease,explain this to me? Thanks!
01.03.2019 - 17:20DROPS Design answered:
Hello Mary. You can find diagram A1 next to the schematic drawing, at the end of the pattern. Happy knitting!
02.03.2019 - 08:43Maybe I’m losing it but when I count the number of stitches in Chart A 3 I make 17 stitches. I’m struggling getting started. Can you help?
11.02.2019 - 17:26DROPS Design answered:
Dear Mrs Rimmer, on first row in A.3 you work over 16 sts, but due to the small lace cable, the number of sts will vary between 17 (after you have worked the YO) and 16 (when you have decreased 1 stitch) - see video below how to work this cable. Happy knitting!
12.02.2019 - 09:46Dzień dobry, czy narzuty po każdej stronie rękawów mają być przerabiane w kolejnym rzędzie jako przekręcone? Nie ma tam dziurek? Pozdrawiam.
29.01.2019 - 23:33DROPS Design answered:
Witaj Magdo, z rysunku wynika, że masz rację, w opisie jest inaczej. Zgłoszę zapytanie i w razie pomyłki zostanie naniesiona korekta. Jeżeli Ci się spieszy, przerabiaj te 4 o. (narzuty z każdej strony rękawa) przekręcone. Pozdrawiam i powodzenia
30.01.2019 - 10:18Har hittat förklaringen och stickar de 4 maskorna i rätstickning detta första varv. Gott nytt år!
27.12.2018 - 17:39Kan ni förklara okets första varv. Skall ökas till 106 men jag får 110.
27.12.2018 - 09:25Jag är inte en spammer och det är länge sedan jag var härinne.
27.12.2018 - 08:25