Winter Daisies#winterdaisiesset |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónaðir vettlingar úr DROPS Nord með norrænu mynstri, lettneskum kaðli og gatamynstri. Vettlingar: Ein stærð. Sokkar: Stærð 35-43.
DROPS 193-7 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Sokkar: Sjá mynsturteikningu A.6 til A.9. LETTNESKUR KAÐALL: Kaðallinn samanstendur af 3 umferðum – allar umferðir eru teiknaðar inn í mynsturteikningu og eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1: * prjónið 1 lykkju slétt með litnum natur, 1 lykkja slétt með litnum gulur *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum natur að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Dragið þráðinn með litnum gulur undir þráðinn í litnum natur og síðan yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis með litnum natur og litnum gulur, en færið þráðinn alltaf undir þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir. UMFERÐ 3: Prjónaðu eins og umferð 2, en nú færist þráðurinn alltaf yfir þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir. ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 11,2. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir í öllum stærðum, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 15 lykkjur eru eftir á prjóni í öllum stærðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá stroffi og upp að fingurgómum. VINSTRI VETTLINGUR: Fitjið upp 64 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið A.1 (= 16 lykkjur) alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 72 lykkjur í umferð. Nú er prjónað A.2 (= 9 lykkjur) alls 8 sinnum í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 56 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með A.3 (= 14 lykkjur) alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með A.4 (= 56 lykkjur). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hefur verið upp að fyrstu svörtu rúðunni í A.4 er prjónað A.5 (= 1 lykkja í fyrstu umferð) áfram yfir þessa rúðu (aðrar lykkjur halda áfram með A.4 eins og áður). Þegar aukið hefur verið út 7 sinnum hvoru megin við A.5 og það eru 15 lykkjur fyrir op fyrir þumal eru prjónaðar 4 umferðir án útaukninga (eins og útskýrt er í A.5), síðan eru 15 þumallykkjurnar settar á þráð. Fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við lykkjur á þræði = 56 lykkjur. Prjónið síðan eftir A.4. Í umferð með ör er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á vettlingi – sjá mynsturteikningu, jafnframt í þessari umferð byrjar úrtaka: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum á undan lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Eftir alla úrtöku eru 12 lykkjur eftir í umferð. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALL: Setjið til baka 15 þumallykkjur á sokkaprjón 2,5. Prjónið upp 9 lykkjur í kantinn aftan við þumal = 24 lykkjur. Haldið áfram hringinn eftir A.5. Í umferð með ör er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á þumli – sjá mynsturteikningu, jafnframt í þessari umferð byrjar úrtaka: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 4 lykkjur færri í umferð): Fækkið lykkjum á undan lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Eftir alla úrtöku eru 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. HÆGRI VETTLINGUR: Fitjið upp og prjónið eins og vinstri vettlingur. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá stroffi og niður að tá. Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.6 (= 8 lykkjur) alls 9-9-10 sinnum í umferð. Í síðustu umferð í A.6 er aukið út um 9-9-10 lykkjur = 81-81-90 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur A.7 (= 9 lykkjur) alls 9-9-10 sinnum í umferð. Í síðustu umferð í A.7 (umferð með stjörnu) er fækkað um 0-0-8 lykkjur – sjá ÚRTAKA (jafnt yfir) = 72-72-72 lykkjur. Prjónið nú A.8 (= 12 lykkjur) alls 6 sinnum í umferð. Í síðustu umferð í A.8 (umferð með stjörnu) er fækkað um 2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 70-70-70 lykkjur. Haldið síðan áfram með litnum grár. Setjið fyrstu 39 lykkjur á þráð (= ofan á fæti) = 31 lykkjur fyrir hæl. Prjónið fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm, setjið eitt prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-14-15 lykkjur hvoru megin við hæl og 39 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 78-82-84 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 39 lykkjur ofan á fæti. Prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Haldið síðan áfram með litnum grár og í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan lykkjum ofan á fæti slétt saman og 2 lykkjur á eftir lykkjur ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-5-6 sinnum = 72-72-72 lykkjur. Haldið síðan áfram með 10-6-4 umferðir í litnum grár. Prjónið fram að prjónamerki á undan lykkjum ofan á fæti. Prjónið A.9 (= 12 lykkjur) alls 6-6-6 sinnum hringinn í umferð. Þegar allt A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 66-66-66 lykkjur í umferð. Prjónið nú með litnum grár til loka. Í næstu umferð er fækkað um 10-6-4 lykkjur jafnt yfir = 56-60-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm mælt frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6 cm eftir til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 28-30-31 lykkjur bæði ofan á fæti og undir il. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fækkið lykkjum þannig: Prjónið fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er mitt á milli þessa lykkja) og 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri) = 4 lykkjur færri í umferð. Endurtakið við hitt prjónamerkið. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-1 sinnum = 16-20-22 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-10-11 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterdaisiesset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 193-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.