Chris Bassett skrifaði:
I know what I did wrong, I forgot to do the heel decreases. OH no and I have finished the sock. that is why I had 96 stitches not 80
06.07.2021 - 23:36
Chris Bassett skrifaði:
I think I have followed the directions correctly but with 31 stitches from the heel. 37 stitches that were set aside. and then picking up 14 stitches from each side of the heel. I have ended up with 96, not 80. 37, 31, and 28 equal 96. I has used lots of drops patterns and I love them. this is the first time I have had a problem
04.07.2021 - 01:25DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Basset, heel is worked over 31 sts but after decreasing for heel you should have 15 stitches on needle + 37 sts + 2 x 14 sts picked up = 80 sts. Happy knitting!
05.07.2021 - 08:45
Sandra skrifaði:
Veel sokken met drops garen worden met 3,5 gebreid en deze met naald 4. Bij mij werd het breiwerk best los.
20.04.2021 - 11:10
Suzanne skrifaði:
Hei Hælindtagning i størrelse 35/37: Her startes med 4 færre antal masker. Så der skal være 11 masker tilbage på pinden ikke 15 på sidste pind. Hvis der skal være 15 masker tilbage på pinden er man nødt til på 1. pind at strikke til der er 11 masker tilbage på pinden og så begynde indtagning. Hvilken løsning er det? Tak for fin opskrift.
23.01.2021 - 06:16DROPS Design svaraði:
Hej Suzanne, jo du har 9 masker midt på pinden, tager første maske ind af de 9 du har tilbage i venstre side og samme i højre side. Du fortsætter med at tage ind på hver side af de midterste 9 masker, til du har 3 masker tilbage i hver side af de 9 midterste masker = 15 m tilbage på pinden. God fornøjelse!
29.01.2021 - 14:29
Vivi-Ann Lie Enersen skrifaði:
Hei. Har dere oppskrift på genser som matcher disse?
12.04.2020 - 23:24DROPS Design svaraði:
Hej Vi har nog dessvärre ingen exakt som dessa, men se gärna igenom våra gensere med nordiskt mönster här . Mvh DROPS Design
16.04.2020 - 10:58
Sonia skrifaði:
Très jolies, je viens de les terminer, le jacquart permet d'avoir des chaussettes très chaudes
26.11.2019 - 10:28
Nic Cox skrifaði:
Lovely design to give my wife, Amanda, her first experience of knitting with two yarns. After finishing the socks (large size) we then used the motifs to knit a "matching" hat ... and still have 40g of each colour left! 50g of each should be sufficient, even for the largest size.
07.06.2019 - 15:36
Monika skrifaði:
Eine ganz tolle Anleitung! Leicht verständlich ! Lg
09.03.2019 - 15:00
Tuula Heinonen skrifaði:
Kyllä tuli kauniit sukat vaikka tumman korvasinliukuvärillä
01.03.2019 - 22:49
Martha Agnete Gadeberg skrifaði:
Hvad betyder "havudsigt?"
09.01.2019 - 14:05DROPS Design svaraði:
Hei Martha. Havutsikt er navnet på den blå mønsterfargen. Så når det står referert til denne, er det den fargen du skal strikke med. God fornøyelse.
14.01.2019 - 13:26
Fjellkos#fjellkossocks |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaðir sokkar úr DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með norrænu mynstri. Stærð 35 - 43.
DROPS 193-11 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Finndu þína stærð í mynsturteikningu. Allar lykkjur í mynsturteikningu eru prjónaðar í sléttprjóni. HÆLÚRTAKA: Hælúrtaka er prjónuð í sléttprjóni þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9-9-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9-9-9 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8-8-8 lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 15-15-15 lykkjur eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR – STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 72-72-72 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum svartur DROPS Fabel. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú 6 umferðir stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið nú mynstur A.1 (= 8 lykkjur) alls 9 sinnum í umferð. Í síðustu umferð í A.1 er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir í umferð = 70-70-70 lykkjur. Prjónið síðan A.2 (= 10 lykkjur) alls 7 sinnum í umferð. Í síðustu umferð er aukið út um 2 lykkjur jafnt yfir = 72-72-72 lykkjur ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú A.3 (= 12 lykkjur) alls 6 sinnum í umferð. Í síðustu umferð er fækkað um 4-0-0 lykkjur jafnt yfir = 68-72-72 lykkjur. Prjónið nú mynstur þannig: A.4 (= 7 lykkjur), A.5 (= 23 lykkjur), A.4 (= 7 lykkjur) og A.6 (= 31-35-35 lykkjur) – fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu A.6 = 64-68-68 lykkjur í umferð. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina eru fyrstu 37 lykkjur settar á þráð (= lykkjur yfir A.4 + A.5 + A.4) = 27-31-31 lykkjur eftir á prjóni fyrir hæl. Haldið áfram með A.7 (veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð) yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú HÆLÚRTAKA – lesið útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-12-14 lykkjur hvoru megin við hæl – passið uppá að prjóna upp lykkjur til skiptis með sitt hvorum lit eins og í A.7 og passið uppá að fyrsta lykkjan og síðasta lykkjan sé prjónuð upp með litnum yfir hafið. Setjið til baka 37 lykkjur af þræði á prjóninn = 72-76-80 lykkjur. Þær 37 lykkjur sem eru ofan á fæti halda áfram í mynstri eins og áður (A.4 – A.5 – A.4), aðrar lykkjur eru prjónaðar í A.7 (= undir fæti) – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 37 lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan 37 lykkjum (ofan á fæti) snúnar slétt saman og 2 lykkjur á eftir 37 lykkjum (ofan á fæti) eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 7 sinnum = 58-62-66 lykkjur. Síðasta lykkja á undan A.7 á að vera lykkja með litnum svartur. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-5-5 cm að loka máli). Prjónið síðan þannig: Prjónið A.4 eins og áður yfir lykkjur á hvorri hlið og A.7 yfir 23-23-23 lykkjur ofan á fæti og 21-25-29 lykkjur undir fæti – JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað fyrir tá hvoru megin við A.4 í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.4, 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.4, síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman. Endurtakið við hina mynstureininguna af A.4 (= 4 lykkjur færri í umferð). Fækkið lykkjum svona af í annarri hverri umferð alls 4-7-7 sinnum og síðan í hverri umferð 5-3-3 sinnum = 22-22-26 lykkjur eftir í umferð. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 með litnum svartur = 11-11-13 lykkjur. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fjellkossocks eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 193-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.