DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4070.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Daisies

Prjónaðir vettlingar úr DROPS Nord með norrænu mynstri, lettneskum kaðli og gatamynstri. Vettlingar: Ein stærð. Sokkar: Stærð 35-43.

DROPS 193-7
DROPS Design: Mynstur no-024
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

GARN Í ALLT SETTIÐ:
Stærð (vettlingar): Ein stærð
Stærð (sokkar): 35/37 – 38/40 – 41/43

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100 g litur 05, grár
100-100-100 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 18, gulur

VETTLINGAR:
Stærð: Ein stærð

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50 g litur 05, grár
50 g litur 01, natur
50 g litur 18, gulur

SOKKAR:
Stærð: 35/37 – 38/40 – 41/43
Lengd fótar: 22-24-27 cm.
Hæð á stroffi: ca 18-18-18 cm.

Efni:
DROPS NORD frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100 g litur 05, grár
50-50-50 g litur 01, natur
50-50-50 g litur 18, gulur

PRJÓNFESTA:
26 lykkjur á breidd og 34 umferðir á hæð með sléttprjóni/mynsturprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir á grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptið yfir á fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nord
DROPS Nord
45% Alpakka, 30% Polyamide, 25% Ull
frá 814.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4070.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Vettlingar: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.
Sokkar: Sjá mynsturteikningu A.6 til A.9.

LETTNESKUR KAÐALL:
Kaðallinn samanstendur af 3 umferðum – allar umferðir eru teiknaðar inn í mynsturteikningu og eru prjónaðar þannig:
UMFERÐ 1: * prjónið 1 lykkju slétt með litnum natur, 1 lykkja slétt með litnum gulur *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 2: Leggið báða þræðina á framhlið á stykki (að þér). Færið þráðinn með litnum natur að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Dragið þráðinn með litnum gulur undir þráðinn í litnum natur og síðan yfir að bakhlið, prjónið 1 lykkju brugðið og færið þráðinn til baka að framhlið. Haldið svona áfram með brugðnar lykkjur til skiptis með litnum natur og litnum gulur, en færið þráðinn alltaf undir þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir.
UMFERÐ 3: Prjónaðu eins og umferð 2, en nú færist þráðurinn alltaf yfir þráðinn frá síðustu lykkju sem þú prjónaðir.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 90 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 8) = 11,2. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað með því að prjóna ca 10. og 11. hverja lykkju slétt saman.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir í öllum stærðum, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 9 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eina og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem prjónuð var slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 8 lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðna, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir brugðnu lykkjuna, snúið stykkinu.
Haldið áfram með úrtöku alveg eins með því að það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 15 lykkjur eru eftir á prjóni í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá stroffi og upp að fingurgómum.

VINSTRI VETTLINGUR:
Fitjið upp 64 lykkjur á sokkaprjón 2,5 með litnum natur. Prjónið A.1 (= 16 lykkjur) alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 72 lykkjur í umferð. Nú er prjónað A.2 (= 9 lykkjur) alls 8 sinnum í umferð. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 56 lykkjur í umferð. Haldið síðan áfram með A.3 (= 14 lykkjur) alls 4 sinnum í umferð. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka er prjónað áfram með A.4 (= 56 lykkjur).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar prjónað hefur verið upp að fyrstu svörtu rúðunni í A.4 er prjónað A.5 (= 1 lykkja í fyrstu umferð) áfram yfir þessa rúðu (aðrar lykkjur halda áfram með A.4 eins og áður). Þegar aukið hefur verið út 7 sinnum hvoru megin við A.5 og það eru 15 lykkjur fyrir op fyrir þumal eru prjónaðar 4 umferðir án útaukninga (eins og útskýrt er í A.5), síðan eru 15 þumallykkjurnar settar á þráð. Fitjið upp 1 nýja lykkju aftan við lykkjur á þræði = 56 lykkjur.
Prjónið síðan eftir A.4. Í umferð með ör er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á vettlingi – sjá mynsturteikningu, jafnframt í þessari umferð byrjar úrtaka:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 4 lykkjur færri í umferð).
Fækkið lykkjum á undan lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Eftir alla úrtöku eru 12 lykkjur eftir í umferð.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið til baka 15 þumallykkjur á sokkaprjón 2,5. Prjónið upp 9 lykkjur í kantinn aftan við þumal = 24 lykkjur. Haldið áfram hringinn eftir A.5. Í umferð með ör er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á þumli – sjá mynsturteikningu, jafnframt í þessari umferð byrjar úrtaka: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki (= 4 lykkjur færri í umferð):
Fækkið lykkjum á undan lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Eftir alla úrtöku eru 8 lykkjur eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

HÆGRI VETTLINGUR:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstri vettlingur.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna frá stroffi og niður að tá.

Fitjið upp 72-72-80 lykkjur á sokkaprjóna 2,5 með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt, prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.6 (= 8 lykkjur) alls 9-9-10 sinnum í umferð. Í síðustu umferð í A.6 er aukið út um 9-9-10 lykkjur = 81-81-90 lykkjur.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur A.7 (= 9 lykkjur) alls 9-9-10 sinnum í umferð. Í síðustu umferð í A.7 (umferð með stjörnu) er fækkað um 0-0-8 lykkjur – sjá ÚRTAKA (jafnt yfir) = 72-72-72 lykkjur. Prjónið nú A.8 (= 12 lykkjur) alls 6 sinnum í umferð. Í síðustu umferð í A.8 (umferð með stjörnu) er fækkað um 2-2-2 lykkjur jafnt yfir = 70-70-70 lykkjur.
Haldið síðan áfram með litnum grár. Setjið fyrstu 39 lykkjur á þráð (= ofan á fæti) = 31 lykkjur fyrir hæl. Prjónið fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm, setjið eitt prjónamerki hér – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 12-14-15 lykkjur hvoru megin við hæl og 39 lykkjur af þræði eru settar til baka á prjóninn = 78-82-84 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við 39 lykkjur ofan á fæti. Prjónamerkin fylgja áfram með í stykkinu. Haldið síðan áfram með litnum grár og í fyrstu umferð er lykkjum fækkað hvoru megin við lykkjur ofan á fæti þannig: Prjónið 2 lykkjur á undan lykkjum ofan á fæti slétt saman og 2 lykkjur á eftir lykkjur ofan á fæti snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 3-5-6 sinnum = 72-72-72 lykkjur. Haldið síðan áfram með 10-6-4 umferðir í litnum grár. Prjónið fram að prjónamerki á undan lykkjum ofan á fæti. Prjónið A.9 (= 12 lykkjur) alls 6-6-6 sinnum hringinn í umferð. Þegar allt A.9 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 66-66-66 lykkjur í umferð. Prjónið nú með litnum grár til loka. Í næstu umferð er fækkað um 10-6-4 lykkjur jafnt yfir = 56-60-62 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 18-19-21 cm mælt frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6 cm eftir til loka). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 28-30-31 lykkjur bæði ofan á fæti og undir il. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin.
Fækkið lykkjum þannig: Prjónið fram að 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er mitt á milli þessa lykkja) og 2 lykkjur snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri) = 4 lykkjur færri í umferð. Endurtakið við hitt prjónamerkið. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umferð alls 4-7-9 sinnum og síðan í hverri umferð alls 6-3-1 sinnum = 16-20-22 lykkjur eftir á prjóni.
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 8-10-11 lykkjur.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt með natur
symbols = slétt með grár
symbols = slétt með gulur
symbols = prjónið LETTNESKUR KAÐALL – sjá útskýringu í uppskrift að ofan, með þráðinn undir þann sem þú prjónaðir síðast með
symbols = prjónið LETTNESKUR KAÐALL – sjá útskýringu í uppskrift að ofan, með þráðinn yfir þann sem þú prjónaðir síðast með
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo að ekki myndist gat
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem lykkjan sem var felld af áður, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu
symbols = slétt lykkja með grár – setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju (það fylgir áfram með í stykkinu) – lykkjum er fækkað hvoru megin við þessa lykkju
symbols = í þessari umferð er sett eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki (sjá tákn með svörtum punkti). Fækkið nú lykkjum hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í – sjá útskýringu í uppskrift
symbols = úrtökuumferð – sjá útskýringu í uppskrift
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Daisies

Kerstin, Germany

Winter Daisies

Linda Christensen, Denmark

Winter Daisies

Kerstin, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 193-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Anett Oulie wrote:

Fint mønster men velger å avslutte prosjektet etter å ha kommet til første tommelkile. Jeg lurer på hvordan passformen blir når det skal legges opp 9 masker på tommelens bakside når den er snurpet sammen og kanten bak, som man skal legge opp i består av 1 maske?

01.10.2023 - 08:40

country flag Audgunn Eie wrote:

Vottene i denne oppskriften er helt feil, siden tommelen er satt på «kanten» av hånda. Dette er selvsagt gjort for at mønsteret skal stemme, men det er nå engang slik at tommelen går mot innsida av hånda, med det resultat at her blir mønsteret dradd helt skjevt. Denne votten kunne jeg aldri gi bort - og det ble heller ikke strikket vott nr 2.

17.11.2021 - 18:56

country flag Inna Loyko wrote:

Красота! Спасибо за идею! К сожалению, не приходилось вязать пряжей Drops, но очень хочу попробовать. Beautiful! Thanks for the idea!

17.11.2021 - 13:54

country flag Jannie Wouters wrote:

In het patroon van de sokken staat, na het breien van A9, ga verder tot de gewenste lengte. Dit is me niet duidelijk. Welke gewenste lengte??? Niet voor de teen, want dat komt verderop.

22.02.2021 - 10:45

DROPS Design answered:

Dag Jannie,

Er wordt bedoeld dat je het werk verder af breit met grijs, dus doorgaan met grijs tot het werk klaar is en geen telpatroontjes meer. (Natuurlijk wel de minderingen etc, zoals aangegeven)

23.02.2021 - 12:47

country flag Laura wrote:

Er staat een fout in de beschrijving van de sokken. Na a7 minder 0_0_8 steken, dit moet zijn 9_9_8

13.06.2019 - 20:56

DROPS Design answered:

Dag Laura,

Dankjewel voor het doorgeven, ik heb het even aangepast!

17.06.2019 - 15:05

country flag Lotta wrote:

Jag får inte antalet maskor att stämma efter ökning, minskning från mönstrets början: ”Lägg upp 72-72-80 maskor ..... På sista varvet i A.6 ökas det 9-9-10 maskor = 81-81-90 maskor .... På sista varvet i A.7 (varv med stjärna) minskas det 0-0-8 maskor .... = 72-72-72 maskor”

18.02.2019 - 00:26

country flag Elin wrote:

Hej! Diagram A.4 är borta. Kan ni försöka få tillbaka det? Med vänlig hälsning, Elin!

07.01.2019 - 14:47

DROPS Design answered:

hei Elin. Vi har nå dobbelsjekket dette, og alle diagrammene (A.1-A.9) ligger nederst på oppskriften. Har du problemer med å se det uansett hva slags enhet du bruker? God fornøyelse.

11.01.2019 - 11:30

country flag Jansje Fafiani Eefting wrote:

Momenteel is het onmogelijk om dit mooie patroon uit te printen??? Bij andere patronen ook niet mogelijk. Is er een fout bij jullie op de site?

01.12.2018 - 11:04

country flag Karin wrote:

Wenn ich diese Handschuhe stricke habe ich lange Spannfäden. Was kann ich machen das dieses vermieden wird. Denn beim anziehen des Handschuhs bleibt man ja leicht hängen. Danke Karin

23.08.2018 - 14:42

DROPS Design answered:

Am besten ist es, den mitgeführten Faden auf der Rückseite während des Strickens nach ein paar Maschen mit dem Arbeitsfaden auf der Rückseite der Arbeit zu verkreuzen, dann werden die Spannfäden fixiert und hängen nicht durch. Gutes Gelingen!

24.08.2018 - 00:37

country flag Dagmar wrote:

Gänseblümchen

27.07.2018 - 14:13