Florence skrifaði:
Bonjour. Comment tricote-t-on le jeté sur le rang retour ? Sur les explications de ce modèle, il est dit 2 choses contradictoires : Paragraphe "raglan" : tricoter les jetés à l'envers pour qu'ils forment des trous Sur le diagramme : tricoter le jeté à l'endroit pour former un trou. Du coup, au rang retour, doit-on les tricoter à l'endroit ou à l'envers pour former les trous ? Merci !
28.12.2022 - 14:11DROPS Design svaraði:
Bonjour Florence, les jetés que l'on fait pour augmenter (= pour le raglan, avant et après chaque A.1) se tricotent torse au rang suivant pour éviter des trous, mais les jetés du diagramme (= point ajouré) se tricotent normalement (à l'endroit), eux doivent former des trous. Bon tricot!
02.01.2023 - 11:18
Marita skrifaði:
Nydelig genser til en flott, eldre dame. Flere av deres oppskrifter kunne med hell ogsaa ha blitt vist med eldre modeller og ikke bare unge og slanke.
22.07.2021 - 00:12
Joelle Mandrillon skrifaði:
Bonjour, je souhaite tricoter ce pull, je voudrais savoir si l'encolure dos est plus haute que le devant, sur le schéma, on la voit plus haute mais dans les explications, il n'est pas proposé de tricoter de rehausse. Bien cordialement, J. M
19.08.2019 - 14:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mandrillon, le schéma est standard, dans ce modèle, l'encolure devant et dos seront identiques. Si vous voulez tricoter une réhausse, vous pouvez vous inspirer d'un modèle avec la même tension qui en propose une. Bon tricot!
19.08.2019 - 14:31
Kari skrifaði:
Hvilken størrelse er det på genseren som den yngste modellen har på bildene her? Jeg får ikke antall masker på halsen i mønsteret til å stemme, er genseren på bildet strikket litt annerledes? Jeg vil helst ha samme hals som på bildet.
20.06.2019 - 21:28DROPS Design svaraði:
Hei Kari. Du legger opp 101-105-109-113-118-126 masker, og strikker 3 riller (=halskanten). Videre strikkes 2 pinner glattstrikk der du øker 21-21-25-29-32-32 masker jevnt fordelt på 1. pinnen. Så fortsetter du med glattstrikk og A.1 i hver overgang mellom bol og ermer, samtidig som du øker til raglan. Om du ser på målskissen nederst på siden vil du se hvor stor åpningen til halskanten skal være i de ulike størrelsene. God fornøyelse
24.06.2019 - 08:47
Una skrifaði:
A really encouraged firsttime reward awaits fresh participants, as the site is updated frequently using campaigns which should appease any returning person.
04.01.2018 - 19:51
Mireille skrifaði:
Mooie trui die door de raglijn heel netjes lijkt.
23.12.2017 - 08:46
Peonia#peoniasweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Peysa með gatamynstri, laskalínu og A-formi, prjónuð í hring ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Muskat eða DROPS Sky.
DROPS 188-34 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING/ÚRTAKA (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fjölga/fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja sem á að auka/fækka yfir (t.d. 90 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda útaukninga/úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 2,8. Í þessu dæmi er aukið út með 1 lykkju með því að slá einu sinni uppá prjóninn á eftir ca 3. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo að ekki myndist gat. Ef fækka á lykkjum jafnt yfir, prjónið ca aðra hverja og 3. hverja lykkju slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út hvoru megin við mynstureiningu A.1 (= 8 útaukningar í umferð). Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið svo það myndist gat. ÚTAUKNING (á við um hliðar á fram- og bakstykki): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 4 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. Umferðin byrjar við miðju að aftan. BERUSTYKKI Fitjið upp 101-105-109-113-118-126 lykkjur á hringprjón 3,5 með Muskat eða Sky. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 21-21-25-29-32-32 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 122-126-134-142-150-158 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú mynstur þannig: Prjónið 13-14-16-18-20-22 lykkjur (= hálft bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1 (= 12 lykkjur), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 26-28-32-36-40-44 lykkjur (= framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 11 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 13-14-16-18-20-22 lykkjur slétt (= hálft bakstykki). Fyrsta útaukning fyrir laskalínu er nú lokið (= 8 lykkjur fleiri í hverri umferð). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, í annarri hverri umferð alls 22-25-27-30-33-36 sinnum (meðtalin fyrsta útaukning) = 298-326-350-382-414-446 lykkjur. Haldið síðan áfram með sléttprjón og mynstur A.1 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þar til stykkið mælist 20-22-23-25-27-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan. Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 41-45-49-54-59-64 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 67-73-77-83-89-95 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið næstu 82-90-98-108-118-128 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 67-73-77-83-89-95 lykkjur á þráð (= ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur undir ermi, prjónið þær 41-45-49-54-59-64 lykkjur sem eftir eru (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. Setjið eitt prjónamerki hér. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 184-200-220-240-264-288 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (þ.e.a.s. mitt á milli 10-10-12-12-14-16 nýrra lykkja sem fitjaðar voru upp undir ermi í hvorir hlið). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 12.-12.-14.-14.-14.-14. hverri umferð alls 7-7-6-6-6-6 sinnum = 212-228-244-264-288-312 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 32-32-33-33-33-33 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 67-73-77-83-89-95 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki yfir á sokkaprjón 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 77-83-89-95-103-111 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur sem prjónaðar voru upp í hvorri hlið (= mitt undir ermi/hlið á peysu). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 6.-5.-4.-4.-3.-3. hverri umferð alls 15-18-20-22-26-29 sinnum = 47-47-49-51-51-53 lykkjur. Prjónið síðan áfram þar til ermin mælist 44-42-42-40-39-37 cm frá skiptingu. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 6 umferðir garðaprjón. Fellið af með sléttum lykkjum. Til að koma í veg fyrir að affelingarkanturinn verði stífur er hægt að fella af með grófari prjónum. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peoniasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.