Pia Johannesson skrifaði:
Då jag ska maska av vid 40cm 6 maskor i varje sida , görs det på ett och samma varv?
03.08.2024 - 15:50DROPS Design svaraði:
Hej Pia, ja det gør du :)
06.08.2024 - 14:03
Mari skrifaði:
Är det verkligen garn drops Paris på bilden på koftan Teresa? Ser tunnare och mjukare ut än min påbörjade stickning.
29.06.2023 - 14:42
Marina skrifaði:
Hallo liebes Team, bin diese Jacke gerade am stricken. Habe nun das Gefühl, dass der Raglanabschnitt zu groß wird. Nun meine Frage; wird bei der Raglanabnahme die Rückreihe mitgezählt? ( z. B. alle 2 Reihen = 1 Hinreihe und 1 Rückreihe) LG
13.02.2023 - 20:21DROPS Design svaraði:
Liebe Marina, die Raglanabnahmen entsehen zuerst in jeder 4. Reihe (= in jeder 2. Hinreihe, also 3 Reihen zwischen die Zunahmenreihen) und dann in jeder 2. Reihe (= in jeder Hinreihe). Die Abnahmen für Ärmel und Rumpfteil werden gleichzeitig gestrickt, aber um einen unterschiedlichen Rythmus. Beachten Sie auch, daß Ihre Maschenprobe in der Höhe richtig ist (22 Reihen = 10 cm), dann bekommen Sie die Maßnahmen wie in der Maßskizze. Viel Spaß beim stricken!
14.02.2023 - 13:49
Nassima Makhloufi skrifaði:
Bonjour, pour les manches est-ce qu’il faut utiliser des aiguilles circulaires de 40cm ou 60 cm ? Merci
19.09.2021 - 02:13DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Makhloufi, vous commencez les manches par les aiguilles doubles pointes et vous changez pour les aiguilles plus longues quand il y a trop de mailles pour les aiguilles doubles pointes (vous pouvez aussi tricoter les manches entièrement en "magic loop" - cf vidéo). Bon tricot!
20.09.2021 - 10:59
Nassima Makhloufi skrifaði:
Bonjour, le motif ajouré se tricote aussi dans le dos ? Dommage il n’y a pas de photo du dos du gilet
07.09.2021 - 02:26DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Makhloufi, tout à fait, on tricote M.1 sur chacun des devants et M.2 au milieu dos. Bon tricot!
07.09.2021 - 08:45
Inga Olausson skrifaði:
Hej! Jag letar efter ett cardigan / koftmönster i Alpaca Silk brushed (Drops), där man stickar rbakstycke för sig och framstyckena för sig. Tycker plaggen håller formen bättre och inte blir så lätt säckiga som när man stickar allt-i-ett... Men jag hittar ingeet sådant mönster. Finns det? Mvh Inga Olausson
03.03.2019 - 13:51DROPS Design svaraði:
Hej. Vi har t.ex mönster 201-21 som är stickat på det sättet. Du kan söka på kofta och Brushed alpaca silk för att få upp alla mönster i det garnet som vi har. Mvh DROPS Design
04.03.2019 - 11:33
Susi Meyer skrifaði:
In wievielte Reihe wird das Muster gestrickt
28.08.2018 - 15:21DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Meyer, A.1 und A.2 sind über 4 Reihen gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
06.09.2018 - 10:16
Ania skrifaði:
Bardzo mi się podoba wzór swetra.
04.04.2018 - 13:19
Diane Michaud skrifaði:
Bonjour j'attends toujours la réponse pour ma question sur la diminution de la manche ..Elle quelle se fait au même endroit que celle du dos et devant près des marqueurs..
29.03.2018 - 19:59DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Michaud, vous allez diminuer à un rythme différent sur les manches et sur le dos/les devants, les diminutions vont se faire: à la fin du devant droit/des manches/du dos avant le marqueur (cf RAGLAN) et/ou au début des manches/dos/devant gauche. On diminue 2 m sur chaque manche et sur le dos et 1 m sur chaque devant. En fonction de la taille vous diminuerez soit 8 m (= sur chaque partie) soit seulement 4 m (= manches seulement ou dos/devants). Bon tricot!
30.03.2018 - 12:02
Diane Michaud skrifaði:
Bonjour une petite question mes manches sont ajoutées avec le reste sur la même broche circulaire avec le reste du tricot je voudrais comment ce fait la diminution reglan pour la manche je comprends pas car j\\\'ai mis un marqueur des deux côtés des manches pour la diminution reglan dos et devant mais pour les manche ? Merci
28.03.2018 - 18:05
Teresa#teresacardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 188-33 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, prjónamerki. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónamerki, 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjuna yfir lykkjuna sem var prjónuð. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan passar ekki á hæðina og prjónað er of fast þá kemur laskaúrtakan til með að verða of stutt og handvegurinn of lítill. Þetta er hægt að jafna út með því að prjóna 1 auka umferð án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtaka. ÚTAUKNING: Aukið mitt undir ermi þannig – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagati í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt = hæll. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: S: 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm M: 11, 20, 29, 38, 47 og 58 cm L: 11, 20, 30, 40, 50 og 60 cm XL: 11, 19, 27, 35, 44, 53 og 62 cm XXL: 11, 19, 28, 37, 46, 55 og 64 cm XXXL: 12, 21, 30, 39, 48, 57 og 66 cm --------------------------------------------------------- PEYSA: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, frá miðju að framan. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Stykkin eru sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka með úrtöku fyrir laskalínu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. Fitjið upp 170-182-198-212-234-254 lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 5 með Paris. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= kantur að framan), A.1 (= 17 lykkjur), 47-53-61-68-79-89 lykkjur slétt, A.2 (= 32 lykkjur), 47-53-61-68-79-89 slétt, A.1, 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan). Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 45-48-52-56-61-66 lykkjur inn frá hvorri hlið (bakstykki = 80-86-94-100-112-122 lykkjur). Haldið áfram með þetta mynstur, ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 lykkjur færri), fækkið lykkjum með 6 cm millibili alls 6 sinnum = 146-158-174-188-210-230 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 40-40-41-41-41-41 cm fellið af 6-6-8-8-10-12 lykkjur í hvorri hlið (= 3-3-4-4-5-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin). Nú eru 62-68-74-80-90-98 lykkjur á bakstykki og 36-39-42-46-50-54 lykkjur á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf. Fitjið upp 38-38-40-42-44-46 lykkjur á sokkaprjón 5 með Paris. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, síðan er prjónað sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-4-6 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING. Aukið út með 3-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 8-12-14-15-15-16 sinnum = 54-62-68-72-74-78 lykkjur. Þegar stykkið mælist 33-31-31-29-28-26 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi = 48-56-60-64-64-66 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt er af fyrir handveg = 230-258-278-300-318-338 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykki og erma. Haldið áfram með mynstur og sléttprjón eins og áður og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Mismunandi er fellt af á fram- og bakstykki og ermum. Fækkið lykkjum þannig: LASKALÍNA Á ERMI: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við hvora ermi (= 2 lykkjur færri á hvorri ermi í hvert skipti sem lykkjum er fækkað). Fækkið lykkjum svona í 4. hverri umferð 4-2-2-2-4-5 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 13-19-21-23-21-21 sinnum = alls 17-21-23-25-25-26 sinnum. LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin á bakstykki og 1 lykkju á hvoru framstykki að ermi (= 2 lykkjur færri á bakstykki og 1 lykkja færri á hvoru framstykki í hvert skipti sem lykkjum er fækkað). Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 8-9-9-8-8-7 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 5-5-7-11-13-17 sinnum = alls 13-14-16-19-21-24 sinnum. Eftir alla úrtöku eru 110-118-122-124-134-138 lykkjur í umferð. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, í fyrstu umferð er fækkað um 12-16-16-16-18-20 lykkjur jafnt yfir = 98-102-106-108-116-118 lykkjur. Fellið af. Peysan mælist alls 62-64-66-68-70-72 cm frá öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #teresacardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-33
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.