Jennifer Douglas skrifaði:
How refreshing to see an "older" model. Grannies don't just wear shawls and grey cardigans.
17.02.2018 - 10:52
Ineke skrifaði:
Hi, verschillende patronen uit de nieuwe catalogus kan ik niet zien. Het betreft o.a. w-680, me-130 en me-140. Bij het door willen klikken verschijnt enkel het plaatje en niet het patroon. Graag aanpassen. Bedankt Ineke
10.02.2018 - 16:07
Betty skrifaði:
If using different models for the photoshoots, then models of all ages should be used not only very young or granny models. Some clothing simply does no suit everyone due to bodytype and /or age
20.01.2018 - 11:37
Jennifer King skrifaði:
Think this will make a great transitional piece!
17.01.2018 - 11:44Me skrifaði:
How nice to see a real woman for a change! Yes, some patterns are only suited to the very young - but many are not.
09.01.2018 - 12:16
Carmen skrifaði:
Super comfy!
17.12.2017 - 09:08
Pavla Michaličková skrifaði:
Oblíbená elegantní klasika
15.12.2017 - 06:58
Victoria skrifaði:
Klassisch schlicht, einfach schön.
13.12.2017 - 20:37
Annette Krane skrifaði:
Toller zeitloser Pulli.
12.12.2017 - 18:58
Doris skrifaði:
Lässiger Pullover, sehr schön!
12.12.2017 - 17:58
Montecito#montecitosweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og laskalínu. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Paris.
DROPS 188-28 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA: Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 183 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 11) = 16,6. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar til skiptis ca 15. og 16. hver lykkja saman og hver 16. og 17. hver lykkja saman. ÚRTAKA-2 (á við um hliðar): Byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki í hlið: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.1. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við A.1 þannig (= 8 lykkjur færri í hvert skipti sem lykkjum er fækkað): Byrjið 2 lykkjum á undan A.1, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið A.1, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið svona út mitt undir ermi – byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjón/stuttan hringprjón. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 183-200-213-225-247-264 lykkjur á hringprjón 4,5 með Paris. Prjónið 6 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 11-12-13-13-15-16 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA-1 =72-188-200-212-232-248 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð og eitt prjónamerki eftir 86-94-100-106-116-124 lykkjur = í hliðum. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin í hliðum (= 4 lykkjur færri) – lesið ÚRTAKA-1. Fækkið lykkjum svona með 6 cm millibili alls 6 sinnum í öllum stærðum = 148-164-176-188-208-224 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39 cm er næsta umferð prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið næstu 68-76-80-86-94-102 lykkjur (= framstykki), fellið af næstu 6-6-8-8-10-10 lykkjur fyrir handveg (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki), prjónið næstu 68-76-80-86-94-102 lykkjur (= bakstykki), fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón þegar auknar hafa verið út nægilega margar lykkjur. Fitjið upp 40-44-44-48-56-56 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Paris. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm er skipt yfir á sokkaprjóna 5,5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 6-6-6-8-12-12 lykkjur jafnt yfir = 34-38-38-40-44-44 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= mitt undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 9-8-10-8-7-10 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2½-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-17-17-19-20 sinnum = 58-64-72-74-82-84 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-39-37-36-34 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis) fellið af miðju 6-6-8-8-10-10 lykkjur (= 3-3-4-4-5-5 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 52-58-64-66-72-74 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 240-268-288-304-332-352 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Næsta umferð er prjónuð þannig – byrjið umferð eftir 9-8-7-9-8-9 lykkjur á bakstykki: Prjónið * 50-60-66-68-78-84 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 15 lykkjur), 40-44-48-54-58-62 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 15 lykkjur) *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum. Haldið áfram með þetta mynstur og fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umferð alls 19-21-23-25-27-29 sinnum = 88-100-104-104-116-120 lykkjur. Berustykkið mælist ca 19-21-23-25-27-29 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 8 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, en í fyrstu umferð er fækkað um 6-15-16-13-19-18 lykkjur jafnt yfir = 82-85-88-91-97-102 lykkjur. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið 8 umferðir garðaprjón, fellið af með sléttum lykkjum – til að affellingarkanturinn verði ekki stífur er hægt að fella af með prjóni 5,5. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermi. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #montecitosweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 188-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.