M. Voets skrifaði:
Geachte lezer. Dit is een mooi patroon. Ik heb uw aanwijzingen voor het meerderen gevolgd en bij de tweede meerdering keurig om de 2, 3 steken gemeerderd. Hoe krijg ik nu het patroon weer zoals op de tekening. Met andere woorden: dat het netjes doorloopt. Met vriendelijke groet, M. Voets
05.04.2018 - 09:34DROPS Design svaraði:
Hallo M. Voets, Het is de bedoeling dat je na het minderen het aantal steken op de naald hebt dat aangegeven staat. Dit is een aantal dat deelbaar is door 12, waardoor het telpatroon er precies in past.
08.04.2018 - 21:29
Kari Borge skrifaði:
Går det an at dere i tillegg til oppskrifter som strikkes ovenfra og ned, også kan lage oppskrifter der det strikkes rett vei dvs. nedenfra og opp?
01.03.2018 - 12:06DROPS Design svaraði:
Hei Kari. Det har dessverre ikke designavdeligen mulighet til å gjøre. Mye jobb for et resultat som vil så si bli det samme. mvh Drops design
01.03.2018 - 12:55
Susanne Jensen skrifaði:
Hej, er det muligt at erstatte nogle af farverne i mønstret med brushed Alpaca Silk? Og altså lave en blandet bluse, med både Air og brushed alpaca silk :-)
20.02.2018 - 07:42DROPS Design svaraði:
Hei Susanne Ja det er fuldt muligt å blande Air med Burshed Alpaca Silk det blir sikkert en flott kombinasjon. Begge disse garner kommer fra samme garngruppe C https://www.garnstudio.com/yarn-groups.php?cid=1 og innenfor denne gruppe med garn har alle ca samme strikkefasthet og kan blandes om hverandre Go Fornøyelse
20.02.2018 - 10:50
Manuela skrifaði:
Wirklich harmonische Zusammenstellung softer Farbtöne. Besonders, schmeichelt jedem Typ.
03.01.2018 - 01:09
Géraldine skrifaði:
Nice model!
02.01.2018 - 23:55
Janine skrifaði:
Ich liebe diese dezenten Farben, perfekt für den Frühling!
30.12.2017 - 09:38
Claudia skrifaði:
Traumhafte Farben, wunderschönes Muster. Ich freue mich schon aufs Stricken!
15.12.2017 - 09:24
Katrin skrifaði:
Beautiful : I like the color- combination... it looks so soft.... nice sleeve-erging!
12.12.2017 - 19:11
Nougat#nougatsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa með hringlaga berustykki, marglitu norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S-XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Air.
DROPS 191-12 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykkinu. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist saman. ÚRTAKA/ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka/fjölga eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 80 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku/útaukninga sem á að gera (t.d. 3) = 26,7. Í þessu dæmi er fækkað með því að prjóna til skiptis 26. og 27. hverja lykkju slétt saman. Ef auka á út þá er það gert til skiptis ca eftir 26. og 27. hverja lykkju. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ÚTAUKNING: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Hægt er að prjóna upphækkun aftan í hnakka til að flíkin passi betur þannig að berustykkið verður aðeins hærra aftan í hnakka. Hægt er að sleppa þessari upphækkun, þá verður hálsmálið alveg eins að framan og að aftan – sjá útskýringu aðeins neðar í uppskrift. Eftir berustykki er fram- og bakstykki prjónað í hring á hringprjón. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna ofan frá og niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjón 4,5 með litnum hveiti. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-4-4-5-5 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 3-5-5-4-4-4 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚRTAKA/ÚTAUKNING = 77-79-83-88-92-96 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 5,5. Nú er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka eða að fara beint áfram með að prjóna berustykki ef ekki er óskað eftir að hafa upphækkun. UPPHÆKKUN Í HNAKKA: Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð = miðja að aftan. Byrjið frá réttu með litnum natur og prjónið 11-11-12-13-13-14 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði, snúið, herðið á þræði og prjónið 22-22-24-26-26-28 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-33-36-39-39-42 lykkjur slétt, snúið, herðið á þræði og prjónið 44-44-48-52-52-56 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur að miðju að aftan. BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur A.1 í hring í umferð – lesið LEIÐBEININGAR og aukið út um lykkjur jafnt yfir, í hverri umferð merktri með ör þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í umferð merktri með ör 1 er aukið út um 31-41-37-44-40-48 lykkjur jafnt yfir = 108-120-120-132-132-144 lykkjur. Í umferð merktri með ör 2 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 144-156-168-180-180-204 lykkjur. Í umferð merktri með ör 3 er aukið út um 36-36-48-48-48-60 lykkjur jafnt yfir = 180-192-216-228-228-264 lykkjur. Í umferð merktri með ör 4 er aukið út um 36-36-36-36-48-48 lykkjur jafnt yfir = 216-228-252-264-276-312 lykkjur. Í umferð merktri með ör 5 er aukið út um 0-12-12-16-28-16 lykkjur jafnt yfir = 216-240-264-280-304-328 lykkjur. Skiptið yfir í hveiti. Haldið síðan áfram með hveiti og sléttprjón þar til stykkið mælist 24-25-26-27-28-29 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að framan og niður (ef prjónfestan passar á hæðina hefur þetta mál náð stærð S þegar A.1 hefur verið prjónað til loka). Næsta umferð er prjónuð þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir fyrstu 30-34-38-41-46-50 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 61-68-76-83-92-101 lykkjur (= framstykki), setjið næstu 47-52-56-57-60-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur á prjóni (= í hlið undir ermi) og prjónið sléttar lykkjur yfir næstu 31-34-38-42-46-51 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað til loka hvort fyrir sig. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 138-152-168-186-204-222 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið, mitt í nýjar 8-8-8-10-10-10 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og hveiti. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-4-5-5-6-6 cm millibili alls 3 sinnum = 126-140-156-174-192-210 lykkjur. Þegar stykkið mælist 15-15-17-17-19-19 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með 3 cm millibili alls 5 sinnum = 146-160-176-194-212-230 lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm er aukið út um 14-16-16-18-20-22 lykkjur jafnt yfir = 160-176-192-212-232-252 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkju. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er hægt að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl og niður. ERMI: = 47-52-56-57-60-63 lykkjur. Setjið 47-52-56-57-60-63 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjón 5,5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi með litnum hveiti = 55-60-64-67-70-73 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í 8-8-8-10-10-10 nýjar lykkjur (= 4-4-4-5-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við prjónamerki). Byrjið umferð hér og prjónið sléttprjón hringinn með litnum hveiti. Þegar stykkið mælist 4-4-4-4-3-3 cm frá skiptingu er fækkað um 2 lykkjur undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR. Fækkið lykkjum svona í 4.-3.-3.-3.-3.-3. hverri umferð 10-12-13-13-14-14 sinnum = 35-36-38-41-42-45 lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-23-23-23-23 cm er aukið út um 1-4-2-3-2-3 lykkjur jafnt yfir = 36-40-40-44-44-48 lykkjur. Prjónið A.2 (= 4 lykkjur) hringinn. Þegar allt A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 4,5 og litnum natur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Skiptið yfir í litinn hveiti, prjónið 1 umferð stroff eins og áður og fellið laust af með litnum hveiti með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Til að koma í veg fyrir að affellingarkanturinn verði stífur er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju jafnframt því sem fellt er af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja). Ermin mælist 35-35-34-34-34-34-34 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nougatsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.