DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9636.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Fair Lily

Peysa með gatamynstri og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL. Stykkið er prjónað úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Air.

DROPS 191-4
DROPS Design: Mynstur ai-118
Garnflokkur C + C eða E
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-125-150-150-175 g litur 01, natur
og notið:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
200-250-250-300-300-350 g litur 15, fjólublá þoka

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 60 eða 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 lykkjur og 15 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 7 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 12 lykkjur og 16 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9636.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, ofan frá og niður. Þegar berustykki er lokið skiptist stykkið, fram- og bakstykki heldur áfram hringinn og ermar eru síðan prjónaðar í hring á sokkaprjóna/stuttan hringprjón.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 51-54-57-63-66-69 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Byrjun á umferð er í hlið að aftan (í skiptingu á milli hægri ermi og bakstykkis þegar peysan er mátuð). Prjónið A.1 yfir allar lykkjur – sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. Þegar A.1a hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjón 8 og prjónað A.1b yfir A.1a. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1b hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 153-162-171-189-198-207 lykkjur í umferð. Prjónið nú A.1c yfir A.1b. haldið svona áfram þar til stykkið mælist 22-24-25-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti. Nú skiptist stykkið þannig:

Prjónið A.1c eins og áður yfir fyrstu 46-48-49-56-61-64 lykkjur (= bakstykki), setjið næstu 30-33-36-38-38-39 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi, prjónið A.1c eins og áður yfir næstu 47-48-50-57-61-65 lykkjur, setjið næstu 30-33-36-38-38-39 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 105-108-115-129-142-153 lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umferð sléttprjón. Haldið áfram með A.1d yfir lykkjur í A.1c – prjónið sléttprjón yfir lykkjur í hlið þar sem mynstrið gengur ekki jafnt upp, passið uppá að mynstureining í A.1d komi beint yfir mynstureiningu A.1c. Þegar A.1d hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út um 1-4-3-1-0-1 lykkjur jafnt yfir = 106-112-118-130-142-154 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 7 og prjónið stroff fram og til baka (= klauf) yfir framstykki og bakstykki hvort fyrir sig þannig:

BAKSTYKKI:
= fyrstu 53-56-59-65-71-77 lykkjur, setjið síðustu 53-56-59-65-71-77 lykkjur á þráð. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir, endið með 1 lykkju slétt og 2 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 6 cm. Stykkið mælist alls ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. Fellið af með sléttum lykkjum, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum.

FRAMSTYKKI:
Prjónið framstykki til loka á sama hátt og bakstykki yfir þær lykkjur sem eftir eru á þræði.

ERMI:
Setjið til baka 30-33-36-38-38-39 lykkjur af þræði á sokkaprjón 8 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 36-39-44-46-48-51 lykkjur.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið 1 umferð sléttprjón. Haldið áfram með A.1d yfir lykkjur í A.1c – prjónið sléttprjón yfir lykkjur undir ermi þar sem mynstrið gengur ekki jafnt upp, passið uppá að mynstureining í A.1d komi beint yfir mynstureiningu í A.1c. Þegar A.1d hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað sléttprjón yfir allar lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 10 cm. Setjið 7 prjónamerki í stykkið með ca 5-5-6-7-7-7 lykkjur millibili. Í næstu umferð er slegið 1 sinni uppá prjóninn á eftir hvert prjónamerki (= 7 lykkjur fleiri). Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt = 43-46-51-53-55-58 lykkjur. Aukið út alveg eins með 5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 57-60-65-67-69-72 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til ermin mælist 35-34-33-31-30-28 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar saman 2 og 2 = 29-30-33-34-35-36 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 7 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 5-3-3-4-2-3 lykkjur jafnt yfir = 24-27-30-30-33-33 lykkjur. Fellið af þegar stroffið mælist 7 cm, passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki of stífur, fellið e.t.v. af með 1 númeri grófari prjónum. Ermin mælist ca 43-41-40-38-37-35 cm frá þar sem ermin skiptist frá fram- og bakstykki.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.03.2018
BERUSTYKKI: ...Prjónið A.1c eins og áður yfir fyrstu 46-48-49-56-61-64 lykkjurnar (= bakstykki), setjið næstu 30-33-36-38-38-39 lykkjurnar á 1 band fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi, prjónið A.1c eins og áður yfir næstu 47-48-50-57-61-65 lykkjurnar, setjið næstu 30-33-36-38-38-39 lykkjurnar á 1 band fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-12 lykkjur undir ermi.
Yfirfarið á vefsvæði: 17.01.2019
Leiðrétting. FRAM- OG BAKSTYKKI:..Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-25-25 cm frá þar sem fram- og bakstykki skiptist upp frá ermum er prjónuð 1 umferð þar sem aukið er út um 1-4-3-1-0-1 lykkjur jafnt yfir = 106-112-118-130-142-154 lykkjur í umferð.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umferð, það eiga að myndast göt.
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umferð, það eiga ekki að myndast göt
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Fair Lily

Renata, Poland

Fair Lily

Renata, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 191-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Barbetta Maria wrote:

Sono sempre piacevolmente attratta dai vs modelli . Complimenti

21.09.2022 - 21:02

country flag Andrea Lauxtermann wrote:

Gibt es die Möglichkeit irgendwo passende Farbkombinationen zusehen?

07.09.2019 - 20:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lauxtermann, wenden Sie sich bitte an Ihren DROPS Laden an (auch telefonisch oder per E-Mail), gerne wird man Ihnen neue passenden Farben vorschlagen. Viel Spaß beim stricken!

09.09.2019 - 08:29

country flag Sanet wrote:

I have never knitted from a diagram and need some help please. 1. There are 4 squares at the bottom, 3 of which are purl, is the last stitch slipped over? 2. Are only right side rows shown and if so, what do I do on the wrong side? 3. Are the diagram stitches just repeated over the amount of stitches cast on? Thank you very much, I am very confused!

18.11.2018 - 10:24

DROPS Design answered:

Dear Sanet, start reading diagram from the bottom corner on the right side (= 3 squares = 3 sts at the beginning of A.1 in each size), and repeat these stitches in width over all sts. On row 1 you will work: (P2, K1) and repeat from (to) to the end of the round. Then work row 2 in diagram the same way, always from the right towards the left (since you are working in the round). See diagram key to know how to work the stitches. Happy knitting!

19.11.2018 - 08:51

country flag Marie wrote:

Bonjour, j'ai un problème avec les mesures. Je tricote le pull en taille S qui mesure 52 cm de hauteur d'après le schéma. Or l'empiecement mesure 22 cm puis on tricote 20 cm puis le bord 6 cm : on obtient 48 cm et non 52 cm.

22.10.2018 - 20:45

DROPS Design answered:

Bonjour Marie, l'empiècement mesure 22 cm en taille S depuis le rang de montage (au milieu devant), mais quand vous poserez votre pull à plat, vous aurez quelques cm supplémentaires pour les épaules (les 3 cm indiqués en haut du schéma). Bon tricot!

23.10.2018 - 09:22

country flag Agnethe wrote:

Hei. Er ikke denne oppskriften tilgjengelig lengre? Får ikke opp bilder, diagram eller tegnene i diagramforklaringen. Har forsøkt flere ulike enheter, samme på alle. Samme feil om jeg velger utskrift også.

09.09.2018 - 20:23

DROPS Design answered:

Hei Agnethe. Vi har for øyeblikket tekniske problemer med siden vår, dette medfører at diagrammer og bilder dessverre ikke lastes ordentlig. Vi jobber med å løse problemet, og siden vil være tilbake som normalt så snart som mulig. Du kan følge med på vår twitter eller facebookside for oppdateringer. Beklager dette

10.09.2018 - 12:50

Dessy wrote:

Beautiful!

20.04.2018 - 10:31

country flag Anne wrote:

Går det å strikke denne med kun én tråd med drops Air, uten Brushed Alpaca Silk?

04.04.2018 - 18:46

DROPS Design answered:

Hei Anne, Det er mulig å strikke genseren med bare Drops Air, men du må da regne om antall masker og rader som utgjør 10 x 10 cm slik at du får riktige målene. God fornøyelse!

05.04.2018 - 08:17

country flag Tina Gundestrup wrote:

Drops gratis strikkeopskrifter, kan ikke uploade selve opskriften billeder mv ? Hvad er der sket? Jeg er interesseret i opskrift fair lily nr. 118 Air og alpacha

23.03.2018 - 08:26

country flag Taputu wrote:

😉 un grand merci à Sylvie! Depuis le temps que j'attendais une réponse, merci mille fois!

10.03.2018 - 23:23

country flag Sylvie wrote:

Bonjour Je pense qu'il y a une erreur de frappe. Il faut lire a1c puisqu'il y a écrit continuer a2c comme avant (donc a1c). J'espère vous avoir aidé. Bonne continuation ( je vais le tricoter également pour moi) et bonne soirée

09.03.2018 - 22:06