Oksana skrifaði:
In the description for front piece is says: ... Now work pattern from the right side as follows: 1 edge stitch in garter stitch, knit the first 8-13-18-18-23-28 stitches at the same time as you decrease 0-1-4-3-3-4 stitches evenly over these stitches.... and then - Continue back and forth like this ... Question: in this row description you suggest to continue with there is decrease of the stiches. Should it be repeated every other row till the end of the work?
14.04.2018 - 10:01DROPS Design svaraði:
Dear Oksana, after the row with dec you continue with 8-12-14-15-20-24 sts in stocking st after the edge st at the beg of row and before the edge st at the end of row, you will then dec when piece measures 5 cm (as for back piece). Happy knitting!
16.04.2018 - 08:52Eleni Stefanou skrifaði:
¡Hola! He intentado hacer este precioso jersey pero las medidas no son correctas. La V del cuello está demasiado arriba y la cabeza no entra de ninguna manera, para que sea aceptable la obertura tendría que ser a la tercera repetición del esquema A4 y no 4 ó 5 veces. Las mangas también son demasiado estrechas Creo que e su página es genial. Muchas gracias por las ideas. Eleni Stefanou
06.04.2018 - 12:45
Jennifer King skrifaði:
I can't get the idea of making this one out of my head!
17.01.2018 - 11:47
Barbara Schmidt skrifaði:
Schöner luftiger Pullover für die Übergangszeit. Möchte ich auf jeden Fall stricken.
13.01.2018 - 16:01
Géraldine skrifaði:
Lovely pullover!!!
03.01.2018 - 00:00
Doris skrifaði:
Möchte ich gerne stricken!
12.12.2017 - 18:15
The Pearl#thepearlsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri og v-hálsmáli úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.
DROPS 186-31 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. Veljið mynstur fyrir þína stærð (á við um A.1, A.3 og A.5). Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA-1 (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 104 lykkjur) mínus lykkjur sem ekki á að fækka yfir (t.d. 2 kantlykkjur með garðaprjóni) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 13) = 7,8. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 7. og 8. hver lykkja slétt saman. ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju með garðaprjóni þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á prjóni, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju í garðaprjóni þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. Prjónað er gatamynstur á framstykki. Bakstykki er prjónað í sléttprjóni. Ermar eru prjónaðar í sléttprjóni, fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp. BAKSTYKKI: Fitjið upp 104-114-124-134-144-159 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 13-15-17-21-21-24 lykkjur jafnt yfir (en ekki yfir kantlykkjur í garðaprjóni) – lesið ÚRTAKA-1 (jafnt yfir) = 91-99-107-113-123-135 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 16-17-12-18-20-13 cm millibili alls 3-3-4-3-3-4 sinnum = 85-93-99-107-117-127 lykkjur. Þegar stykkið mælist 40-43-45-45-48-47 cm fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-2-2-3-5-7 sinnum og 1 lykkja 1-1-2-2-3-2 sinnum = 75-75-79-83-83-87 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 53-57-60-61-65-65 cm prjónið garðaprjón yfir miðju 25-25-25-25-25-27 lykkjur í umferð. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir þessar lykkjur eru felldar af miðju 19-19-19-19-19-21 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Nú eru 28-28-30-32-32-33 lykkjur fyrir hvora öxl. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, 3 lykkjur garðaprjón að hálsmáli og 1 kantlykkja í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist 56-60-63-64-68-68 cm fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 105-115-129-133-143-157 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 5-10-15-15-20-25 lykkjur, 3 lykkjur slétt, A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 32-32-34-36-36-38 lykkjur), A.2 (= 23 lykkjur), A.1 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 32-32-34-36-36-38 lykkjur), (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 5-10-15-15-20-25 lykkjur, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka á hæðina. Nú eru 91-101-115-119-129-143 lykkjur í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í umferð. Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið nú mynstur frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, sléttar lykkjur yfir fyrstu 8-13-18-18-23-28 lykkjur jafnframt sem fækkað er um 0-1-4-3-3-4 lykkjur jafnt yfir (= 8-12-14-15-20-24 lykkjur sléttprjón innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, A.3 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 22-22-22-26-26-26 lykkjur), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, A.4 (= 21 lykkja), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, A.3 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 22-22-22-26-26-26 lykkjur), 2-2-3-2-2-3 lykkjur brugðið, sléttar lykkjur yfir næstu 8-13-18-18-23-28 lykkjur jafnframt því sem fækkað er um 0-1-4-3-3-4 lykkjur jafnt yfir (= 8-12-14-15-20-24 lykkjur sléttprjón innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið), 1 kantlykkja í garðaprjóni = 91-99-107-113-123-135 lykkjur. Haldið svona áfram fram og til baka, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 lykkju í hvorri hlið – munið eftir ÚRTAKA-2. Fækkið lykkjum svona með ca 16-17-12-18-20-13 cm millibili alls 3-3-4-3-3-4 sinnum = 85-93-99-107-117-127 lykkjur. Haldið áfram með mynstur og fækkið lykkjum fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 40-43-45-45-48-47 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið alveg eins og á bakstykki. Prjónið þannig: Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 4-5-5-5-6-6 sinnum á hæðina er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: Stærð S, L og XL: Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur þar til fyrstu 8 umferðir í A.4 hafa verið prjónaðar til loka. Prjónið síðan A.5 (veljið mynsturteikningu fyrri þína stærð = 21 lykkja) yfir A.4 (þær lykkjur sem eftir eru í umferð eru prjónaðar í mynstri eins og áður). Í síðustu umferð í A.5 er aukið út um 1 lykkju í miðju lykkju í mynsturteikningu. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR. Stærð M, XXL og XXXL: Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður yfir allar lykkjur, en prjónið A.5 (veljið mynsturteikningu fyrir þína stærð = 21 lykkjur) yfir A.4. Í síðustu umferð í A.5 er aukið út um 1 lykkju í miðju lykkju í mynsturteikningu. Haldið síðan áfram frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allt A.5 hefur verið prjónað til loka, setjið fyrri helminginn af lykkjum á prjóninn (séð frá röngu) á þráð fyrir hægra framstykki. Þær lykkjur sem eftir eru = vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið fram og til baka frá réttu – ATH: Affelling fyrir handveg heldur áfram eins og á bakstykki. Prjónið mynstur eins og áður fram að A.5, prjónið sléttar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir á undan skiptingu fyrir hálsmáli, prjónið 2 lykkjur slétt saman (= 1 lykkja færri), 3 lykkjur garðaprjóni (= að hálsi). Prjónið til baka frá röngu. Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 9-9-9-9-9-10 sinnum. Þegar öll úrtaka/affelling fyrir hálsmáli og handveg er lokið eru 29-29-31-33-33-34 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til handvegur mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm (stykkið mælist alls 56-60-63-64-68-68 cm frá öxl og niður), JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 28-28-30-32-32-33 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! HÆGRA FRAMSTYKKI: Setjið til baka lykkjur frá þræði á hringprjón og prjónið fram og til baka frá réttu – ATH: Affelling fyrir handveg heldur áfram eins og á bakstykki og vinstra framstykki. Prjónið 3 lykkjur garðaprjón (frá hálsi), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir (= 1 lykkja færri), prjónið sléttar lykkjur fram að A.3 og haldið áfram með mynstur eins og áður út umferðina. Haldið svona áfram fram og til baka og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í hverri umferð frá réttu alls 9-9-9-9-9-10 sinnum. Þegar öll affelling/úrtaka fyrir fyrir handveg og hálsmáli er lokið eru 29-29-31-33-33-34 lykkjur fyrir öxl. Haldið síðan áfram þar til handvegur mælist ca 16-17-18-19-20-21 cm (stykkið mælist alls 56-60-63-64-68-68 cm frá öxl og niður), JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman = 28-28-30-32-32-33 lykkjur. Fellið af. Passið uppá að affellingarkanturinn verði ekki stífur! ERMI: Fitjið upp 45-50-50-55-55-60 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-11-8-13-10-14 lykkjur jafnt yfir = 38-39-42-42-45-46 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-9-11-11-7-4 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 6-5-4-3-3-3 cm millibili alls 6-7-8-10-11-12 sinnum = 50-53-58-62-67-70 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 43-43-43-42-41-40 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum, 1 lykkja 3-4-2-3-5-6 sinnum, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-3 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 12-13-14-16-17-18 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51-52-52-52-53-53 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma innan við affellingarkant. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsaum. Saumið innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #thepearlsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.