DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sandy Wrap

Prjónuð peysa með framhliðum sem skarast og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS 186-24
DROPS Design: Mynstur z-813
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-35-400-450 g litur 100, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-150-150-175-175 g litur 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNN (60 eða 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 fyrir stroff – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS PERLUTALA, Bogalaga (hvít) NR 522: 2 st í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13090.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, svo ekki myndist gat.

ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 93 lykkjur), mínus kanta að framan í garðaprjóni (t.d. 2 lykkjur) og deilið með fjölda lykkja sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 5,3.
Í þessu dæmi þá er aukið út eftir ca 5. hverja lykkju og ekki er aukið út yfir lykkjur í garðaprjóni.
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig fækka eigi jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 45 lykkjur) og deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 7) = 6,4. Í þessu dæmi þá eru prjónaðar ca 5. og 6. hver lykkja slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón ofan frá og niður í stykkjum og saumað saman í lokin. Ermar eru prjónaðar fram og til baka á hringprjón neðan frá og upp.

BAKSTYKKI:
Prjónið hægri öxl þannig:
Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= að hálsi), sléttar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= að handvegi).
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, brugðnar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Klippið frá og geymið stykkið.
Prjónið vinstri öxl þannig:
Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir garðaprjón. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= að handveg), sléttar lykkjur þar til eftir eru 2 lykkjur, 2 kantlykkjur í garðaprjóni (= að hálsi).
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, brugðnar lykkjur þar til eftir er 1 lykkja, 1 kantlykkja i garðaprjóni.

Nú eru prjónaðar saman hægri og vinstri öxl þannig: Snúið stykkinu (= vinstri öxl) og prjónið eins og áður yfir 28-30-32-34-36-38 lykkjur, fitjið upp 15-15-17-17-19-19 nýjar lykkjur í lok umferðar (= háls), síðan eru prjónaðar 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hægri öxl inn á prjóninn = 71-75-81-85-91-95 lykkjur fyrir bakstykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp fyrir háls að miðju að aftan eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur á bakstykki eru prjónaðar í sléttprjóni og garðaprjóni eins og áður (þ.e.a.s. miðju 19-19-21-21-23-23 lykkjur + 1 kantlykkja í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni, aðrar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir nýjar lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12-13-13-14-14-13 cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir handveg þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-1-2-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 87-93-101-109-119-129 lykkjur.
Haldið síðan áfram með sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fitjað var upp fyrir síðustu lykkjur fyrir handveg er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING-1. Aukið svona út með 14-15-15-16-17-17 cm millibili alls 3 sinnum = 93-99-107-115-125-135 lykkjur. Haldið síðan áfram þar til stykkið mælist 49-52-54-56-59-61 cm frá öxl og niður.
Nú er aukið út um 17-16-18-20-20-25 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING-2 (jafnt yfir) = 110-115-125-135-145-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-57-59-61-64-66 cm frá öxl og niður.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð garðaprjón, Nú er mynstur prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 12-14-16-18-20-22 lykkjur sléttprjón, A.1 (= 13 lykkjur), 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona, JAFNFRAMT er aukið út með því að slá uppá prjóninn og fyrir handveg þannig: Þegar stykkið mælist 2 cm frá uppfitjunarkanti byrjar útaukning fyrir uppslætti. Aukið út um 1 lykkju á undan A.1 + 2 lykkjur garðaprjón – munið eftir ÚTAUKNING-1. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 52-55-57-59-63-65 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13-13-14-14-13 cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá röngu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-1-2-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni (= alls 8-9-10-12-14-17 nýjar lykkjur fyrir handveg). Nýjar lykkjur fyrir handveg eru prjónaðar með sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fitjaðar voru upp síðustu lykkjur fyrir handveg er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið. Aukið svona út með 14-15-15-16-17-17 cm millibili alls 3 sinnum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 91-97-102-108-116-123 lykkjur. Stykkið mælist ca 49-52-54-56-59-61 cm frá öxl og niður. Nú er aukið út um 20-19-24-28-30-38 lykkjur jafnt yfir = 111-116-126-136-146-161 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 5 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-57-59-61-64-66 cm frá öxl og niður.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 28-30-32-34-36-38 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði Alpaca + 1 þræði Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Nú er prjónað mynstur frá réttu þannig: 2 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 13 lykkjur), 12-14-16-18-20-22 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka svona, JAFNFRAMT er aukið út með uppslætti og handveg þannig:
Aukið út um 1 lykkju á eftir 2 kantlykkjum í garðaprjóni + A.2 – munið eftir ÚTAUKNING. Aukið svona út í annarri hverri umferð alls 52-55-57-59-63-65 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-13-13-14-14-13 cm frá uppfitjunarkanti eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir handveg í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: Fitjið upp 1 lykkju 2-1-2-2-2-3 sinnum, 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni (= alls 8-9-10-12-14-17 nýjar lykkjur fyrir handveg). Nýjar lykkjur fyrir handveg eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá þar sem fitjaðar voru upp síðustu lykkjur fyrir handveg er aukið út um 1 lykkju innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni að hlið. Aukið svona út með 14-15-15-16-17-17 cm millibili alls 3 sinnum. Þegar öll útaukning hefur verið gerð eru 91-97-102-108-116-123 lykkjur. Stykkið mælist ca 49-52-54-56-59-61 cm frá öxl og niður. Nú eru auknar út 20-19-24-28-30-38 lykkjur jafnt yfir = 111-116-126-136-146-161 lykkja. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 2 kantlykkjur með garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Stykkið mælist ca 54-57-59-61-64-66 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Fitjið upp 45-50-50-55-55-60 lykkjur á hringprjón 4. Prjónið stroff frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) þar til 4 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 7-11-8-13-10-14 lykkjur jafnt yfir = 38-39-42-42-45-46 lykkjur.
Haldið síðan áfram með sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9-8-9-9-5-11 cm aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út með ca 6-5-4-3-3-2 cm millibili alls 6-7-8-10-11-12 sinnum = 50-53-58-62-67-70 lykkjur. Haldið síðan áfram í sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar ermin mælist 43-42-41-40-39-37 cm fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2-2-3-3-3-4 sinnum, 1 lykkja 3-4-4-4-4-4 sinnum, 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3 sinnum og 4 lykkjur 1 sinni = 12-13-14-18-19-18 lykkjur. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 52-52-51-50-50-49 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma innan við uppfitjunarkantinn. Saumið ermar í við fram- og bakstykki. Saumið saum undir ermum og síðan niður yfir hliðarsauma. Saumið eina tölu í vinstri hliðarsaum (frá réttu á flíkinni) beint yfir stroff.
Saumið seinni töluna á hægri hliðarsaum (innanverðu á flíkinni) beint yfir stroff. Stykkinu er lokið með því að hneppa tölunum í gegnum eitt af götum í mynstri A.1/A.2 neðst niðri við stroff.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2018
VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið stroff frá réttu þannig: 2 kantlykkjur með garðaprjóni, (3 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar) þar til 4 lykkjur eru eftir, 3 lykkjur slétt, 1 kantlykkja með garðaprjóni.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 186-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (16)

country flag Mónica wrote:

¿Cómo se unen las piezas? ¿Cómo es el montaje?

23.08.2023 - 01:48

DROPS Design answered:

Hola Mónica, había un error en el patrón colgado en español, puedes ver ahora la terminación en el patrón en español. Hacer las costuras de los hombros dentro del borde de montaje. Coser las mangas al cuerpo. Hacer la costura bajo las mangas y coser hacia abajo por la costura lateral. Coser un botón en la costura del lado izquierdo (por el lado derecho de la labor) directamente sobre el elástico. Coser otro botón en la costura derecha (dentro de la prenda) directamente sobre el elástico. La prenda se cierra abrochando en los ojales del patrón A.1/A.2 en la parte de abajo de la prenda junto al elástico.

27.08.2023 - 23:55

country flag An Drea wrote:

Selten eine so gut beschriebene Anleitung gehabt👍 Das vorgeschlagene Garn ist ein Traum,es macht echt einfach Spaß dieses Modell nachzuarbeiten. Ich liebe es❤️

05.08.2023 - 17:45

country flag Laurence wrote:

Bonjour je tricote le devant droit en taille S : qd l ouvrage mesure 4 cm depuis les dernières montées pour l emmanchure augmenter une maille à une maille lisière au point mousse du bord sur le côté » l augmentation se fait elle sur l endroit ou l’envers ? au début du rang après la maille lisière ou à la fin du rang entre deux mailles lisières ? merci d avance

25.04.2023 - 12:37

DROPS Design answered:

Bonjour Laurence, par "côté", on entend ici le côté cousu au dos (côté du gilet); autrement dit, pour le devant droit, vous augmenterez en fin de rang sur l'endroit, avant la maille lisière de la fin du rang (= à 1 maille lisière du bord). Bon tricot!

25.04.2023 - 14:46

country flag Marjolaine Cormerais wrote:

J'adore ce modèle mais j'ai bien suivi maille à maille l'explication de l'augmentation du croisé devant droit et je n'obtiens pas le même rendu que sur la photo. Si je comprends bien l'augmentation (jeté) doit se faire avant le diagramme donc : n mailles jersey- 1 jeté - diagramme A1 sur 13 mailles - 2 m mousse. D'autre part vous dites de tricoter les jetés torses à l'envers pour éviter les trous, or les trous sont très apparents ! et c'est le but il me semble. Merci

12.05.2022 - 17:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cormerais, effectivement, vous augmentez pour l'encolure 1 maille avant A.1 + les 2 m point mousse autrement dit, sur l'endroit tricotez jusqu'à ce qu'il reste 1 m avant A.1, faites 1 jeté, tricotez 1 m endroit, terminez par A.1 et 2 m point mousse. Si vous voulez créer des jours, tricotez le jeté normalement, sinon tricotez-le torse à l'envers. Augmentez ainsi tous les 2 rangs. Vous devriez avoir le même rendu. Bon tricot!

13.05.2022 - 08:01

country flag Birgitta Johansson wrote:

Kära Drops, jag har hittat ett fel i mönstret. Det står att den ökade maskan längs med framkanterna ska stickas vridna men då blir det ju inga snygga hål. Sedan står det att man ska öka maskan innan A1 respektive A2 , men enligt bilden är det direkt innan o efter de 2 aviga. Med vänlig hälsning,

10.01.2021 - 23:53

country flag Barb Hilton wrote:

What is the gauge for this pattern? I don't see it listed...

22.10.2019 - 14:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hilton, you will find the gauge for both needle sizes under the header. Happy knitting!

22.10.2019 - 14:37

country flag Carine Nuyts wrote:

Ik zou deze trui graag breien met Drops Alpaca Silk (cat.C). Hoeveel gram heb ik hiervoor nodig?

15.09.2019 - 20:22

DROPS Design answered:

Dag Carine,

Dat kan ik niet met zekerheid zeggen, omdat er geen berekening van is, maar dit zal naar schatting ongeveer 200-200-225-250-275-275 zijn. Koop evt. een bol extra en vraag je verkooppunt op welke termijn je overgebleven bollen in kunt leveren.

17.09.2019 - 08:12

country flag Bente Madsen wrote:

Jeg forstår ikke udtagningen på højre forstykke før mønster A1 skal der både 1maske ud +2 masker ret så kommer der alt for mange masker?

19.06.2018 - 19:56

DROPS Design answered:

Hei Bente. Du skal kun øke 1 maske før A.1. Altså, du skal øke fra rettsiden, før du strikker A.1 etterfulgt av de 2 maskene med rille. God fornøyelse.

21.06.2018 - 14:28

country flag Cornelia wrote:

Bei den Vorderteilen soll man 1 Masche vor A.1 + 2 kraus rechten Maschen zunehmen. Heißt das, daß ich eine Masche vor A.1 und eine weitere vor den beiden Randmaschen zunehme (und umgekehrt beim linken Vorderteil) oder nehme ich 1 Masche zwischen A.1 und den Randmaschen zu?

24.04.2018 - 19:24

DROPS Design answered:

Liebe Cornelia, die Zunahmen werden am Ende der Glatt-rechts gestrickten Partie gestrickt, Sie stricken bis die Maschen A.1 bleiben, dann nehmen Sie 1 M zu, und beenden die Reihe mit A.1 und 2 M krausrippe (= rechtes Vorderteil). Beim linken Vorderteil werden Sie am Anfang der Glattrechts Partie zunehmen, dh: 2 M krausrippe, A.2, Zunahme, und die übrigen Maschen stricken. Viel Spaß beim stricken!

25.04.2018 - 08:02

Oksana wrote:

It is written: 2 edge stitches in garter stitch, (knit 3/purl 2) until 5 stitches remain, knit 3, 1 edge stitch in garter stitch. Question: if 5 left -K 3 +1 edge..where is another stitch

11.04.2018 - 20:24

DROPS Design answered:

Dear Oksana, it looks like you should work on left front piece until 4 sts remain and knit 3, 1 st in garter st. Our Design Team has been informed , a correction should come soon. Happy knitting!

12.04.2018 - 08:41